„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Ónefndur þingmaður kvartaði yfir buxum Jóns: „Svona geta nú umræðurnar á Alþingi verið gáfulegar“

Ónefndur þingmaður kvartaði yfir buxum Jóns: „Svona geta nú umræðurnar á Alþingi verið gáfulegar“
Jón Gnarr í galla­bux­unum alræmdu. Mynd: Facebook

Kvartað var undan klæða­burði Jóns Gnarr á Alþingi í gær.

Jón Gnarr, þing­maður Við­reisnar, skrif­aði Facebook-færslu í gær­kvöldi þar sem hann segir frá því að þing­maður hafi kvartað í gær yfir klæða­burði Jóns á þing­inu en Jón dirfð­ist að mæta í galla­buxum.

„Síðan ég hóf störf á Alþingi hef reynt að til­einka mér snyrti­mennsku í klæða­burði. Ég ber mikla virð­ingu fyrir hefðum og reyni að klæða mig eftir til­efnum og haga mér vel en mér leið­ist afskap­lega snobb og til­gerð. Ég hef spurst fyrir um klæða­reglur Alþingis en þær eru víst engar nema “snyrti­legur klæðn­aður” og svo er ætl­ast til þess að karl­menn séu í jakka. Ég hef fylgt þessu og gott betur og verið í jakka­fötum og með bindi.“ Þannig hefst færslan en Jón segir síðan frá því að hann hafi brugðið út af van­anum í gær og mætt í galla­buxum. Hann var ekki eini þing­mað­ur­inn í galla­buxum en auð­vitað þurfti ein­hver ónefndur þing­maður að kvarta undan galla­buxum Jóns.

„Í dag gerði ég breyt­ingu á og kom í galla­buxum. Mann­eskja reyndi að stöðva mig með þeim orðum að ég mætti ekki ganga í þing­sal í galla­buxum. Mér brá en í stað þess að hlaupa heim gekk ég rösk­lega til sætis og sett­ist. Eftir að hafa setið þarna góða stund fór ég að taka eftir öðrum þing­mönnum sem voru í galla­buxum. Mér létti mikið. En þegar leið á fund­inn fékk ég skila­boð frá þing­flokks­for­manni að ónefndur þing­maður hefði kvartað yfir því að ég væri í galla­buxum.“

Að lokum geri Jón gys að þessu öllu og stingur upp á að hann mæti einn dag­inn í Obi Wan Kenobi bún­ingnum sínum á Alþingi.

„Svona geta nú umræð­urnar á Alþingi verið gáfu­legar og gagn­legar fyrir land og þjóð.

Kannski ég mæti einn dag­inn í Obi Wan Kenobi bún­ingnum mínum ? Hann er mjög snyrti­legur og líka töff og er þar að auki Íslenskt hand­verk.

Ég legg ekki meira á ykkur en með fylgir við­tal við Birgi Ármanns­son og mynd sem Jóga tók af mér áðan. Grein sem ég skrif­aði í dag um það neyð­ar­á­stand sem er við­var­andi í mál­efnum barna á Íslandi var skrifuð í þessum buxum.

Góða nótt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

húmor

Grímur geldur fyrir sentimetrana: „Flest er dýrara fyrir þannig menn“
Menning

Grímur geldur fyrir senti­metrana: „Flest er dýr­ara fyrir þannig menn“

Grímur Atlason er yfir tveir metrar á hæð og fær að kenna á því dag­lega. Fram­kvæmda­stjóri hjá Lands­sam­tök­unum Geðhjálp, Grímur Atlason skrif­aði spaugi­lega Facebook-færslu í morgun þar sem hann kvartar sáran undan því að Icelandair hafi neitað honum um sæti við neyð­ar­út­gang. „Flugvél dags­ins er Bola­fjall. Smá jákvæðni í kjöl­far ann­ars leið­inda byrjun dags en Icelandair neit­aði mér um mögu­leik­ann...
Anna er feimið og viðkvæmt blóm: „Hlógu bara að heilsuleysi mínu þar sem ég lá fyrir dauðanum“
Menning

Anna er feimið og við­kvæmt blóm: „Hlógu bara að heilsu­leysi mínu þar sem ég lá fyrir dauð­anum“

Anna Krist­jáns­dóttir er hálf sár út í les­endur sínar en hugg­aði sig við áhorf á Séð og heyrt þáttum Þor­steins J. Í nýjust dag­bók­ar­færslu sinni skrifar vél­stjór­inn og húmorist­inn Anna Krist­jáns­dóttir um þynnku og Séð og heyrt. Í fyrri hluta færsl­unnar seg­ist hún hafa verið að leit­ast eftir vor­kunn þegar hún skrif­aði í gær um þynnku sem hún þjáð­ist af...
Dagur gantast í umhverfisráðherra: „Fyrirspurnartímanum hefur verið frestað vegna veðurs“
Menning

Dagur gant­ast í umhverf­is­ráð­herra: „Fyr­ir­spurn­ar­tím­anum hefur verið frestað vegna veð­urs“

Dagur B. Egg­erts­son sló á létta strengi í til­efni þess að fyrsti starfs­dagur hans sem Alþing­is­þing­maður var í gær. Þingið hófst loks­ins í gær, eftir að hafa verið í ansi löngu hléi vegna kosn­inga og jóla­fría en þing­menn kepp­ast nú við að byrja ljós­myndir af sér á sam­fé­lags­miðl­unum frá fyrsta vinnu­degi sínum. Óvenju­margir nýliðar eru á þingi þetta kjör­tíma­bil en...
Stefán Pálsson tengir við Dag Sigurðsson: „Stemningin gat orðið ansi stirð á göngum skólans“
Menning

Stefán Pálsson tengir við Dag Sig­urðs­son: „Stemn­ingin gat orðið ansi stirð á göngum skól­ans“

Stefán Pálsson rifjar upp þegar hann var feng­inn til að þjálfa Fjöl­brauta­skól­ann í Breið­holti í Morfís-ræðu­keppn­inni þegar hann var á loka­ári hjá Mennta­skól­anum í Reykja­vík. Setur hann það í sam­hengi við svekk­elsi margra með að Dagur Sig­urðs­son hafi slegið Ísland út úr HM í hand­bolta á dög­unum. Sagn­fræð­ing­ur­inn og gáfu­mennið Stefán Pálsson skrif­aði færslu á Facebook þar sem hann talar...
Brynjar þjáist af minnisleysi: „Líklega blanda af sljóleika og almennum sauðshætti“
Menning

Brynjar þjá­ist af minnis­leysi: „Líklega blanda af sljó­leika og almennum sauðs­hætti“

Brynjar Níelsson þjá­ist af minnis­leysi og vill að hin nýja rík­is­stjórn geri eitt­hvað í málum minn­is­lausra. „Minni mitt er afar bág­borið og á það bæði við um lang­tíma- og skamm­tíma­minni. Sér­fræð­ingar eru á einu máli að þetta sé ekki heila­bilun því ég hef alltaf verið svona. Líklega ein­hvers konar athygl­is­brestur eða blanda af sljó­leika og almennum sauðs­hætti.“ Þannig hefst Facebook-færsla...
Leyfði dætrunum að mála sig með kynlegri niðurstöðu: „Ég veit að þær verða ekki litlar að eilífu“
Menning

Leyfði dætr­unum að mála sig með kyn­legri nið­ur­stöðu: „Ég veit að þær verða ekki litlar að eilífu“

Dwayne „The Rock“ Johnson birti drep­fyndið mynd­skeið á Instagram þar sem dætur hans tvær sjást mála pabba sinn en nið­ur­staðan er væg­ast sagt skraut­leg. Margir for­eldrar kann­ast við að leyfa börnum sínum að mála sig og fræga fólkið í Hollywood er ekk­ert und­an­skilið. Í nýju mynd­skeiði sýnir stór­leik­ar­inn Dwayne Johnson dætur sínar tvær, Jazzy og Tiu, mála sig á afar...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Menning

Menning

Hundurinn hans Dwayne Johnson dó í nótt: „Ég hef verið dofinn yfir þessum missi“

Menning

The Highwaymen heiðraðir í Hörpu: „Fullt af tímalausum smellum og anda kántrítónlistar“

Menning

DJ Khaled og 6ix9ine fengu báðir óhugnanlegar líkkistur sendar heim til sín: „RIP Drake“

Menning

Friðrik Dór hugsar um lygar

Menning

Myrkvi gefur út þriðju breiðskífu sína – Vonast til þess að slá vopnin úr höndum tímans

Menning

Bubbi og Frikki Dór styðja fórnarlömb þjóðarmorðsins á Gaza