„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Kolbrún: „Höfum séð það hatur og heift sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur beint til Flokks fólksins“

Kolbrún: „Höfum séð það hatur og heift sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur beint til Flokks fólksins“

Sál­fræð­ing­ur­inn Kolbrún Bald­urs­dóttur, fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúa Flokks fólks­ins, vill ekki að flokk­ur­inn stofni til meiri­hluta­sam­starfs við Sjálf­stæð­is­flokk­inn í borg­ar­stjórn, en um þetta tjáir Kolbrún sig um á Facebook-síðu sinni; hún er í leyfi sem borg­ar­full­trúi – situr nú á þingi:

Inga Sæland for­maður Flokks fólks­ins.

„Auðvitað fagnar Flokkur fólks­ins því að fá tæki­færi til að kom­ast í meiri­hluta og þannig fá meiri mögu­leika á að koma sínum bar­áttu­málum lengra og spyrna fótum við ýmsu í borg­inni sem er miður og gengur ekki nógu vel. Mistökin hafa verið mörg síð­ustu ár og sum alger­lega óaft­ur­kræf sem er efni í langt mál.“

Kolbrún segir að það sé óhugur í henni með það að „ganga til sam­starfs við Sjálf­stæð­is­flokk­inn núna þegar við höfum séð það hatur og heift sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, með Morg­un­blaðið sem vopn hefur beint til Flokks fólks­ins og for­ystu­fólks hans. Annað eins hefur varla sést.“

Valhöll.

Hún nefnir einnig að „Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er auð­vitað sami flokk­ur­inn hvar sem hann er, og það er snúið fyrir flokk eins og Flokk fólks­ins sem hefur mátt þola ófræg­ing­ar­her­ferð Sjálf­stæð­is­flokks­ins að eiga síðan að vinna náið með honum. En þetta er mín upp­lifun. Ég hefði ekki sagt þetta fyrir fáeinum vikum því ég hef alltaf átt gott sam­starf við Sjálf­stæð­is­menn í borg­inni í þau tæp 7 ár sem ég var í minni­hluta borg­ar­stjórnar. En núna er bara staðan breytt. Hér er ekki um að ræða ein­staka per­sónur svo það sé sagt.“

Einar Þor­steins­son borg­ar­stjóri Reykja­víkur

Kolbrúnu finnst vel lík­legt að „Einar hafi fengið skila­boð um að losa sig út úr meiri­hlut­anum og þarf ekki frekar að fara í útskýr­ingar á því. Þetta varðar engin sér­stök eða ein­stök mál í borg­inni sem þau hafa ekki náð saman um að mínu mati, þvert á móti hefur Einar ávallt verið mjög á sömu nótum og meiri­hlut­inn þegar hann talar opin­ber­lega í eig­in­lega flest öllum málum. Hann hefur t.d. ávallt verið sam­mála þessu fjár­austri til Þjónustu- og nýsköp­un­ar­sviðs án þess að sjá veru­legan ávinn­ing í sam­ræmi við fjár­út­lát þess sviðs. Hann virð­ist hafa lang oft­ast verið mjög sam­mála hinum í meiri­hlut­anum.“

Segir að end­ingu:

„En þessu sögðu fagna ég vissu­lega þessu upp­broti í borg­inni og hvernig sem mál þró­ast er lík­legt að loks­ins kom­ist Flokkur fólks­ins í borg­inni í meiri­hluta sem er sann­ar­lega tíma­bært.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins