„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Heimir Már hjólar í Sjálfstæðisflokkinn og Morgunblaðið: „Eiturpennar á Mogganum án alls siðgæðis“

Heimir Már hjólar í Sjálfstæðisflokkinn og Morgunblaðið: „Eiturpennar á Mogganum án alls siðgæðis“
Andrés Magn­ús­son er einn lyk­il­manna Morg­un­blaðs­ins. Heimir telur að eit­urpennar ráði þar för.

„Und­an­farnar vikur höfum við orðið vör við hjá­kát­legt jarm og á köflum hljóð sem minna á væl og öskur út úr hrúta­kofa bit­urra manna sem kunna tungu sinni ekki for­ráð vegna þeirra miklu von­brigða sem þeir urðu fyrir að afloknum síð­ustu alþing­is­kosn­ingum. Þar fór Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn í fyrsta skipti í sög­unni undir tutt­ugu pró­sent í fylgi,“ skrifar Heimir Már Pét­urs­son, fyrr­ver­andi frétta­maður á Stöð 2 og nýráð­inn fram­kvæmda­stjóri Flokks fólks­ins, í harð­orðri grein á Vísi þar sem hann lýsir Sjálf­stæð­is­flokknum og blaða­mönnum Morg­un­blaðs­ins með harka­legri hætti en venju­lega sést í opin­berri umræðu.
Tilefni skrifa Heimis er styrkja­málið og krafan um að Flokki fólks­ins verði gert að end­ur­greiða styrk­ina. Hann rekur árás­irnar á Flokk fólks­ins til þess áfalls sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn varð fyrir í liðnum kosn­ingum.

„Fyrir kosn­ingar hafði for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins lýst því yfir að Flokkur fólks­ins væri álit­legur flokkur til sam­starfs í rík­is­stjórn. Kannanir höfðu gefið til kynna að þessir tveir flokkar gætu myndað saman stjórn með Mið­flokknum sem skýrði póli­tíska breimið í Bjarna Bene­dikts­syni. Formaður Mið­flokks­ins taldi stjórn þess­ara flokka einnig vera einu leið­ina til að mynda „borg­ara­lega stjórn þar sem skyn­semin yrði látin ráða ríkjum,“ skrifar Heimir og rifjar upp að eft­itr að Flokkur fólks­ins gekk til sam­starfs við Viðreisn og Sam­fylk­ingun hafi kveðið vlð allt annan tón.

Heimir Már Pét­urs­son.

„Í stað þess að við­ur­kenna ósigur sinn í auð­mýkt og horfast í augu við að flokk­ur­inn ætti við vanda að etja sem hann ræður ekki við, söktu menn sér í sjálfs­vorkun og afneitun. Gerðu eins og menn gera stundum í þeim aðstæðum; þeir fóru að kenna öðrum en sjálfum sér um hvernig komið var fyrir þeim,“ skrifar hann.

Morg­un­blaðið með þá Andrés Magn­ús­son og Stefán E. Stef­áns­son í far­ar­broddi fær síðan á bauk­inn.

„Eit­urpennar á Mogganum án alls sið­gæðis sem ein­kennir góða blaða­mennsku fóru nú á stjá. Þeir höfðu rekið tærnar í að það „vantað átt­unda afrit af eyðu­blaði númer níu,“ svo vitn­aði sé í Megas í skrán­ingu Flokks fólks­ins hjá rík­is­skatt­stjóra. Annað eins hneyksli höfðu pennar blaðs­ins, við húrr­andi und­ir­tektir þing­manna Mið­flokks­ins og sumra Sjálf­stæð­is­manna, ekki rekið augun í á öllum lýð­veld­is­tím­anum,“ skrifar Heimir Már og bendir á að „hrútarnir“ hafi ekki fyrir því að nefna að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn var heldur ekki stjórn­mála­flokkur í augum Skatt­manns og fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins undir stjórn for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Grein Heimis, Þegar heiftin nær tökum á hrúta­klef­anum, má finna í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins