„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Segir formannsslaginn einkennast af frasaflóði: „Ekkert stuð, engin stemning en fullt af átökum“

Segir formannsslaginn einkennast af frasaflóði: „Ekkert stuð, engin stemning en fullt af átökum“
Valhöll.

Atli Þór Fanndal tætir for­manns­bar­áttu Sjálf­stæð­is­flokks­ins í sig og segir flokk­inn í „miklu rusli“.

Fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Íslands­deildar Transparency International, Atli Þór Fanndal skrif­aði færslu á Facebook í gær þar sem hann tekur fyrir for­manns­bar­áttu Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Segir hann inni­haldið hafa vikið fyrir „frasa­flóði“.

„Það er svo­lítið skemmti­legt merki um hvað staða Sjálf­stæð­is­flokks­ins er vond og atgervis­flótt­inn rosa­legur að þrír aðilar hafa boðað fram­boð sitt. Áslaug Arna, Guðrún Hafstein og Snorri Ásmunds­son. Fram­boðs­ræður turn­anna tveggja bera með sér ein­kenni flokks sem er með hug­mynda­fræði­legan hrein­leika á heil­anum. Ræðurnar eru eins og frá gervi­greind; aftur í ræt­urnar, finna gildin, Sjálf­stæð­is­stefnan, munið hvað við vorum töff í gamla daga og stefna fram á við… inni­haldið er alveg farið. Engar útskýr­ingar fylgja frasa­flóð­inu.“

Bendir hann einnig á hvorki Áslaug Arna né Guðrún tali um vilja til að starfa með öðrum flokkum í fram­tíð­inni en gefur þó Snorra Ásmunds­syni prik fyrir að tala fyrir slíku í sinni til­kynn­ingu um for­manns­fram­boð.

„Í því sam­hengi vekur auð­vitað athygli að for­manns­efnin tvö sem mest athygli er á sjá enga ástæðu til að tala um fram­tíð flokks­ins á þeim nótum að hann verði góður sam­starfs­að­ili. Flokkur sem kann að vinna í teymi, á sér sam­kennd og bætir ein­hverju við í sam­starfi. Hann má þó eiga það lista­mað­ur­inn sem flokk­ur­inn þyk­ist ekki sjá að í hans til­kynn­ingu kom fram að Íhalds­bylt­ingin Sjallar 2.0 gerði ráð fyrir sam­starfi við ein­hvern. Og svo má auð­vitað muna að Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir sæk­ist ekki eftir neinu emb­ætti í flokknum lengur þrátt fyrir að vera aug­ljós­lega ein af fáum full­trúum Sjálf­stæð­is­flokks­ins sem enn er fær um að eiga í sam­tali við fólk utan Val­hallar. Hún er sem sagt bara 90% sam­mála fúlu köll­unum. Slíkt eru auð­vitað algjör svik við flokk í henglum og afneitun. Burt með svo­leiðis!“

Að lokum segir Atli Þór að ekk­ert stuð sé á flokknum né stemn­ing en þar sé hins vegar að finna „fullt af átökum“.

„Þetta er bara svo­lítið skemmti­leg mæli­stika á hvað flokk­ur­inn er í miklu rusli. Ekkert stuð, engin stemn­ing en fullt af átökum um skil­grein­ingu á rót­unum og fimmaurar um hvað sam­starfs­flokk­arnir tveir sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn tor­trímdi eru nú glat­aðir.

Þetta er vegna þess að í Valhöll eru það svik við bylt­ing­una að hafa smá gaman… Fólkið skal barið til frelsis!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins