Grímur Atlason er yfir tveir metrar á hæð og fær að kenna á því daglega.
Framkvæmdastjóri hjá Landssamtökunum Geðhjálp, Grímur Atlason skrifaði spaugilega Facebook-færslu í morgun þar sem hann kvartar sáran undan því að Icelandair hafi neitað honum um sæti við neyðarútgang.
„Flugvél dagsins er Bolafjall. Smá jákvæðni í kjölfar annars leiðinda byrjun dags en Icelandair neitaði mér um möguleikann á kaupum á sæti við neyðarútgang (enginn amatörismi hjá mér – talað við þjónustuver fyrir helgi og farið að þeirra ráðum sem voru jafn góð og ráð Musk í efnahagsmálum).“
Ástæðan fyrir því að Grímur vildi sæti við neyðarútganginn er sú staðreynd að hann er heilir tveir metrar á hæð og tveimur sentimetrum meira en það og vantar fótaplássið. Segir hann flest vera dýrara fyrir svo hávaxna menn og telur fleira til sem hrjáir risa í nútíma samfélagi.
„Og hér kemur síðan væl Gríms Atlasonar sem er prótótýpan af nútímanninum og staðalbúnaður slíkra manna er 202 cm (og þá ekki í skóm). Flest er dýrara fyrir þannig menn: Rúm, rúmföt, föt, skór, húsgögn og flug (ef koma á veg fyrir blóðtappa). Þeir mega ekki fara í fallturna í Tivoli og helstu rússíbana (sem er gott en ekki segja
Emil Grímsson
) og það er vont að sitja í leikhúsum, veitingahúsum og í bíó en þeir sjá á tónleikum. Og hananú!Ps. Icelandair er dýrasta lággjaldaflugfélag í heimi.“


























Athugasemdir