„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Óvissa er um meirihluta í Reykjavík – Kristrún sögð hafa stöðvað samstarf við Sjálfstæðisflokkinn

Óvissa er um meirihluta í Reykjavík – Kristrún sögð hafa stöðvað samstarf við Sjálfstæðisflokkinn

Full­komin óvissa ríkir um nýjan mei­iri­hhluta í Reykja­vík eftir að Einar Þor­steins­son, borg­ar­stjóri og leið­togi Fram­sókn­ar­flokks­ins, stökk frá borði  gamla meiri­hlut­ans á föstu­dag­inn og boð­aði sam­starf við Sjálf­stæð­is­flokk­inn og Flokk fólks­ins. Umræddir flokkar fund­uðu um sam­starfið en þá kom á dag­inn að Flokkur fólks­ins var ekki með á nót­unum og afþakk­aði Einar. Fullyrt er í Morg­un­blað­inu að Kristrún Frosta­dóttir, for­maður Sam­fylk­ingar, hafi gripið inn í málin og stöðvað fyr­ir­hugað lið­hlaup Helgu Þórð­ar­dóttur, borg­ar­full­trúa Flokks fólks­ins. Andrés Magn­ús­son, blaða­maður Morg­un­blaðs­ins, skrifar um þetta frétta­skýr­ingu í blaðið. Rétt er að halda því til haga að hann er bróðir Kjartans Magn­ús­sonar, borg­ar­full­trúa Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og náinn sam­herji.

„bak­tjalda­makk og afskipti for­sæt­is­ráð­herra“

Í frétta­skýr­ingu Andrésar er fjallað um „bak­tjalda­makk og afskipti for­sæt­is­ráð­herra“ sem hafi gert út um myndun nýs meiri­hluta og leitt til þess glund­roða sem nú ríki í borg­inni.
Einar Þor­steins­son borg­ar­stjóri mætti í þátt­inn á Sprengisandi á Bylgj­unni á sunnu­dags­morg­unn þar sem hann sagði ekk­ert hæft í því að hann hafi staðið í plotti með það að mark­miði að stofna og leiða nýjan meiri­hluta með Sjálf­stæð­is­flokknum og Flokki fólks­ins. HAnn sagði mál­efna­legar ástæður vera að baki slit­un­unum og kvaðst vera til­bú­inn til að starfa í minni­hluta. Aðspurður um verk­efni dag­ins þá hafði hann ekki hug­mynd um hvað tæki við.

Andrés blaða­maður segir í frétta­skýr­ingu sinni að það hafi reynst að ná í borg­ar­full­trúa og þeir verið „ófá­an­legir til að láta neitt mark­vert hafa eftir sér“ enda verði staðan vart við­kvæm­ari.

Upp­haf­lega kom brestur í samt­arfið á þriðju­dag­inn þegar borg­ar­stjóri og flokkur hans studdu til­lögu sjálf­stæð­is­manna um breytt aðal­skipu­lag vegna Reykja­vík­ur­flug­vallar
og óbreytta starf­semi þar til 2040. Mogginn segir að þetta hafi fallið sam­starfs­flokk­unum svo þungt að Heiða Björg Hilm­is­dóttir, odd­viti Sam­fylk­ingar, hafi óskað eftir
fund­ar­hléi. Þremur dögum síðar ákvað Einar að slíta sam­starfainu. Andrés segir að þá hafi verið „full­reynt á að hann næði fram nokkrum þeim veiga­miklu breyt­ingum sem hann hefði heitið kjós­endum“. Lík­leg­asta skýr­ingin á frum­hlaupi Einars er sú að hann hafi ein­fald­lega farið á taugum þegar Gallup mældi fylgi hans við í þremur pró­sentum.

Eins og staðan er nú verður að telj­ast lík­leg­ast að Einar og flokkur hans lendi í minni­hluta með Sjálf­stæð­is­flokknum. Full­trúar sósa­í­a­lista og Vinstri grænna hafa hafnað Sjálf­stæð­is­flokknum og lýsa sig til­búna til að fara í sam­starf til vinstri. Í þessu sam­hengi má nefna að Gunnar Smári Egilsson, stofn­andi Sósilaista­flokks­ins hefur sagt opin­ber­lega að Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir sé ákjós­an­legur borg­ar­stjóri.

Sam­starfið til vinstri gæti leyst þá stjórn­kreppu sem nú ríkir. Aðrir mögu­leikar eru vart uppi á borðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins