„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Nágrannar vilja bola Karli út: „Hringja í lögregluna af því að ég hef verið að ryksuga“

Nágrannar vilja bola Karli út: „Hringja í lögregluna af því að ég hef verið að ryksuga“
Reykja­nes­bær

Leigj­andi sem GGG Fjár­fest­ingar hf. hefur reynt að koma úr leigu­í­búð sinni æi Keflavík með hjálp dóm­stóla, segir ekk­ert hæft í ásök­unum nágranna hans, en þau hafa sakað hann um stöðugt ónæði og fíkni­efna­neyslu.

DV sagði frá því nýverið að þann 18. des­em­ber síð­ast­lið­inn hefði Hér­aðs­dómur Reykja­ness úrskurðað um aðfar­ar­beiðni GGG Fjár­fest­inga hf. á hendur Gunnari Þórð­ars­syni tón­list­ar­manni, eig­in­konu hans, Toby Sigrúnu Herman, fjöl­skyldu- og náms­ráð­gjafa og syni þeirra, Karli Brooke Herman Gunn­ars­syni, sem leigir íbúð for­eldra sinna í Reykja­nesbæ. Krafa GGG Fjár­fest­inga sner­ist um að fjöl­skyldan yrði borin út úr íbúð á neðri hæð tví­býlis en leigj­endur félags­ins leigja íbúð­ina á efri hæð­inni.

Hjónin búa ekki sjálf ekki í íbúð­inni en sonur þeirra, Karl Brooke Herman, býr þar en fjöl­skyldan á efri hæð húss­ins, sem er í eigu GGG Fjár­fest­inga, hafa kvartað mikið undan sam­býl­inu við Karl og sakað hann um gegnd­ar­laust ónæði, drykkju­læti, stöðugan gesta­gang og fíkni­efna­neyslu. Þessu hafna Gunnar og Toby og segja leigj­endur Karls leggja fæð á hann sem valdi til­hæfu­lausum heim­sóknum lög­regl­unnar til hans.

Aðfar­ar­beiðni GGG Fjár­fest­inga var hafnað af Hér­aðs­dómi Reykja­ness meðal ann­ars á þeim for­sendum að leigj­and­anum, Karli Brooke, hafi ekki borist skrif­leg við­vörun frá eig­endum efri hæð­ar­innar, heldur hafi slík við­vörun aðeins verið send á eig­end­urna. Þá var því einnig haldið fram í nið­ur­stöðu dóms­ins að gögnin sem lögð voru fram við dóm­inn um meint ónæði leigj­and­ans séu ófull­nægj­andi. Lögmenn fyr­ir­tæk­is­ins hafa sagt að mál­inu sé ekki lokið.

„Nei, nei, en ég á nú samt heima hérna.“

Í sam­tali við Mannlíf segir Karl Brooke ásak­anir nágrann­anna algjör­lega úr lausu lofti gripnar. „Ég veit ekki hvað maður á að segja, þetta er bara fárán­legt,“ segir Karl hlæj­andi við Manníf. „Þau hafa nú sagst ætla að koma mér í burtu sama hvernig þau fari að því. Og þetta að þau hafa verið að hringja í lög­regl­una af því að ég hef verið að ryk­suga og hlusta á tón­list, ég sé ekki að það ætti að flokk­ast undir áreiti af minni hálfu.“

Aðspurður hvort hann hafi verið að ryk­suga á nótt­unni eða hlusta á tón­list svar­aði Karl: „Nei, nei, en ég á nú samt heima hérna.“

En hefur Karl litlar áhyggjur af áfram­hald­andi til­raunum GGG Fjár­fest­inga til að koma honum út? „Já, hvað heita þeir, Geggjað góðir gaurar?“ svar­aði Karl hlæj­andi og hélt áfram: „Já, þetta er bara fárán­legt. Um dag­inn var vin­kona mín að labba héðan út og þau [fólkið á efri hæð­inni] virt­ust vera að fara út á sama tíma eða ein­hver þarna með lítið barn með sér.  En þegar þau eru að fara út þá rykkja þau barn­inu inn og loka. Ég meina hver er að halda þessum börnum í gísl­ingu?“ Bætti Karl við: „Ég vana­lega sé þetta fólk ekk­ert nema bara úti í glugga að taka myndir af mér eitt­hvað. Það ætti nú að vera brot á mínu einka­lífi.“

Að lokum spurði Mannlíf Karl út í þær stað­hæf­ingar að börnin á efri hæð­inni séu hrædd við að fara út vegna hans. „Já, ég veit ekki af hverju það ætti að vera mér að kenna, ekki er ég að hrella þau.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins