„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Búið að ákveða hver lýsir Eurovision og hver kynnir stig Íslands: „Við erum í skýjunum“

Búið að ákveða hver lýsir Eurovision og hver kynnir stig Íslands: „Við erum í skýjunum“
Gunna Dís lýsti Eurovision í fyrra en Gísli Marteinn er mik­ill reynslu­bolti í þeim fræðum – Myndin er sam­sett

Búið er að ákveða hvaða ein­stak­lingar muni leika lyk­il­hlut­verk í sjón­varps­út­send­ingu RÚV á Eurovision á Íslandi.

Í sam­tali við Mannlíf stað­festi Rúnar Freyr Gíslason, fram­kvæmda­stjóri Söngvakeppn­innar, að búið væri að ákveða hver muni lýsa Eurovision og hver muni kynna stig Íslands. Hann vildi þó ekki gefa upp hvaða fólk um ræðir. „Við munum til­kynna um það eftir Söngvakeppn­ina.“

Gísli Marteinn Bald­urs­son hefur lýst því sem fram fer í Eurovision með hléum frá árinu 2003, og öllum keppnum frá árinu 2016. Hann ákvað hins vegar að lýsa ekki í fyrra vegna þátt­töku Ísrael í keppn­inni. Guðrún Dís Emils­dóttir sá um að lýsa keppn­inni í fyrra ásamt Gunnari Birg­is­syni íþrótta­f­rétta­manni.

Margir gestir og mikið stuð

En það verður einnig mikið verður um dýrðir á Söngvakeppn­inni en meðal þeirra sem koma fram er finnski söngv­ar­inn Käärijä sem hafn­aði í 2. sæti í Eurovision 2023 með lagið Cha Cha Cha.

„Við erum í skýj­unum yfir því að fá allt þetta frá­bæra lista­fólk með okkur á stóra sviðið í Gufu­nes­inu. Käärijä hefur til að mynda notið gríð­ar­legra vin­sælda hér á landi og það verður gaman að sjá hann trylla áhorf­endur í höll­inni á úrslita­kvöld­inu. Og áhorf­endur munu alveg örugg­lega gleðj­ast yfir Heru, Aroni Can, Hr. Hnetu­smjör og Jóhönnu Guðrúnu sem mun m.a. taka lagið Is It True? sem lenti í 2. sæti í Eurovision 2009. Og hún verður ekki ein á svið­inu, því bak­radd­irnar sem voru með henni í Moskvu 2009, þau Friðrik Ómar, Hera Björk og Erna Hrönn, ætla að vera með henni. Svo verða líka alls­konar upp­á­komur. Ég veit að kynn­arnir okkar, þau Benni, Fannar og Gunna Dís, munu bjóða upp á ansi margt skemmti­legt. Ég held að nú geti fjöl­skyldur lands­ins farið að hlakka til,“ sagði Rúnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins