„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteinsdóttir meðal gesta

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteinsdóttir meðal gesta
Brúarás í Múla­þingi Mynd: Austurland.is

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið.

Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld. Alls hafa yfir 20 manns til­kynnt veik­indi.

Fram­kvæmd­ar­stjóri HAUST, Lára Guð­munds­dóttir, segir að þorra­blóts­nefndin hafi í gær til­kynnt um grun um hóp­sýk­ingu. Var strax farið til þess aðila sem sá um veit­ingar á blót­inu og sýni tekið af matnum til að setja í ræktun. Tekur það nokkra daga að fá nið­ur­stöður úr þeirri rann­sókn.

Þá var einnig farið yfir verk­ferla og aðstæður hjá veit­inga­að­il­anum en fundað verður með honum aftur í dag.

Í morgun bað HSA fólk um að láta vita ef það kenndi sér meins eftir þorra­blótið en það er hægt að gera hjá emb­ætti land­læknis. Til­gang­ur­inn með því er að kanna umfang sýk­ing­ar­innar en minnst 25 hafa til­kynnt veik­indi. Þá safnar HSA einnig sýnum frá ein­stak­lingum sem verða svo bornar saman við mat­ar­sýnin.

Fram kemur í færslu HSA að ekki sé enn vitað til þess að ein­hver hafi veikst alvar­lega en Lára segir í sam­tali við Aust­ur­frétt að þau til­felli sem vitað sé um lýsi sér í snörpum en skamm­vin­umm veik­indum. Liðið höfðu um 10 til 12 klukku­stundir frá borð­hald­inu þegar fólk veikt­ist en að flestir voru búnir að jafna sig um hádeg­is­bil í gær.

Samkvæmt Láru eru veik­indin flokkuð sem hóp­sýk­ing en það snú­ist ekki um fjölda smit­aðra, heldur aðstæður þar sem hætta er á að margir veik­ist. HSA segir að unnið sé að rakn­ingu í góðri sam­vinnu við alla sem að mál­inu koma og er þeim þakkað fyrir ábyrgð og aðstoð.

Guðrún Haf­steins­dóttir, fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra og for­manns­efni Sjálf­stæðs­flokks­ins var á þorra­blót­inu í Brúarási en hún var á ferð um Aust­ur­landið yfir helg­ina til að kynna sín áherslu­mál fyrir for­manns­kosn­ing­arnar en er nú stödd á Suð­ur­land­inu en stíf dag­skrá bíður hennar í dag. Birti hún bæði mynd­skeið og ljós­myndir frá blót­inu, meðal ann­ars þar sem hún stóð með Dagnýju Ýri Stef­áns­dóttur, sveit­ar­stjóra Múla­þings, á story á Instagram. Ekki er vitað hvort hún hafi veikst eftir blótið en miðað við myndefnið sem hún hefur verið að birta í story á Instagram, hefur hún haft í nógu að snú­ast um helg­ina og því lík­legt að hún hafi sloppið vel frá blót­inu.

Ekki náð­ist í Guðrúnu við vinnslu frétt­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hópsmit

Mánagarðsbörnin orðin fimm á gjörgæslu – Rúmlega 40 börn hafa smitast
Innlenthópsmit

Mána­garðs­börnin orðin fimm á gjör­gæslu – Rúmlega 40 börn hafa smit­ast

Áfram bæt­ist í hóp barna sem liggja á gjör­gæslu vegna E.coli-sýk­ingar en þau eru nú orðin fimm tals­ins. Þá liggja fimm önnur börn inni á Barna­spít­ala Hrings­ins. Smitið kom upp á leik­skól­anum Mána­garði fyrir rúmri viku en rúm­lega 40 börn en ekki nein börn utan leik­skól­ans hafa smit­ast. Ennþá er verið að bíða eftir nið­ur­stöðu úr sýnum frá starfs­mönnum leik­skól­ans....
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins