„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Handboltaferill Kára í hættu eftir hjartaþræðingu: „Við sjáum bara hvað setur“

Handboltaferill Kára í hættu eftir hjartaþræðingu: „Við sjáum bara hvað setur“
Kári Kristján Krist­jáns­son Mynd: Youtube-skjáskot

Hand­bolta­kapp­inn Kári Kristján Krist­jáns­son dvaldi viku­langt á sjúkra­húsi í Reykja­vík en er nú kom­inn aftur heim til Vest­manna­eyjum. Gekkst hann undir hjarta­þræð­ingu en grunur er um að strept­ókokka­sýk­ing sé orsaka­vald­ur­inn.

Kár Kristján, sem leikur sem línu­maður hjá ÍBV í Olís­deild karla í hand­bolta, var lagður inn á sjúkra­hús í Reykja­vík fyrir viku vegna hjarta­bólgna.

„Ég veikt­ist helg­ina sem úrslita­leik­ur­inn á HM var og steinlá næt­urnar tvær á undan úrslita­leiknum og í svita­kófi. Þar að auki fann ég fyrir háls­sær­indum og fékk að lokum sýkla­lyf þegar í ljós kom að ég var kom­inn með strept­ókokka. Svo kom ég mér í gegnum alla umfjöllun í kringum úrslita­leik­inn í sjón­varp­inu á sunnu­deg­inum langt frá því að vera orð­inn góður og hélt svo heim til Vest­manna­eyja dag­inn eftir,“ sagði Kári við RÚV í dag.

Bætti hann við: „Svo fór ég með ÍBV í úti­leik á móti Fjölni á þriðju­deg­inum en var ekki í neinu standi til að spila. Ég var inni á vell­inum í kannski ein­hverjar tíu mín­útur og upp­lifunin var eins og ég hafi aldrei verið minna til­bú­inn lík­am­lega í að spila hand­bolta­leik og þarna.“

Heilsa Kára Krist­jáns versn­aði svo og hann fór að fá sting í bring­una. „Ég skildi ekk­ert í þessum sting og fannst hann skrít­inn og ekk­ert í lík­ingu til dæmis við brjóst­sviða. Svo hvarf sting­ur­inn en kom aftur og þá fór ég lækn­is­skoðun sem varð til þess að ég var sendur með sjúkra­flugi frá Vest­manna­eyjum til Reykja­víkur,“ segir Kári.

Til vonar og varar gekkst hann undir hjarta­þræð­ingu á Land­spít­al­anum þrátt fyrir að allar kransæðar hafi litið ágæt­lega út. Samkvæmt RÚV var um ill­nauð­syn­lega var­úð­ar­ráð­stöfun að ræða vegna þess að Kári var kom­inn með mikla hjarta­bólgu og höfðu gildin hækkað mjög hratt. Tveir sól­ar­hringar liðu frá því að Kári lagð­ist inn þar til bólg­urnur fóru að hjaðna nógu mikið.

„Það er ekki nákvæm­lega vitað hver orsökin að þessu öllu saman var en það bendir flest til þess að strept­ókokka­sýk­ingin hafi átt upp­tökin. Líklega hefði þurft að með­höndla strept­ókokk­ana fyrr því þegar sýkla­lyfin byrj­uðu að virka á mig fóru bólg­urnar við hjartað sömu­leiðis að minnka vel,“ sagði Kári Kristján og hvertur fólk til þess að leita strax til læknis telji það sig vera með strept­ókokka. 

Næstu vik­urnar þarf Kári að hafa hægt um sig. „Lækn­ir­inn tal­aði um þrjá mán­uði. Á hand­bolta­máli þýðir það að ég spila ekki meira á leik­tíð­inni en við sjáum til með það,“ sagði Kári en sem seg­ist ekki til­bú­inn að hætta, þrátt fyrir að vera orð­inn 41 árs, nema á eigin for­sendum.

„Þó að heilsan skipti öllu máli er ég bara svo mik­ill keppn­is­maður að ef ég fæ ein­hverjar fréttir í end­ur­komu til læknis að það sé mögu­leiki að ná að spila eitt­hvað meira á leik­tíð­inni með ÍBV mun ég reyna það. Það er auð­vitað hund­fúlt að geta ekki spilað á úrslita­helg­inni í bik­arnum og svo stytt­ist í úrslita­keppn­ina á Íslands­mót­inu. En við sjáum bara hvað setur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins