„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Anna er feimið og viðkvæmt blóm: „Hlógu bara að heilsuleysi mínu þar sem ég lá fyrir dauðanum“

Anna er feimið og viðkvæmt blóm: „Hlógu bara að heilsuleysi mínu þar sem ég lá fyrir dauðanum“
Anna Krist­jáns­dóttir Mynd: Facebook

Anna Krist­jáns­dóttir er hálf sár út í les­endur sínar en hugg­aði sig við áhorf á Séð og heyrt þáttum Þor­steins J.

Í nýjust dag­bók­ar­færslu sinni skrifar vél­stjór­inn og húmorist­inn Anna Krist­jáns­dóttir um þynnku og Séð og heyrt. Í fyrri hluta færsl­unnar seg­ist hún hafa verið að leit­ast eftir vor­kunn þegar hún skrif­aði í gær um þynnku sem hún þjáð­ist af eftir gott laug­ar­dags­kvöld á para­dísareyj­unni Tenerife, þar sem hún hefur búið síð­ustu ár. Hins vegar hafi fólk bara hlegið að henni.

„Dagur 2015 – Feimið og við­kvæmt blóm.

Í gær tjáði ég mig eitt­hvað um drykkju­skap minn kvöldið áður og var eig­in­lega að mæl­ast til smá­vegis vor­kunn­semi frá lesöndum mínum, en það var öðru nær. Tólf les­endur pistl­anna minna hlógu bara að heilsu­leysi mínu þar sem ég lá fyrir dauð­anum í þynnku morg­uns­ins.“

Anna hresstist þó fljót­lega og fékk sér brauðtertu á bar sem hún kallar Klaust­ur­bar:

„Eitthvað hresstist ég þegar leið á morg­un­inn og í hádeg­inu skrapp ég á Klaust­ur­bar (Nostal­gíu) í von um pönnu­kökur og brauðtertu. Sævar ábóti og pönnu­köku­sér­fræð­ingur reynd­ist enn vera fjar­ver­andi vegna veik­inda náins ætt­ingja og varð ég því að fyr­ir­gefa honum pönnu­köku­leysið. Herdís abba­dís bætti hins­vegar fyrir pönnu­köku­skort­inn með brauðtertu, reyndar með þeim afleið­ingum að ég fór pakksödd heim eftir að hafa fengið mér tvö­faldan skammt sem segir allt um gæðin.

En ég get víst sjálfri mér kennt um græðgina.“

Í seinni hluta dag­bók­ar­færsl­unnar skrifar Anna um Séð og heyrt þætti Þor­steins J. sem sýndir eru á Stöð 2. Anna er afar hrifin af þátt­unum þó hún hafi eitt sinn í fyrnd­inni verið fúl út í blaðið.

„Sunnu­dags­kvöldið er edrú­kvöld þótt ég sé risin upp frá dauðum og heilsan komin í lag, sit ein heima og horfi á síð­asta þátt­inn af Séð og heyrt. Alveg bráð­skemmti­legir þættir og upp rifj­uð­ust nokkur atvik í tengslum við Séð og heyrt þar sem ég var í blað­inu, t.d. þegar við krakk­arnir úr Brú­ar­lands­skóla héldum upp á það þegar 40 ár voru liðin frá því er Birgir D. Sveins­son hóf að kenna við skól­ann haustið 1960 og Auður Laxness og móðir Sigríðar bekkj­ar­systur minnar, bauðst til að halda sam­kvæmið að Gljúfra­steini, þá orðin ekkja. Allt í einu birt­ust blaða­maður og ljós­mynd­ari frá Séð og heyrt og við Auður vorum aðal­efnið í næsta blaði á eftir.

Ég var dálítið ósátt við þessa upp­á­komu á þeim tíma, enda vita allir sem mig þekkja að ég er ákaf­lega feimið og við­kvæmt blóm, en ald­ar­fjórð­ungi síðar er ekki hægt annað en að hafa gaman af þessu.

Ég hefi ein­ungis séð þrjá síð­ustu þætt­ina af þessum sex um Séð og heyrt og vildi gjarnan kom­ast í að sjá fyrstu þrjá, en samt. Takk fyrir mig Þor­steinn Joð.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

húmor

Ónefndur þingmaður kvartaði yfir buxum Jóns: „Svona geta nú umræðurnar á Alþingi verið gáfulegar“
Menning

Ónefndur þing­maður kvart­aði yfir buxum Jóns: „Svona geta nú umræð­urnar á Alþingi verið gáfu­legar“

Kvartað var undan klæða­burði Jóns Gnarr á Alþingi í gær. Jón Gnarr, þing­maður Við­reisnar, skrif­aði Facebook-færslu í gær­kvöldi þar sem hann segir frá því að þing­maður hafi kvartað í gær yfir klæða­burði Jóns á þing­inu en Jón dirfð­ist að mæta í galla­buxum. „Síðan ég hóf störf á Alþingi hef reynt að til­einka mér snyrti­mennsku í klæða­burði. Ég ber mikla virð­ingu...
Grímur geldur fyrir sentimetrana: „Flest er dýrara fyrir þannig menn“
Menning

Grímur geldur fyrir senti­metrana: „Flest er dýr­ara fyrir þannig menn“

Grímur Atlason er yfir tveir metrar á hæð og fær að kenna á því dag­lega. Fram­kvæmda­stjóri hjá Lands­sam­tök­unum Geðhjálp, Grímur Atlason skrif­aði spaugi­lega Facebook-færslu í morgun þar sem hann kvartar sáran undan því að Icelandair hafi neitað honum um sæti við neyð­ar­út­gang. „Flugvél dags­ins er Bola­fjall. Smá jákvæðni í kjöl­far ann­ars leið­inda byrjun dags en Icelandair neit­aði mér um mögu­leik­ann...
Dagur gantast í umhverfisráðherra: „Fyrirspurnartímanum hefur verið frestað vegna veðurs“
Menning

Dagur gant­ast í umhverf­is­ráð­herra: „Fyr­ir­spurn­ar­tím­anum hefur verið frestað vegna veð­urs“

Dagur B. Egg­erts­son sló á létta strengi í til­efni þess að fyrsti starfs­dagur hans sem Alþing­is­þing­maður var í gær. Þingið hófst loks­ins í gær, eftir að hafa verið í ansi löngu hléi vegna kosn­inga og jóla­fría en þing­menn kepp­ast nú við að byrja ljós­myndir af sér á sam­fé­lags­miðl­unum frá fyrsta vinnu­degi sínum. Óvenju­margir nýliðar eru á þingi þetta kjör­tíma­bil en...
Stefán Pálsson tengir við Dag Sigurðsson: „Stemningin gat orðið ansi stirð á göngum skólans“
Menning

Stefán Pálsson tengir við Dag Sig­urðs­son: „Stemn­ingin gat orðið ansi stirð á göngum skól­ans“

Stefán Pálsson rifjar upp þegar hann var feng­inn til að þjálfa Fjöl­brauta­skól­ann í Breið­holti í Morfís-ræðu­keppn­inni þegar hann var á loka­ári hjá Mennta­skól­anum í Reykja­vík. Setur hann það í sam­hengi við svekk­elsi margra með að Dagur Sig­urðs­son hafi slegið Ísland út úr HM í hand­bolta á dög­unum. Sagn­fræð­ing­ur­inn og gáfu­mennið Stefán Pálsson skrif­aði færslu á Facebook þar sem hann talar...
Brynjar þjáist af minnisleysi: „Líklega blanda af sljóleika og almennum sauðshætti“
Menning

Brynjar þjá­ist af minnis­leysi: „Líklega blanda af sljó­leika og almennum sauðs­hætti“

Brynjar Níelsson þjá­ist af minnis­leysi og vill að hin nýja rík­is­stjórn geri eitt­hvað í málum minn­is­lausra. „Minni mitt er afar bág­borið og á það bæði við um lang­tíma- og skamm­tíma­minni. Sér­fræð­ingar eru á einu máli að þetta sé ekki heila­bilun því ég hef alltaf verið svona. Líklega ein­hvers konar athygl­is­brestur eða blanda af sljó­leika og almennum sauðs­hætti.“ Þannig hefst Facebook-færsla...
Leyfði dætrunum að mála sig með kynlegri niðurstöðu: „Ég veit að þær verða ekki litlar að eilífu“
Menning

Leyfði dætr­unum að mála sig með kyn­legri nið­ur­stöðu: „Ég veit að þær verða ekki litlar að eilífu“

Dwayne „The Rock“ Johnson birti drep­fyndið mynd­skeið á Instagram þar sem dætur hans tvær sjást mála pabba sinn en nið­ur­staðan er væg­ast sagt skraut­leg. Margir for­eldrar kann­ast við að leyfa börnum sínum að mála sig og fræga fólkið í Hollywood er ekk­ert und­an­skilið. Í nýju mynd­skeiði sýnir stór­leik­ar­inn Dwayne Johnson dætur sínar tvær, Jazzy og Tiu, mála sig á afar...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Menning

Menning

Hundurinn hans Dwayne Johnson dó í nótt: „Ég hef verið dofinn yfir þessum missi“

Menning

The Highwaymen heiðraðir í Hörpu: „Fullt af tímalausum smellum og anda kántrítónlistar“

Menning

DJ Khaled og 6ix9ine fengu báðir óhugnanlegar líkkistur sendar heim til sín: „RIP Drake“

Menning

Friðrik Dór hugsar um lygar

Menning

Myrkvi gefur út þriðju breiðskífu sína – Vonast til þess að slá vopnin úr höndum tímans

Menning

Bubbi og Frikki Dór styðja fórnarlömb þjóðarmorðsins á Gaza