„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Uppgjör Einars: „Ég var sakaður um að tala ekki fyr­ir stefnu meiri­hlut­ans“

Uppgjör Einars: „Ég var sakaður um að tala ekki fyr­ir stefnu meiri­hlut­ans“
Einar Þor­steins­son borg­ar­stjóri

Ein­ar Þor­steins­son borg­ar­stjóri fór yfir erfitt sam­starf meiri­hlut­ans í borg­inni á kjör­tíma­bil­inu í þætt­inum á Sprengisandi á útvarps­stöð­inni Bylgj­unni.

Sagðist Einar vera sátt­ur við þá ákvörðun­ sína að slíta sam­starf­inu, þótt út­lit sé fyr­ir að hann verði ekki sjálfur með í nýj­um meiri­hluta.

Í við­tal­inu sagði Einar að eft­ir sveita­stjórna­kosn­ing­arn­ar hafi hon­um hugn­ast vel að mynda meiri­hluta sem væri frekar til hægri.

Sagði Einar að í meiri­hluta­sam­starf­inu hafi Fram­sókn­ mætt mestri and­stöðu frá Pír­öt­um í hús­næð­is­mál­um og Sam­fylk­ingu vegna hag­ræð­ing­ar­til­lagna í rekstr­inum. Einar sagði líka að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefði viljað beita fjöl­breytt­ari leiðum í leik­skóla­mál­um.

Hann nefnir að svo hafi farið að lok­um að um of hafi hrikt í bak­landi Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, vegna þess hvernig Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn fór fram í umræðu um flug­vall­ar­mál­in; þá hafi Sam­fylk­ing­in fyrst borið upp þá hug­mynd­ að slíta meiri­hlut­asam­starf­inu:

„Ég var sak­aður um að það að tala ekki fyr­ir stefnu meiri­hlut­ans og að þetta væri árás á Sam­fylk­ing­una,“ sagði Ein­ar og bætir því við að þá hafi runnið upp fyr­ir fram­sókn­arfólki að þeir kæm­ust hrein­lega ekki lengra í sín­um mál­um; varð það svo að Ein­ar sjálfur sleit sam­starf­inu síð­ast­liðið föstu­dags­kvöld og segir að nú séu allir að tala við alla varð­andi það að setja saman nýjan og starf­hæfan meiri­hluta í borg­inni:

„Ef vinstri flokk­arn­ir mynda fimm flokka meiri­hluta þá er það bara ein­fald­lega þannig,“ sagði Ein­ar sem vill ekki meina að það hafi verið mis­tök hjá honum að slíta meiri­hlut­anum: „Nei, alls ekki. Ég er mjög ánægður.“

Inga Sæland Mynd / Hallur Karlsson

Einar sagð­ist þó ekki bú­inn að af­skrifa það alveg að mynda nýjan meiri­hluta; sagði að góðir mögu­leik­ar væru fyr­ir Flokk fólks­ins til að láta til sín taka þrátt fyr­ir mögu­leg­an meiri­hluta með Sjálf­stæðis­flokkn­um, en Ingu Sæ­land, for­manni flokks­ins, hugn­ast ekki að koma Sjálf­stæð­is­flokknum til valda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins