„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Steypubílstjórinn sem banaði Ibrahim hlaut skilorðsbundinn dóm – Sýndi af sér stórfellt gáleysi

Steypubílstjórinn sem banaði Ibrahim hlaut skilorðsbundinn dóm – Sýndi af sér stórfellt gáleysi
Banaslysið átti sér stað á Ásvöllum

Steypu­bíl­stjór­inn sem varð hinum átta ára Ibrahim Shah að bana á Völlunum í Hafn­ar­firði í októ­ber 2023, var dæmdur í tveggja mán­aða skil­orðs­bundið fang­elsi, vegna slyss­ins. Þótti hann hafa sýnt af sér stór­fellt gáleysi er hann ók steypu­bíl á pilt­inn.

Karl­maður á sjö­tugs­aldri sem ók á hinn átta ára Ibrahim Shah í Hafn­ar­firði í októ­ber 2023 hefur nú verið dæmdur í tveggja mán­aða skil­orðs­bundið fang­elsis og til að greiða for­eldrum hans tæpar níu millj­ónir í bænur. RÚV segir frá dóm­inum.

Fram kemur í frétt­inni að Ibrahim Shah hafi lát­ist sam­stund­ist er hann varð fyrir steypu­bílnum við íþrótta­svæði Hauka og Ásvalla­laug á Völlunum í Hafn­ar­firði.

Var steypu­bílnum ekið eftir gang­stíg og svo beygt inn í inn­keyrslu og þaðan keyrt við­stöðu­laust áfram án þess að stefnu­ljós væru gefin. Sést dreng­ur­inn í mynd­bands­upp­töku af atvik­inu, virð­ast reyna að beygja frá svo bíll­inn lendi ekki á honum en allt kom fyrir ekki.

Að sögn dóm­ara við Hér­aðs­dóm Reykja­ness, sýndi mað­ur­inn af sér stór­fellt gáleysi en sam­kvæmt upp­tökum af slysin sem og svið­setn­ingu tækni­deildar lög­regl­unnar, var Ibrahim sýni­legur í hlið­ar­speglum steypu­bíls­ins í 34 sek­úndur áður en keyrt var á dreng­inn. Kemur einnig fram að þó hann hafi horfið úr sjón­svið­inu í allt að þrjár sek­úndur fyrir slysið hafi dreng­ur­inn birst aftur í að minnsta kosti tvær sek­úndur áður en slysið varð. Samkvæmt RÚV gerði öku­mað­ur­inn athuga­semd við svið­setn­ing­una en dóm­ar­inn svar­aði því til að þó svo að miðað væri við lýs­ingu hans, hefði mað­ur­inn átt að geta séð pilt­inn áður en hann keyrði á hann.

Steypu­bíl­stjór­inn sagð­ist hafa gætt eðli­legrar var­úðar en að tak­markað útsýni væri úr bílnum til hægr og að dæmi væri um að hann hafi týnt heilli bif­reið á þeirri hlið. Dómarinn sagði það einmitt stað­festa að enn meiri ástæða hefði verið fyrir hann en ann­ars, að gæta sér­stak­lega að umferð hægra megin við bíl­inn er hann keyrði inn á bíla­stæðið.

„Af ofan­rit­uðu má ráða að ákærði hefði með þeirri aðgæslu sem honum bar að sýna getað séð dreng­inn áður en bif­reiðin lenti á honum,“ segir í dóm­inum. „Dómurinn telur því hægt að full­yrða, sér­stak­lega með vísan til þess sem sjá má á fyrr­greindri mynd­bands­upp­töku, að ákærði hafi ekið ógæti­lega og ekki gætt að því að ganga úr skugga um að hann gæti ekið inn á bif­reiða­stæðið án hættu fyrir gang­andi eða hjólandi umferð.“

Í dómnum er and­lát Ibrahims rakið til stór­fellds gáleysis bíl­stjór­ans en við ákvörðun refs­ingar var tekið mið af því hversu alvar­legar afleið­ing­arnar voru fyrir pilt­inn en aukreit­ist því að slysið hafði veru­lega slæm áhrif á and­lega líðan steypu­bíl­stjór­ans.

Var mað­ur­inn dæmdur til tveggja mán­aða skil­orðs­bund­inna refs­ingar eins og áður segir en refs­ingin fellur niður ef hann heldur skil­orði í tvö ár. Var hann einnig dæmdur til að greiða hvoru for­eldri Ibrahims litla um sig fjórar millj­ónir í bætur og föð­urnum 944 þús­und krónur í útfar­ar­kostnað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

#Banaslys

Konan sem lést í banaslysinu á Vesturlandsvegi talin hafa sofnað undir stýri
Innlent#Banaslys

Konan sem lést í banaslys­inu á Vest­ur­lands­vegi talin hafa sofnað undir stýri

Kona á sjö­tugs­aldri, sem lést í bílslysi norðan við Akranes í des­em­ber í fyrra, var senni­lega sof­andi eða með skerta með­vit­und áður en slysið varð, sam­kvæmt Rann­sókn­ar­nefnd sam­gönguslysa. Á þriðja tím­anum eftir hádegi fimmtu­dag­inn 13. des­em­ber á síð­asta ári, varð banaslysið á Vest­ur­lands­vegi, stuttu frá vega­mót­unum við Skipa­nes­veg norðan Akraness. Toyota Yaris var ekki yfir á vinstri veg­ar­helm­ing þar sem...
Banaslys á Sæbraut í nótt: „Framkoma sumra í nótt dapurleg“
Innlent#Banaslys

Banaslys á Sæbraut í nótt: „Framkoma sumra í nótt dap­ur­leg“

Banaslys varð á Sæbraut í Reykja­vík í nótt, en þar var fólks­bif­reið ekið norður Sæbraut, á milli Súð­ar­vogs og Klepps­mýr­ar­vegar, og á gang­andi veg­far­anda sem var á leið yfir göt­una til aust­urs. Til­kynn­ing um slysið barst tíu mín­útum eftir mið­nætti og héldu við­bragðs­að­ilar strax á vett­vang, en því miður var veg­far­and­inn lát­inn er að var komið. Lokað var fyrir umferð...
Kínverskur lögreglumaður lést í bílslysinu við Fossá – Eiginkonan flutt á sjúkrahús
Innlent#Banaslys

Kín­verskur lög­reglu­maður lést í bílslys­inu við Fossá – Eig­in­konan flutt á sjúkra­hús

Maðurinn sem lést í bílslys­inu við Fossá á Skaga í gær er lög­reglu­maður frá Hong Kong. Eig­in­kona manns­ins er einnig lög­reglu­maður en hún með honum í bílnum. Vísir segir frá mál­inu og vitnar í kín­verska frétta­mið­il­inn South China morn­ing post en þar segir að hjónin hafi verið í fríi hér á landi og hafi tekið bíl á leigu svo þau...
Karlmaður á fertugsaldri lést í vinnuslysi í Urriðaholti
Innlent

Karl­maður á fer­tugs­aldri lést í vinnu­slysi í Urriða­holti

Banaslys varð á bygg­ing­ar­svæði í Urriða­holti í Garðabæ í gær. Í til­kynn­ingu frá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu segir að karl­maður á fer­tugs­aldri hafi lát­ist í vinnu­slysi á bygg­ing­ar­svæði í Urriða­holti í Garðabæ í gær. Um er að ræða erlendan rík­is­borg­ara en ekki er hægt að gefa upp nafn hans að svo stöddu. Í til­kynn­ingu lög­regl­unnar segir einnig að lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu...
Tólf ára stúlka hrapaði til bana á hóteli á Spáni – Fjölskyldan svaf í næsta herbergi
Heimur#Banaslys

Tólf ára stúlka hrap­aði til bana á hót­eli á Spáni – Fjöl­skyldan svaf í næsta her­bergi

Tólf ára stúlka lést er hún féll tæpa 20 metra fram af svölum á hót­eli á Majorca, á meðan fjöl­skylda hennar svaf í næsta her­bergi. Stúlkan, sem var frá Írlandi, lést um klukkan hálf sjö í morgun, þegar hún féll fram af svölu á þriggja stjörnu fjöl­skyldu­hót­el­inu Club Mac í Puerto de Alcudia á norð­austur Majorca. Ætt­ingjar hennar eru sagðir...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins