„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Leikmenn Fram selja bjór á samfélagsmiðlum: „Eftirsóknarvert félag í lýðheilsu“

Leikmenn Fram selja bjór á samfélagsmiðlum: „Eftirsóknarvert félag í lýðheilsu“
Leikmenn Fram selja bjór – Mynd: Fram

Leikmenn meist­ara­flokks karla í knatt­spyrnu hjá Fram hafa tekið upp á því að selja „Fram bjór“ á sam­fé­lags­miðlum sínum. Til­gangur söl­unnar er að styrkja leik­menn­ina vegna æfing­ar­ferðar erlendis. Bjórinn er skreyttur með merki félags­ins og gerður í sam­starfi við Litla Brugg­húsið en það er þekkt fyrir að fram­leiða bjóra á borð við Skeggja og Bergið.

Algengt er að íþrótta­menn á Íslandi selji ýmsar vörur til styrktar æfing­ar­ferðum en oft er um að ræða kló­sett­pappír, páska­egg eða fros­inn humar. Sala áfengis þykir nokkuð umdeild innan íþrótta­heims­ins á Íslandi og hafa ýmiss sam­tök sett sig upp á móti áfeng­is­sölu KSÍ á Laug­ar­dals­velli en sam­bandið hefur sótt um var­an­legt leyfi til slíkrar sölu. Umboðs­maður barna, Land­lækn­is­emb­ættið og Bind­ind­is­sam­tök­in IOGT eru meðal þeirra sem mót­mæla slíkri sölu.

Þá vekur sér­stak­lega athygli að í pistli sem Sigríður Elín Guð­laugs­dóttir, for­maður Fram, skrif­aði í fyrra segir hún að lýð­heilsa sé mik­il­væg í starfi félags­ins.

„Árið 2023 var ár mik­illa áfanga og fram­fara fyrir Knatt­spyrnu­fé­lagið Fram. Með hverju ári sem líður, styrkjum við stöðu okkar sem öfl­ugt og fjöl­breytt íþrótta­fé­lag, sem ekki aðeins leggur áherslu á afreks­starf, heldur einnig á lýð­heilsu og sam­fé­lags­lega ábyrgð. Við höldum áfram að byggja á þeim trausta grunni sem lagður hefur verið og stefnum að því að vera leið­andi í því að efla og styðja við heil­brigðan lífs­stíl og íþrótta­iðkun á öllum stigum.“

Þá segir á öðrum stað „Almenn­ings­í­þrótta­deildin sinnir mjög mik­il­vægu hlut­verki innan Fram og styður vel við stefnu félags­ins að vera eft­ir­sókn­ar­vert félag í lýð­heilsu upp öll ævi­skeið og að eiga hverju sinni afreks­fólk og flokka sem skipa sér í fremstu röð.“

Mannlíf sendi fyr­ir­spurn á Sigríði Elínu um málið en hún hefur ekki svarað þeirri fyr­ir­spurn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins