„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Hæðist að NATO og íslenskum ráðamönnum: „Á þessari ögurstund er ekkert þing starfandi“

Hæðist að NATO og íslenskum ráðamönnum: „Á þessari ögurstund er ekkert þing starfandi“

„Afhjúpun NATO þessa dag­ana er býsna athygl­is­verð en hún skrif­ast á reikn­ing Tumps Banda­ríkja­for­seta. Afhjúpun er ef til vill ekki rétta orðið því það hefur lengi verið hugs­andi fólki ljóst að NATO er lítið annað en þjón­ustu­stofnun Banda­rískrar utan­rík­is­stefnu og helg­ast fyrst og síð­ast af skil­greindum hags­munum þar í landi. Hin NATO ríkin gera það sem þeim er sagt – svona að mestu leyti.“ Þannig hefst Facebook-færsla Kristins Hrafns­sonar, rit­stjóra Wikileaks en þar talar hann NATO og ráð­andi stöðu Banda­ríkj­anna innan þess banda­lags.

Kristinn heldur áfram:

„Til að breiða yfir þessa, fremur auð­mýkj­andi valda­skekkju, héldu önnur aðild­ar­ríki uppi þeirri blekki­mynd að þarna væru jafn­ingjar við borðið, „vina­þjóðir“ sem haldi þennan klúbb um háleit og fal­leg gildi. NATO sé bjart banda­lag, þar sem jafn­háir ridd­arar hring­borðs­ins ráða sínum ráðum eftir að hafa fallið á kné við hátíð­lega athöfn, hallað sér fram á sverðin, lotið höfðum og svarið þess eið að verja hvern annan – og heiður kvenna. Það hefur alltaf verið holur hljómur í þessu sviðs­verki en lík­leg­ast er þægi­legra að lifa í blekki­heimi en horfast í augu við nak­inn sann­leik­ann.“

Því næst snýr Kristinn sér að áhuga Donalds Trump á Græn­landi en hann hefur hótað að taka landið með her­valdi. Segir rit­stjór­inn að nú hrynji leik­tjöld NATO og að fólk sé hissa á að aðal­leik­ar­inn fylgi ekki hand­rit­inu. Þá rass­skellir hann íslenska fjöl­miðla fyrir að spyrja ekki krefj­andi spurn­inga um málið:

„Svo kemur Trump aftur fram á sviðið, elt­ist ekki við blekki­leik­inn og hótar að beita her­valdi gegn ann­ari NATO þjóð til að fylgja eftir kröfu sinni að fá Grænland. Leik­tjöldin hrynja og menn eru hvumsa yfir því að leik­ar­inn í hlut­verki Artúrs kon­ungs fylgir ekki hand­rit­inu.Með falli Pótem­kin­tjald­anna moln­aði jafn­framt þessi yfir­lýsta ,,grunn­stoð“ íslenskrar utan­rík­is­stefnu. Það leiðir að sjálfu að hin grunn­stoðin, Varn­ar­samn­ing­ur­inn við Banda­ríkin, er í upp­námi líka. Maður myndi ætla að þetta væri aðal­frétt íslenskra fjöl­miðla (á eftir hand­bolt­anum, vita­skuld) og aðal­um­ræðu­efnið á hinu póli­tíska sviði, en þar er ekk­ert að frétta nema eitt­hvað pot í Ingu Sæland. Hvaða stöðu ætlar íslenska ríkið að taka? Og íslenska þjóðin. Ef við fylgjum Dönum er þá varn­ar­samn­ing­ur­inn brost­inn? Verður Kefla­vík­ur­flug­völlur not­aður til hern­að­ar­að­gerða á Græn­landi? Verður tolla­refs­ingum beitt gegn Íslandi? Ætlum við að vera hlut­laus eða bara sinnu­laus og láta okkur vanta við borðið (eins og kvöld­verð­ar­borðið hjá Mette Fred­rik­sen á dög­unum)?“

Að lokum hæð­ist Kristinn að ráða­mönnum þjóð­ar­innar:

„Á meðan öll athygli er á nágranna okkar handan við Græn­lands­sund sem allir aðrir kalla að vísu Dan­merk­ur­sund (sem menn ættu að muna þegar þeir hneiksl­ast á trumpískri nafn­breyt­ingu Mexík­óflóa í Amer­íkuflóa) erum við og utan­rík­is­ráð­herra lands­ins að horfa á hand­bolta­stríð – sem við töpum. Á þess­ari ögur­stund er ekk­ert þing starf­andi og engin utan­rík­is­mála­nefnd. Helsta þjóðar­ör­ygg­is­málið í umræð­unni er sú vá sem skap­ast þegar lands­menn missa Netflix við rof sæstrengs. Aldeilis samt fengur núna að hafa reynslu­bolt­ann Svan­hildi sendi­herra á vakt­inni við hirð­ina í Camelot. Og Loga.“

Þess má geta að Mannlíf hefur sent spurn­ingar um áhuga Banda­ríkja­for­seta á Græn­landi og fleiru því tengdu til utan­rík­is­ráð­herra og bíður svara.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

utanríkisráðherra

Birtir opið bréf til Þorgerðar Katrínar: „Nú virðist þú ætla að kasta inn handklæðinu“
Innlentutanríkisráðherra

Birtir opið bréf til Þor­gerðar Katrínar: „Nú virð­ist þú ætla að kasta inn hand­klæð­inu“

Guðný Nielsen skrif­aði í dag opið bréf til Þor­gerðar Katrínar Gunn­ars­dóttur, utan­rík­is­ráð­herra Íslands, þar sem hún spyr hvor hún ætli að beita sér eitt­hvað gegn ofbeldi Ísraela á Vest­ur­bakka Palest­ínu. „Hver eru skila­boð þín í hálf­leik, Þor­gerður Katrín? Nú virð­ist árásum á Gaza vera að linna, en seinni hálf­leikur er svo sann­ar­lega haf­inn á Vest­ur­bakk­anum – með sprengju­árásum á flótta­manna­búðir,...
Hagsmunir eiginkonu ráðherra ekki tilgreindir
Innlentutanríkisráðherra

Hags­munir eig­in­konu ráð­herra ekki til­greindir

Ágústa Johnson, eig­in­kona Guðlaugs Þórs Þórð­ar­sonar utan­rík­is­ráð­herra, hefur fengið yfir 329 millj­ónir króna í arð­greiðslur af Bláa lón­inu. Stundin segir frá þessu í dag. Félag Ágústu, Bog­mað­ur­inn ehf., fær greiðsl­urnar. Félagið var áður að helm­ingi í eigu Guðlaugs Þórs en síðan fært að fullu í eigu Ágústu. Stundin upp­lýsir að umræddar arð­greiðslur nái til áranna 2012 til 2019. Í hags­muna­skrán­ingu...
Innlent

Unnið allan sól­ar­hring­inn við að koma fólki heim

Starfs­fólk utan­rík­is­þjón­ust­unnar vinnur nú á vöktum allan sól­ar­hring­inn og aðstoðar Íslend­inga sem eru staddir erlendis við að kom­ast heim. Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra segir frá þessu á Facebook-síðu sinni. „Utan­rík­is­þjón­ustan hefur staðið í ströngu frá því fyrir helgi við að aðstoða Íslend­inga erlendis sem vilja kom­ast heim og áfram er unnið á vöktum allan sól­ar­hring­inn,“ skrifar hann. Utan­rík­is­ráðu­neytið hefur und­an­farið...
Markmiðið að takmarka skaðann sem hlýst af ferðabanni
Innlentutanríkisráðherra

Mark­miðið að tak­marka skað­ann sem hlýst af ferða­banni

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra segir til­kynn­ingu Evr­ópu­sam­bands­ins um 30 daga ferða­bann vera „óskýra“. Í gær var greint frá því að ESB hef­ur tekið ákvörðun um að loka ytri landa­mær­um sín­um fyr­ir ferða­mönn­um utan sam­bands­ins fyr­ir ónauð­syn­leg­um ferða­lög­um næstu 30 daga. Til­gang­ur­inn er að reyna að draga úr útbreiðslu COVID-19. Ang­ela Merkel, kansl­ari Þýsklands, greindi frá þessu í gær. Bannið tók...
Íslensk stjórnvöld mótmæla ferðabanninu
Innlent

Íslensk stjórn­völd mót­mæla ferða­bann­inu

Íslensk stjórn­völd hafa í morgun komið á fram­færi hörðum mót­mælum við aðgerðum sem banda­rísk stjórn­völd kynntu í gær­kvöldi. Þær fela í sér komu­bann ferða­manna sem dvalið hafa í Schengen-ríkjum og munu geta haft alvar­leg áhrif á Íslandi, einkum fyrir ferða­þjón­ustu. Þetta kemur fram á vef Utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins. Þar segir að Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, utan­ríkis- og þró­un­ar­mála­ráð­herra, hafi í morgun átt sam­tal...
Undirrituðu samning vegna Brexit í dag
Innlent

Und­ir­rit­uðu samn­ing vegna Brexit í dag

Í dag und­ir­rit­uðu utan­rík­is­ráð­herrar Íslands, Noregs og Liechtenstein samn­ing við Bretland vegna útgöngu Bret­lands úr Evrópska efna­hags­svæð­inu. Bretland mun ganga úr Evr­ópu­sam­band­inu á föstu­dag­inn, 31. jan­úar, á grund­velli útgöngu­samn­ings við ESB. Samn­ing­ur­inn við Ísland og hin EFTA-ríkin innan EES leysir úr við­eig­andi útgöngu­skil­málum með sam­bæri­legum hætti og gert er í útgöngu­samn­ingi Bret­lands og ESB. Samn­ing­ur­inn tryggir m.a. að Íslend­ingar sem...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins