„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Guðbjörn Reynir er fallinn frá

Guðbjörn Reynir er fallinn frá
Kerti Mynd: Manoj Dewangan – pexels.com

Guðbjörn Reynir Guð­steins­son, fyrr­ver­andi skóla­stjóri lést á Hrafn­istu í Hafn­ar­firði mið­viku­dag­inn 5. febr­úar. Hann var 91 árs.

Það var 10. maí 1933 sem Reynir fædd­ist í Vest­manna­eyjum. Faðir hans var Guð­steinn Ingvar Þor­björns­son skip­stjóri og móðir hans var Guðrún Margrét Guð­munds­dóttir hús­freyja.

Árið 1957 lauk Reynir kenn­ara- og söng­kenn­ara­prófi frá Kenn­ara­skóla Íslands, BA-prófi í upp­eldis- og sál­ar­fræði frá HÍ árið 1983 og árið 1996 prófi í barna- og ung­linga­ráð­gjöf frá Kenn­ara­há­skól­anum í Kaup­manna­höfn.

Frá 1957 til 1958 kenndi Reynir við Hlíð­ar­dals­skóla en tók við skóla­stjóra­stöðu við Barna­skóla S.D.A. í Reykja­vík frá 1958 til 1962. Þá var hann skóla­stjóri Barna­skóla S.D.A. í Vest­manna­eyjum frá 1962 til 1966 og skóla­stjóri Barna­skól­ans í Vest­manna­eyjum frá 1966 til 1970. Frá 1979 kenndi hann við Snæ­lands­skóla í Kópavogi en ári seinna varð hann yfir­kenn­ari skól­ans og skóla­stjóri hans frá 1984. Haustið 2000 fór Reynir á eft­ir­laun en vann eftir það til árs­ins 2012 fyrir Skóla­skrif­stofu Kópavogs við grein­ingar og ráð­gjöf vegna les­blindra nem­enda í grunn­skólum Kópavogs.

Samkvæmt mbl.is sem sagði frá and­láti hans, segir að Reynir hafi verið virkur í félags­starfi í Vest­manna­eyjum, í starfi safn­aðar aðventista, hjá Alþýðu­flokk­unum, íþrótta­hreyf­ing­unni og í söng­fé­lögum. Þá var hann bæj­ar­full­trúi 1970-1978 og for­seti bæj­ar­stjórnar 1977-1978. Reynir var for­maður und­ir­bún­ings­nefndar fyrir stofnun fram­halds­skóla í Vest­manna­eyrjum en eftir að hann flutti upp á land var hann meðal ann­ars for­maður Kenn­ara­fé­lags KSK til fjölda ára, sat í stjórn Kenn­ara­sam­bands Íslands 1982 til 1984 og í stjórn Rauða­kross­deildar Kópavogs 2000-2008.

Þá var Reynir einn af heið­urs­fé­lögum Karla­kórs Reykja­víkur, þar sem hann sat lengi í stjórn, og var for­maður rit­nefndar um sögu kórs­ins. Eftir Reyni liggja greinar um ýmis­konar efni og þýdd og frumort ljóð við ýmis lög.

Fyrr­ver­andi eig­in­kona Reynis var María Júlía Helga­dóttir en þau skildu. Saman áttu þau börnin Maríu Björk, Helga Ingvar og Guðmund Víði. Seinn eig­in­kona hans er Helga Guð­munds­dóttir en börn hennar eru Guð­mundur Ibsen Brynjars­son og Brynja Sif Ibsen Brynjars­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins