Íslenskur helfararsagnfræðingur varar við því að fasismi sé að rísa aftur í heiminum sem muni hafa hræðilegar afleiðingar sé ekkert gert.
Ingibjörg Þóra Haraldsdóttir, helfararsagnfræðingur og sérfræðingur hjá Reykjavíkurborg, skrifaði Facebook-færslu í gær í tilefni þess að 80 ár voru þá liðin frá frelsun útrýmingabúðanna Auschwitz en þar segir hún að það hafi aldrei verið eins mikilvægt og nú að þekkja og læra af sögunni, víða sé verið að fremja þjóðarmorð í heiminum.
„Í dag eru 80 ár frá frelsun útrýmingarbúðanna Auschwitz og alþjóðlegi minningardagur helfararinnar.
Það hefur aldrei verið jafn mikilvægt og nú að þekkja söguna og læra af henni. Aldrei aftur þýðir aldrei aftur. Aldrei aftur útrýming á einstaklingum líkt og gerðist í helförinni.Það eru mörg þjóðarmorð í gangi víða um heim, þ.á.m. þjóðarmorð zionista á íbúum Palestínu.“
Þá segir hún í seinni hluta færslu sinnar að fasismi sé að rísa á ný í heiminum sem muni hafa hrottalegar afleiðingar ef hann verður ekki stöðvaður. Segir hún að helförin hafi ekki gerst í tómarúmi, heldur hafi það verið hægt ferli. Hvetur hún síðan fólk til þess að standa saman gegn fasismanum.
„Á sama tíma er fasismi að rísa á ný í heiminum og hatur og ótti gagnvart þeim sem eru „öðruvísi“ á einhvern hátt mun hafa hryllilegar afleiðingar ef ekkert er gert.Helförin gerðist ekki í tómarúmi, hún gerðist ekki á einum degi. Þetta er hægt ferli sem dregur inn almenna borgara með sér og afleiðing er þessi.Við þurfum að standa saman gegn hatri og tala gegn fasískum öflum. Fordæmum hatur og ofbeldi, höfum mannúðina að vopni. Munum hvað gerðist og lærum af því.“
























Athugasemdir