„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Björgólfur er látinn

Björgólfur er látinn
Mynd / Rakel Ósk

Björgólf­ur Guðmunds­son, fyrr­ver­andi for­stjóri og stjórn­ar­for­maður Lands­banaknas,  lést síð­ast­lið­inn sunnu­dag, 2. fe­brú­ar 2025. Hann var 84 ára.

Björgólfur fædd­ist 2. janú­ar 1941. Hann var  son­ur hjón­anna Krist­ín­ar Dav­íðs­dótt­ur hús­móður og Guðmund­ar Ólafs­son­ar bíl­stjóra. Morg­un­blaðið segir frá and­lát­inu og rekur ævi­feril hans.

Björgólfur nam við Gagn­fræða­skól­ann við Hring­braut og síðan Versl­un­ar­skól­ann og út­skrif­að­ist þaðan stúd­ent 1962.

Björgólfur var áber­andi í við­skipta­líf­inu um langt ára­bil. Hann var einkar llit­ríkur. Á ferli han skipt­ust skin og skúrir. Þekkt­astur var hann sem aðal­eig­andi Lands­bs­bank­ans og áður Hafskips. Hann stofn­aði Dósa­gerð­ina hf. 1962. Árið 1977 var hann ráð­inn for­stjóri Haf­skips hf. sem hann stýrði til 1986. Árið 1991 var hann ráð­inn for­stjóri Gos­an, síðar Vik­ing Brewery. Árið 1995 stofn­aði hann drykkja­gerð­ina Bra­vo í Pét­urs­borg í Rúss­landi í fé­lagi við son sinn Björgólf Thor og fleiri. Upp frá því sinnti Björgólf­ur fjár­fest­ing­um og stjórn­ar­setu í fjölda fyr­ir­tækja, þar á meðal Bra­vo In­ternati­onal, Pharmaco, Pri­mex og Balk­an­pharma. Hann var um tíma aðal­eig­andi að Árvakri, út­gáfu­fé­lagi Morg­un­blaðs­ins.

Eft­ir kaup á Lands­bank­an­um árið 2003 varð Björgólf­ur að for­maður í banka­ráði hans til fjár­mála­hruns­ins 2008. Hann var for­maður stjórn­ar Portus­ar hf. sem hann­aði og hóf bygg­ingu Hörpu og aðal­eig­andi fót­bolta­fé­lags­ins West Ham í Lund­ún­um 2006-2009.

Björgólf­ur gegndi marg­vís­leg­um trún­aðar­störf­um fyr­ir Sjálf­stæðis­flokk­inn. Hann var um tíma for­maður Varðar. Björgólfur var einn stofn­enda SÁÁ og for­maður sam­tak­anna um ára­bil. Hann var for­maður knatt­spyrnu­deild­ar KR 1998-2002 og lengi aðal­ræð­is­maður Búlgaríu. Hann var sæmd­ur fálka­orð­unni 2005.

Árið 1963 gekk Björgólf­ur að eiga Þóru Hall­gríms­son (f. 1930, d. 2020). Þau áttu fimm börn; Friðrik Örn Clausen (lát­inn), Hall­grím, Mar­gréti (lát­in), Bentínu og Björgólf Thor.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins