„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Fyrrverandi útvarpsmaður BBC 1 fannst látinn í ánni Dart – Var dæmdur fyrir að eiga barnaníðsefni

Fyrrverandi útvarpsmaður BBC 1 fannst látinn í ánni Dart – Var dæmdur fyrir að eiga barnaníðsefni
M. Willis Mynd: Trausti Hafsteinsson

Fyrr­ver­andi útvarps­maður BBC Radio 1, Michael Willis, er lát­inn, 79 ára að aldri. Tilkynnt var um hvarf hans í des­em­ber en mán­uði síðar fannst lík hans í ánni Dart.

Michael Willis, sem einnig hafði starfað sem háskóla­kenn­ari, hafði breytt nafni sínu í David Evans eftir að hafa verið leystur úr fang­elsi eftir 18 mán­aða dóm. Lög­reglan sagði að hann hefði týnst í des­em­ber og að hann hafi síð­ast sést taka vatns­leigu­bíl [bát sem skutlar fólki gegn greiðslu] að brú þar sem snekkja hans lá við festar í Dartmouth, Devon.

Árið 2020 var Willis fang­els­aður fyrir að eiga ósæmi­legar myndir af börnum eftir að lög­reglan réðst inn á einka­snekkju hans. Hann var tek­inn með tæp­lega 500 við­bjóðs­legar myndir í tölvu­bún­aði sínum. Willis, sem gekk undir sviðsnafn­inu Steve Merike þegar hann var plötu­snúður, var útvarps­maður á BBC Radio One á átt­unda ára­tugnum. Hann var líka útvarps­maður á hinni frægu sjó­ræn­ingja­stöð Radio Caroline og starf­aði hjá Radio Trent á níunda ára­tugnum, þar sem hann starf­aði með sjón­varps­mann­inum Dale Winton heitnum.

Breska Land­helg­is­gæslan og RNLI (Royal National Lifeboat Institution) leit­uðu að Willis í Dart ánni er hann hvarf en án árang­urs. Hins vegar fannst lík hans þann 20. jan­úar, hálfa mílu niður ána. Dán­ar­dóm­stjór­inn gaf síðar upp nafnið David Evans, 79 ára, án þess að geta til um fyrri auð­kenni hans, sam­kvæmt Sun.

Dán­ar­dóm­stjóri Devon-svæð­is­ins, Alison Longhorn, sagði: „Aðstæð­urnar eru þær að David bjó í bátnum sem lá við festar í ánni Dart. Hvarf hans var til­kynnt til lög­reglu þar sem hann hafði ekki sést í nokkra daga. Lík fannst neðar í ánni nokkrum vikum síðar. Engar grun­sam­legar aðstæður eru fyrir hendi. Dán­ar­or­sök er ókunn.“

Mirror reyndi að hafa sam­band við fyrr­ver­andi eig­in­konu hans, Juliu en núver­andi eig­in­maður hennar svar­aði frétt­inni um lát Willis stutt og laggott: „Gott.“

Hlaut skilorðsbundinn dóm

Willis fékk skil­orðs­bund­inn dóm í Leicester Crown Court árið 2015. Hann flutti til Plymouth, þar sem hann bjó á bát sínum Appalachian Spring í Plymouth Yacht Haven. Willis neit­aði því að eiga 238 ósæmi­legar myndir í A-flokki af börnum á tölvum sínum – sem sýna þau verða fyrir kyn­ferð­is­of­beldi af hendi full­orðnum.

Hann neit­aði einnig að eiga 226 myndir í B-flokki. Willis ját­aði sig sekan um að hafa aðeins 10 myndir í væg­asta flokk­inum, C-flokki, á minnis­lykli. Lög­reglan réðst inn á snekkju hans aftur í ágúst 2017. Hann fór í vitn­is­stúk­una til að lýsa því yfir að sér fynd­ist sumar af alvar­legri mynd­unum „algjör­lega ógeðs­legar“.

En kvið­dóm­ur­inn frétti að hann hefði líka verið tek­inn með myndir í flokki A þegar hann var hand­tek­inn í Loughborough árið 2013. Willis við­ur­kenndi að hann not­aði hug­búnað til að deila skrám og til að finna ósæmi­legar myndir. En hann hélt því fram að hann hefði ekki hug­mynd um hvernig alvar­legri mynd­irnar birt­ust á far­tölvu hans, borð­tölvu og minnis­lykli.

Kvið­dómur vís­aði fljótt frá­sögn hans á bug og fann hann sekan með sam­hljóða dómum eftir tveggja daga rétt­ar­höld. Willis ját­aði í Leicester árið 2015 að hafa verið sekur um níu ákærur fyrir að hafa hlaðið niður ósæmi­legum myndum og kvik­myndum af börnum á árunum 2006 til 2013. Hann hafði sagt lög­reglu í við­tali að hann hefði verið „for­vit­inn vegna Jimmy Savile-máls­ins“ og vildi koma nið­ur­stöðum sínum á fram­færi við félags­fræð­ing.

Hann átti mynd­irnar á meðan hann var fram­bjóð­andi frjáls­lyndra demókrata til þings fyrir Loughborough í almennum kosn­ingum 2010, þar sem hann fékk nærri 10.000 atkvæði en tap­aði fyrir verð­andi mennta­mála­ráð­herra breska íhalds­flokks­ins, Nicky Morgan. Willis hélt einnig fyr­ir­lestra í 15 ár við New College Nott­ing­ham og Nott­ing­ham Trent auk þess að vera for­stöðu­maður (e. school governor) við fjölda skóla í Midlands-svæð­inu. Hann tók einnig þátt í ýmsum ráðum í Leicester-skíri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Stóra-Bretland

Ungur maður lést á Manchester-flugvelli eftir handtöku – Talinn hafa gleypt poka af kókaíni
HeimurStóra-Bretland

Ungur maður lést á Manchester-flug­velli eftir hand­töku – Talinn hafa gleypt poka af kóka­íni

Maður lést á flug­vell­inum í Manchester eftir að hafa gleypt kókaín sem var falið í nær­buxum hans. Fyrr í vik­unni er talið að yfir­menn landamæra­sveita hafi stöðvað mann­inn þegar hann var á leið í gegnum örygg­is­gæslu í flug­stöð 2 fyrir flug. Sagt er að hann hafi verið í haldi vegna meintra fíkni­efna­brota, en síðan „veiktst“ og lát­ist skömmu síðar. Heim­ildir...
Ungur starfsmaður frægs sjónvarpskokks fannst látinn: „Hans verður sárt saknað“
HeimurStóra-Bretland

Ungur starfs­maður frægs sjón­varps­kokks fannst lát­inn: „Hans verður sárt saknað“

„Mikið elsk­aður“ og „vel met­inn“ starfs­maður stjörnu­kokks­ins Rick Steins hefur fund­ist lát­inn inni í starfs­manna­hús­næði en fólk hafði haft áhyggjur af vel­ferð hans. Kokk­ur­inn ungi, sem var á þrí­tugs­aldri, lést fimmtu­dag­inn 13. febr­úar. Lög­reglan var kölluð að gisti­stað við Gren­ville Road í Padstow um klukkan átta að kvöldi. Lög­reglan var að fylgja eftir áhyggjum af vel­ferð unga manns­ins sem bjó...
Kona skotin til bana á Valentínusardaginn – Eiginmanni hennar leitað í Thames-ánni
HeimurStóra-Bretland

Kona skotin til bana á Val­ent­ínus­ar­dag­inn – Eig­in­manni hennar leitað í Thames-ánni

Hroll­vekj­andi mynd­bands­upp­tökur náðu augna­blik­inu er skot­hvellir heyrð­ust í Kent-sýslu í Suð­ur­hluta Englands, þegar kona lést í skotárás á Val­ent­ínus­ar­dag­inn. Lisa Smith hefur verið nefnd af lög­reglu sem konan sem lést 14. febr­úar á bíla­stæð­inu á Three Hor­ses­hoes-kránni í Knockholt, Kent, í atviki sem heima­menn segja að hafi skelft sam­fé­lagið. Fólk hefur komið á morð­vett­vang­inn til að heiðra hina 43 ára...
Bresk fegurðardrottning greindist með húðkrabbamein: „Haldið ykkur frá ljósabekkjum“
Heimur

Bresk feg­urð­ar­drottn­ing greind­ist með húð­krabba­mein: „Haldið ykkur frá ljósa­bekkjum“

Breskar feg­urð­ar­drottn­ingin Danielle Lloyd hefur verið greind með húð­krabba­mein. Fyrrum feg­urð­ar­sam­keppn­is­stjarnan, sjón­varps­konan, mód­elið og við­skipta­konan Danielle Lloyd hefur opin­berað að hún hafi verið greind með húð­krabba­mein. Hún var meyr þegar hún sagði aðdá­endum að hún væri „þrumu­lostin“ yfir frétt­unum, og þyrfti að fara í aðgerð. Í til­finn­inga­þrungnu mynd­bandi sem hún deildi í story á Instagram sagði hún: „Ég veit ekki...
Berta Dís prinsessa búin að fæða: „Hún er pínulítil og algjörlega fullkomin“
Menning

Berta Dís prinsessa búin að fæða: „Hún er pínu­lítil og algjör­lega full­komin“

Tilkynnt hefur verið að Berta Dís (e. Beatrice) prinsessa hafi fætt sitt annað barn, þriðja barn eig­in­mans síns, Edoardo Mapelli Mozzi en saman ala þau upp systk­inin Sönnu og Úlf. Barna­barn Elísa­betar drottn­ingar, 36 ára, og eig­in­maður hennar, 40, tóku á móti stúlku sem hlaut nafnið Aþena en hún fædd­ist nokkrum vikum fyrir tím­ann. Nýburinn er litla systir þriggja ára...
Erfingi gríðarlegra auðæfa dæmdur í lífstíðarfangelsi – Stakk besta vin sinn 37 sinnum
HeimurStóra-Bretland

Erfingi gríð­ar­legra auð­æfa dæmdur í lífs­tíð­ar­fang­elsi – Stakk besta vin sinn 37 sinnum

Erfingi kjöt­böku­veldis sem tal­inn er að muni erfa 230 millj­ónir punda hefur verið dæmdur í lífs­tíð­ar­fang­elsi fyrir að myrða besta vin sinn. Dylan Thomas stakk besta vin William Bush 37 sinnum í háls og lík­ama en öskrin í Bush heyrð­ust frá heim­ili sem þeir deildu, snemma á aðfanga­dags­kvöld 2023. Fórn­ar­lambið, til vinstri og morð­ing­inn, til hægri­Mynd: Trausti Haf­steins­son Erf­ing­inn að...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Heimur

Heimur

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Heimur

Amazon-bílstjóri keyrði yfir konu og yfirgaf vettvang – MYNDBAND

Heimur

Par neyddist til að sitja við hlið látinnar konu í 13 tíma flugi: „Þokkalega átakanlegt að horfa á“

Heimur

Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

Heimur

Barn skotið til bana af lögreglumanni í San Diego – MYNDBAND

Heimur

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“