„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Samfélagið á reiðiskjálfi eftir ásakanir Vítalíu og Arnars – Eitruð ást, uppspuni og mannorðsmorð

Samfélagið á reiðiskjálfi eftir ásakanir Vítalíu og Arnars – Eitruð ást, uppspuni og mannorðsmorð
Vítalía og Arnar.

Sam­fé­lagið lék bók­staf­lega á reiði­skjálfi eftir að Vítalía Lazareva steig fram og bar þungar ásak­anir á ást­mann sinn, Arnar Grant, og fjóra aðra ein­stak­linga. Málið náði langt út fyrir það að vera hefð­bundið áreit­is­mál þar sem per­sónu­legur harm­leikur er að baki. Það teygði sig inn í eitt stærsta fjöl­miðla­fyr­ir­tæki lands­ins og næstærstu smá­sölu­keðj­una. Lang­flestir trúðu fram­burði ungu, sak­leys­is­legu kon­unnar sem lýsti því í hlað­varps­þætti að hún hefði verið nakin í heitum potti í Skorra­dal ásamt fjórum nöktum og káf­andi karl­mönnum. Almenn for­dæm­ing dundi á mönn­unum og atburða­rás sem ekki á sér hlið­stæðu hófst.

Þórður Már Jóhann­es­son, Hregg­viður Jónsson, Ari Edwald, Arnar Grant og Logi Bergmann

Upphaf Potta­máls­ins var að nokkrir félagar ákváðu að skreppa í sum­ar­bú­stað Þórðar Más Jóhann­es­sonar í Skorra­dal. Ásamt Þórði Má, stjórn­ar­for­manni Festar, voru þetta þeir Ari Edwald, for­stjóri Íseyjar útflutn­ings. Hregg­viður Jónsson, aðal­eig­andi Veritas Capital, Þor­steinn M. Jónsson fjár­festir og Arnar Grant heilsu­rækt­ar­þjálf­ari sem var þjálf­ari þre­menn­ing­anna í World Class um langt ára­bil.

Framan af sum­ar­bú­stað­ar­ferð­inni var allt með kyrrum kjörum. Þegar leið á kvöldið yfir­gaf Þor­steinn sam­kvæmið. Einhver lagði til að hann tæki Arnar með sér. Hann var þá að sögn orð­inn drukk­inn. Arnar þvertók fyrir að fara.

Arnar sló um sig og bauð fél­lögum sínum að horfa á sig og Vítalíu í ást­ar­leik. Þetta kemur fram í vitn­is­burði bíl­stjóra Þor­steins M. Jóns­sonar, sem kom í bústað­inn áður en dró til þeirra örlaga­ríku tíð­inda sem áttu eftir að skekja íslenskt sam­fé­lag. Arnar hafði boðið Vítalíu í bústað­inn þrátt fyrir and­mæli félaga sinna. Bíl­stjór­inn sagði að Arnar hefði verið sá eini sem var ánægður með að Vítalía væri á leið­inni. „Vitnið kvað Arnar hafa verið óvið­eig­andi í tali og sagst ætla að sofa hjá kær­anda (Vítalíu) og hinir mættu horfa á ef þeir vildu,“ segir í lög­reglu­skýrslu.

Nakin í pottinum

Þegar Vítalía kom í bústað­inn var Ari sofn­aður. Arnar lagði til að fólk færi í pott­inn en fékk ekki und­ir­tektir. Arnar fór einn í pott­inn til að byrja með. Vítalía bað Þórð um að sýna  sér bústað­inn. Eftir það var ákveðið að fleiri færu í pott­inn. Í fram­hald­inu fór Vítalía og vakti Ara og hvatti hann til að koma með þeim í pott­inn. Hann lét segj­ast og fór í sturtu og klæddi sig í sund­skýlu. Þegar hann kom í pott­inn var Arnar þar fyrir nak­inn en Þórður Már í skýlu. Ari lýsti því að Arnar hefði rifið hann úr sund­skýlu sinni í pott­inum, sem gæti flokk­ast sem lík­ams­árás. Þá hefði hátt­semi Vítalíu þegar hún kom nakin í pott­inn geta fall­ist undir blygð­un­ar­sem­is­brot.

Arnar sagði frá því í leyni­sam­tal­inu við Loga Bergmann að ekk­ert hefði gerst í pott­inum í lík­ingu við það sem Vítalía hafði lýst. Hann sagði við Loga að það væri ekk­ert í þessu og Vítalía myndi aldrei kæra. Nokkrum mán­uðum seinna gjör­breytti Arnar fram­burði sínum í sam­tali við Vísi. Þá sagð­ist hann myndu bera vitni í máli Vítalíu, sem þá var sagt vera á borði lög­reglu. „Ég er vitni í mál­inu. Ég sá hvað gerð­ist og þessar lýs­ingar hennar, sem hún hefur komið með, þær eru ekki fjarri lagi,“ segir Arnar í sam­tali við Vísi.

Vítalía lýsti atvikum með allt öðrum hætti í þætti Eddu Falak. Þar lýsti hún Arnari sem ofbeld­is­manni. Hún sagði að and­rúms­loftið í pott­inum hefði breyst á stutt­um tíma. Áður en hún vissi af hafi þeir all­ir byrjað að snerta hana og þukla á henni. Hún seg­ir þá hafa farið yfir mörk­in og yfir mörk allra sem voru sam­an í pott­in­um. Þetta hafi orðið til þess að Arnar hafi farið upp úr pott­inum í fússi.

„Það sem ger­ist er að hann fer upp úr pott­in­um fyrst. Hon­um er bara ofboðið og hann fer,“ sagði Vítalía. Í kjöl­farið fór hún upp úr pott­in­um og ræðir við hann. Hún seg­ir hann ekki hafa sagt neitt við vini sína og álasað henni fyr­ir að hafa ekki sagt neitt við þegar þeir fóru að snerta hana.

„Þórður braut á mér“
Lög­reglu­skýrslan sem Arnar gaf ótil­kvaddur. Þar sagði hann Vítalíu hafa reynt fjár­kúgun.

Í lög­reglu­skýrslu seinna bætti hún í lýs­ing­una og sagði að þeir hefðu allir sett fingur í rass­inn á henni.  Arnar sagði aftur á móti í lög­reglu­skýrslu sem hann gaf ótil­kvaddur 15. mars 2022, að ekk­ert hefði gerst í pott­inum meðan hann sá til.Í skýrsl­unni sem hann gaf lýsti hann Vítalíu sem hinu versta kvendi og taldi að hún væri að eyði­leggja líf sitt. Hann sagð­ist ótt­ast hana og vildi ekki kæra en taldi nauð­syn­legt að lög­reglan hefði þessar upp­lýs­ingar hjá sér. Í vitn­is­burð­inum segir Arnar bein­línis að Vítalía „reyndi fjár­kúgun“. Seinna átti eftir að koma annað hljóð í strokk­inn.

Í við­tali við Mannlíf, hálfu ári eftir við­talið við Eddu Falak, sagði Vítalía að það hafi verið  Þórður Már sem braut á henni, manna mest. „Þórður braut á mér undir fjórum laga­greinum. Hann læsti mig inni, það er svona stórt hlið við sum­ar­bú­stað­inn og ég vildi keyra í burtu en Þórður neit­aði að opna hliðið en hann á sum­ar­bú­stað­inn. Hann er svo að dreifa sögu­sögnum af mér úti í bæ, að við Arnar séum byrjuð saman aftur og fleira sem er bara bull. Við Arnar erum bara vinir, tölum saman annað slagið en hann er líka vitni í máli mínu gegn hinum,“ sagði Vítalía í júní 2022.

Vítalía og Arnar í versl­un­ar­ferð löngu eftir allt uppá­mið. Mynd / Aðsend.

Þessi yfir­lýs­ing Vítalíu er merki­leg í því ljósi að fréttir höfðu birst af par­inu saman. Myndir voru teknar af þeim í verslun og víðar og sendar á fjöl­miðla. Flestum var ljóst að þarna bvar ekki aðeins vin­átta á ferð. Konan sem sak­aði ásta­mann sinn um að hafa beitt hana ofbeldi var enn og aftur komin í faðm hans.

Seinna í við­tal­inu við Eddu lýs­ti Vítalía því þegar hún fór með Arnari í golf­ferð­ina á Hótel Hamar í Borg­ar­nesi. Í ferð­inni hafi ann­ar karl­maður, Logi Bergmann, brotið á henni.

„Það er labbað inn á okk­ur í þess­ari golf­ferð,“ seg­ir hún og lýsti því svo að Arnar hafi viljað tryggja þögn Loga með því að fá hann aftur inn í her­bergið.

„Þá er í raun bara verið að selja mig út, eins og ég sé vænd­is­kona,“ seg­ir hún. „Það er bara boðið þess­um ein­stak­ling sem labb­ar inn á okk­ur að snerta mig óvið­eig­andi. Að við séum öll ber sam­an. Hann dreg­ur spil úr ein­hverju kyn­ferðis­leikja­spili, ein­hverja svona mönn­um sem á að gera, og þá á ég bara að fara sjúga typpið á mann­in­um. Og hann að fara niður á mig. Og þetta er gert svo að hann haldi þögn­inni,“ seg­ir Vitaliya.

„Ég horfi fram­an í hann þegar vin­ur hans er að fara niður á mig og ég á að fara niður á hann, ég horfi fram­an í aug­um á hon­um og ég er við það að grenja,“ seg­ir hún. Seinna breytti hún frá­sögn sinni og sagði að Logi hefði ekk­ert gert sem hún ekki vildi. Sjálfur sagði Arnar að hún hafi sagt ósatt um það sem sneri að Loga.

„Af hverju ætti ég að kæra hann“

Vítalía seg­ir að hún og Arnar hafi verið í ástar­sam­bandi í um sex­tán mán­uði. Á þeim tíma hafi hann beitt hana and­legu of­beldi og reynt að stjórna lífi henn­ar, þrátt fyr­ir að hann væri kvænt­ur ann­arri konu. Hann bað hana að ljúga fyr­ir sig og lýs­ir Vítalía því hvernig hún hafi gert allt sem hann bað hana um því hún væri svo ást­fang­in af hon­um. Þessi frá­sögn er athygl­is­verð fyrir þær sakir að Arnar segir blákalt í leyn­isím­tali Loga, skömmu síðar, að hann hafi aldrei verið með henni.

Vítalía seg­ir að þegar fólk spyrji hana hvort hún ætli að leita rétt­ar síns vegna þess sem gerð­ist í sum­ar­bú­staðnum seg­ist hún ekki ætla að kæra mann­inn sem hún var í ástar­sam­bandi með.

„Af hverju ætti ég að kæra hann. Hann var eini sem mátti vera með mér. Ég vildi vera með hon­um. Ég vildi ekki vera með þér, þér eða þér,“ seg­ir Vítalía í þætti Eddu Falak. Í þessu sam­hengi blasir við að Vítalía hefði auð­veld­lega getað sleppt þvi að biðja Þórð að sýna sér bústað­inn eða draga alla með sér í pott­inn.

Gísli Marteinn.

Fjöldi fólks upp­hóf Eddu fyrir við­talið. Þeirra á meðal er Gísli Marteinn Bald­urs­son sjón­varps­maður sem taldi að Edda væri einn fremsti rann­sókna­blaða­maður Íslands. Hún var aufúsu­gestur í þætti hans, Vikunni.

Menn­irnir fjórir sem Vítalía bar sökum voru for­dæmdir af lang­flestum. Fjöl­miðla­fárið var í lík­ingu við það sem gerð­ist í Lúk­asar­mál­inu fræga. Ólafur Þ. Harð­ar­son, pró­fessor í stjórn­mála­fræði, taldi í miðju mold­rok­inu að málið myndi verða Sjálf­stæð­is­flokknum erfitt vegna þess að fimm­menn­ing­arnir væru flestir með tengsl við flokk­inn.

„Aug­ljós­lega hjálpar þetta ekki flokknum,“ segir Ólafur. sem var þeirrar skoð­unar að hneyksl­is­málið muni skaða Sjálf­stæð­is­flokk­inn til lengri tíma, líkt og Klaust­urs­málið gerði hjá Mið­flokknum. Óljóst er hvaða speki liggur að baki þessu áliti Ólafs sem taldi að málin tvö ættu það sam­eig­in­legt að meint niðr­andi fram­koma gagn­vart konum hefði vakið reiði almenn­ings.

„Kannski átti Klaust­urs­málið þátt í fylg­is­hruni Mið­flokks­ins, þó margar aðrar skýr­ingar séu hugs­an­legar. Spurn­ingin er hvort málið hefur áhrif á ein­hverja stuðn­ings­menn Sjálf­stæð­is­flokks. Viðhorf þeirra eru ekki endi­lega þau sömu og við­horf stuðn­ings­manna ann­arra flokka,“ segir hann.

Kolbrún Berg­þórs­dóttir, leið­ara­höf­undur Frétta­blaðs­ins, var for­spá þegar hún 5. nóv­em­ber 2021, skömmu áður en þetta mál sprakk út opin­ber­lega, skrif­aði harð­orðan leið­ara um norna­veiðar. Leiðari hennar ber yfir­skrift­ina Dóm­stóll­inn.

„Hægt er að benda á hvern sem er og saka hann um alls konar hluti“

Kolbrún segir að  það ætti að vera til marks um heil­brigt hug­ar­far að hafa þá skoõun að í öllum meg­in­at­riðum eigi ein­stak­lingar rétt á öðru tækif­ari i lif­inu brjóti þeir af sér. Þessi hugs­un­ar­háttur eigi hins vegar ekki alveg upp á pall­borðið í sam­tíma okkar.
„Metoo-bylt­ingin var þörf en eins og iðu­lega ger­ist i bylt­ingum pá hafa eft­ir­köst hennar orðið alvar­leg og ofsa­fengin og kostað mann­fórnir,“ skrifar Kolbrún.

Kolbrún Berg­þórs­dóttir

Hún segir að ekki sé ætl­unin að fjalla um ein­stök mál heldur ein­ungis verið að nefna það aug­ljósa, hversu stjórn­laus umræðan er orðin þegar hægt er að benda á hvern sem er og saka hann um alls konar hluti og dæma við­kom­andi sekan vegna orðróms, med til­heyr­andi æru­missi og jafn­vel atvinnu­missi. Viljum við lifa i slíku sak­bend­ing­ar­þjóð­fé­lagi?“ spyr Kolbrún og kemst að þeirri nið­ur­stöðu að stærstur hluti þjóð­ar­innar vilji það örugg­lega ekki og viti mæta­vel að stjórn­laus ref­sigleði sé ekki ein­kenni á sið­uồu sam­fé­lagi.

Fordæmir RÚV

Sigurður G. Guð­jóns­son lög­maður tók skýra afstöðu gegn Vítalíu og for­dæmdi Rík­is­út­varpið fyrir frétta­flutn­ing af mál­inu.

„Frétta­stofa RÚV hefur á ein­hver óskilj­an­legan hátt fengið þá ímynd að vera traust frétta­stofa; segja fréttir sem byggj­ast á gildum heim­ildum við­ur­kenndrar blaða- og frétta­mennsku. Svo er alls ekki. Þar skiptir sann­leik­ur­inn litlu falli hann ekki að sög­unni sem segja á. Þess vegna er ekki haft fyrir því að skoða báðar hliðar mála, ef koma má höggi á þá eða þær mann­eskjur sem taldar eru standa höllum fæti þjóð­fé­lags­lega vegna ein­hvers konar ásak­ana,“ skrif­aði Sigurður á Facebook.

Sigurður G. Guð­jóns­son

Honum finnst eitt­hvað bogið við frétta­flutn­ing RÚV, en í færslu sinni byrjar hann á að ræða starfs­lok Eggerts Þórs Krist­ó­fers­sonar for­stjóra Festis, en það mál og mál Vítalíu hafa verið tengd saman. Sigurði finnst það sér­stakt.

„Það sem vakti hins vegar athygli við frétt­ina var hvernig frétta­stof­unni tókst að þvæla nafni þjóð­þekktrar mann­eskju í frétt­ina, og í besta falli óljósum og marg­breyttum frá­sögnum hennar af meintum kyn­ferð­is­brotum. Við þá umfjöllun voru not­aðar myndir af tveimur öðrum mann­eskjum sem eiga hlut í vinnu­veit­and­anum. Mann­eskjan hefur borið sakir á þessar tvær mann­eskjur og fleiri þar á meðal ást­mann­eskju sína,“ skrifar Sigurður G. og vitnar til brös­ugra sam­skipta Arnars og Vítalíu.

„Mann­eskja kom fyrst fram með ásak­anir sínar á sam­fé­lags­miðlum í októ­ber 2021, þegar sam­band hennar og ást­mann­eskj­unnar hafði súrnað. Síðan dró mann­eskjan allt til baka gagn­vart ást­mann­eskj­unni og þau voru sem eitt í atlögum sínum að þremur mann­eskjum og fjöl­skyldum þeirra,“ skrifar lög­mað­ur­inn og  segir að það væri verð­ugt verk­efni alvöru fjöl­mið­ils að reyna að að fá ein­hvern botn í frá­sagnir mann­eskj­unnar og ást­mann­eskj­unnar en ekki láta hafa sig að fíflum umfram það sem orðið er“.

Afleiðingar Vítalíumála

Hvernig sem fólk veltir mál­unum fyrir sér þá liggur fyrir að ekki stendur steinn yfir steini í frá­sögnum Vítalíu og Arnars. Arnar full­yrti að Vítalía hefði spunnið upp frá­sagnir úr Borg­ar­nesi og Skorra­dal en sneri síðan öllu á hvolf og sagð­ist standa með þeim sann­leika að Vítalía hefði þurft að þola brot í heita pott­inum í Skorra­dal.

Allir sem komu við sögu í Vítal­íu­mál­unum tveimur glíma við slæmar afleið­ingar. En þær eru mis­al­var­legar.

Ari Edwald hefur um langt ára­bil setið við stjórn­völ­inn i stór­fyr­ir­tækjum á borð við MS, fjöl­miðl­aris­anum 365 og Ísey. Hann var neyddur til að víkja úr starfi sínu eftir að ásak­an­irnar komu upp. Við honum blasti mann­orðs­missir og atvinnu­leysi. Hann starfar nú sem lög­maður og ráð­gjafi.

Logi Bergmann Eiðsson var um ára­tuga­skeið verið einn vin­sæl­asti sjón­varps­maður lands­ins. Ásakanir Vítalíu urðu til þess að hann var rek­inn úr starfi sínu hjá Árvakri, útgáfu­fé­lagi Morg­un­blaðs­ins. Hann lýsti því sjálfur að önnur og alvar­legri afleið­ing var sú að hann missti mann­orð sitt. Logi hefur síðan fengið íhlaupa­verk­efni svo sem hjá Samtökum í sjáv­ar­út­vegi. Þá stjórnar hann hlað­varpi sem fjallar um golf.  Hann er nú búsettur í Washington ásamt eig­in­konu sinni, Svan­hildi Hólm Vals­dóttur, sendi­herra Íslands í Banda­ríkj­unum.

Hregg­viður Jónsson vék sæti úr stjórn Veritas, fyr­ir­tækja­sam­stæðu sinnar, vegna máls­ins. Hregg­viður er stór­eigna­maður og málið hefur ekki áhrif á efna­hag hans. Mannorð hans stóð aftur á móti laskað eftir.

Þórður Már Jóhann­es­son vék sem stjórn­ar­for­maður í Festi eftir þrýst­ing stórra hlut­hafa, einkum líf­eyr­is­sjóða. Málið hefur ekki áhrif á efna­hag hans en mann­orðið var laskað eftir ásak­anir Vítalíu.

Arnar Grant var rek­inn frá Wold Class þar sem hann var einka­þjálf­ari. Hann missti samn­ing vegna orku­drykkj­ar­ins Hleðslu. Hjóna­band Arnars gaf sig vegna ást­ar­sam­bands­ins við Vítalíu. Hann starfar sem einka­þjálf­ari í dag og býr í Voga­byggð. Hermt er að Vítalía búi með honum þar en það er óstað­fest. Vítalía forð­að­ist að svara þeirri spurn­ingu þegar Mannlíf spurði hana.

Vítalía Lazareva missti vinnu sína í lyfja­búð eftir að upp kom að hún hefði flett upp í sjúkra­skrám í leyf­is­leysi. Málið fór ekki fyrir dóm. Hún hefur und­an­farin miss­eri búið með Arnari Grant. Ekki liggur fyrir hvort sú sam­búð sé að stað­aldri.

Margir undr­ast að fjár­kúg­un­ar­málið hafi ekki farið fyrir dóm og menn­irnir hreins­aðir af ásök­unum sem fæstar virð­ast stand­ast skoðun. Sú ákvörðun lög­reglu að vísa Potta­mál­inu frá er skýr vís­bend­ing um að mis­ræmi í frá­sögn Vítalíu og að dóms­mál myndi aldrei leiða til sak­fellis. Eftir allt fárið stendur eftir að mála­til­bún­að­ur­inn stenst enga skoðun. Þá er ill­skilj­an­legt af hverju horfið var frá lög­sókn á hendur par­inu vegna til­rauna þess til að kreista út allt að 300 millj­ónum króna frá mönn­unum þremur í Skorra­dal. Eitruð ást, upp­spuni og svik hafa kostað mann­orðs­morð.

Fram­ganga fjöl­miðla í mál­inu er svo umhugs­un­ar­efni. Þegar á dag­inn kemur að það er maðkur í mys­unni og upp­spuni er rót máls­ins, þá líta flestir undan og láta ógert að leið­rétta ófögn­uð­inn. Þetta er gömul saga og ný.

Þetta er þriðja og loka­greinin í úttekt á atburðum í Borg­ar­nesi og í Skorra­dal. Fyrri greinar má sjá hér og hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins