„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Kjörgengi Snorra til formanns Sjálfstæðisflokksins staðfest: „Stelpurnar eru alveg dúllur“

Kjörgengi Snorra til formanns Sjálfstæðisflokksins staðfest: „Stelpurnar eru alveg dúllur“
Snorri ætlar sér að verða for­maður

Nú hefur það verið stað­fest að lista­mað­ur­inn Snorri Ásmunds­son megi bjóða sig fram til for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins en kjör­gengi hans hefur verið óvissu. Gögn sem Mannlíf hefur fengið sent virð­ast stað­festa að hann geti vissu­lega boðið sig til for­manns flokks­ins.

Því verður hann í fram­boði ásamt Áslaugu Örnu Sig­ur­björns­dóttur og Guðrúnu Haf­steins­dóttur á lands­fundi Sjálf­stæð­is­flokks­ins seinna í febr­úar.

Mannlíf hafði sam­band við Snorra til að spyrja hann út í for­manns­bar­átt­una.

„Flokk­ur­inn vantar góðan anda og ferskan and­vara og hann vantar for­mann sem hefur kjark og þor til að leiða flokk­inn inn í nýjar og breyttar og bjart­ari áherslur,“ sagði Snorri við Mannlíf um hvað hann getur fært flokknum. „Flokk­ur­inn hefur fal­lega og góða stefnu en hann þarf þá að fara eftir stefn­unni. Ég hef góða teng­ingu við kon­una í mér og er meðal ann­ars að bjóða mig fram fyrir konur og önnur kyn. Þrátt fyrir að mót­fram­bjóð­endur mínir telj­ist til kvenna tel ég mig hafa betra inn­sæi og betri teng­ingu við konur. Ég er líka eini fram­bjóð­and­inn sem hefur verið fjall­kona í Reykja­vík. Ég hef líka sköp­un­ar­kraft­inn og er ekki inni í neinum boxi né þæg­ind­ara­mma svo ég hef kjark til að fara allt aðrar leiðir og er ekki hræddur við breyt­ingar.“

En af hverju ættu Sjálf­stæð­is­menn að kjósa þig fram yfir Guðrúnu og Áslaugu?

„Guðrún og Áslaug hafa starfað í stjórn­málum og voru góðir ráð­herrar en þær eru ekki for­ystu­sauðir. Þær eru ekki til­búnar til að leiða flokk­inn né þjóð­ina. Ég er með blátt blóð í æðum og hef verið lengur en þær í flokknum og er reynd­ari og hef fjöl­breytt­ari reynslu. Þótt ég hafi stundum verið óþekkur er það yfir­leitt vegna þess að ég er ekki spilltur. Óþekkt er greind­ar­merki. En stelp­urnar eru alveg dúllur og ég held ég geti kennt þeim sitt­hvað um margt og held við getum starfað saman far­sæl­lega. Sjálf­stæð­is­menn elska líka ein­stak­lings­fram­takið og þeim þykir vænt um mig. Því ég er eins og snýttur úr nösum sjálf­stæð­is­stefn­unnar.“

„Ég hlakka til að hreinsa til í flokknum og breyta fyr­ir­komu­lagi og koma með nýjar áherslur,“ sagði Snorri um hans fyrstu verk verði hann kos­inn for­maður. „Flokk­ur­inn þarf svo mikið á því að halda. Hann er dálítið mikið staðn­aður og lask­aður þótt stefnan sé fal­leg þarf að dytta að ýmsu. Jafnvel þarf að reka fólk úr flokknum og það er aldrei gaman. En höfnun getur verið ný byrjun. Það er bara verið að gefa fólk tæki­færi á ein­hverju nýju. Svo mun ég krefj­ast kosn­inga hið snarasta.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins