„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Sjúkraflug til Reykjavíkur stóð tæpt í gær – 389 í bráðri hættu flogið á hverju ári

Sjúkraflug til Reykjavíkur stóð tæpt í gær – 389 í bráðri hættu flogið á hverju ári
Sjúkra­flug Nor­landair. Mynd: slokkvilid.is

Sjúkra­flug til Reykja­víkur hafa verið að með­al­tali 560 á ári síð­ustu fimm ár. Í gær stóð tæpt að sjúkra­flug­vél í for­gangi gæti lent á Reykja­vík­ur­flug­velli.

Fram kemur í frétt RÚV að í gær hafi staðið tæpt að sjúkra­flug­vél á leið til Reykja­víkur þyrfti að lenda á Kefla­vík­ur­flug­velli í gær. Á Reykja­vík­ur­flug­velli hafa óhag­stæð veð­ur­skil­yrði verið síð­ustu daga og er spáð áfram.

Vegna trjá­gróð­urs í Öskju­hlíð­inni er austur-vestur flug­braut Reykja­vík­ur­flug­vallar enn lokað og því aðeins hægt að nota norður-suður braut­ina. Síðustu daga hefur stíf aust­an­átt og rign­ing verið á Reykja­vík­ur­flug­velli sem getur gert lend­ing­ar­skil­yrði fyrir sjúkra­flug strembn­ari. Á morgun er áfram­hald­andi aust­an­átt spáð í Reykja­vík.

Flug­rekstr­ar­stjóri Nor­landair, sem sér um sjúkra­flug, Tómas Dagur Helgason, segir í sam­tali við RÚV að þrátt fyrir skil­yrðin und­an­far­inn sól­ar­hring, hafi alltaf tek­ist að lenda á Reykja­vík­ur­velli.

„En það stóð tæpt í gær í einu flug­inu sem var tíma­háð for­gangs­flug. Vanda­málið sem er búið að vera eins og í gær, það rigndi mikið með vind­inum og bremsu­skil­yrðin fóru niður, sem gerir það að verkum að það þolir minni hlið­ar­vind. En þetta hékk innan marka.“

Í dag er flug­veð­ur­spáin nokkuð góð en á morgun versnar hún svo aftur.

„Við erum með sér­stakar spár frá Veð­ur­stof­unni varð­andi hlið­ar­vind­inn á þess­ari braut sem er að hjálpa okkur gríð­ar­lega mikið í að meta ástandið, hvað er framundan. Vind­ur­inn virð­ist eiga að fara upp aftur á morgun og er verstur upp úr hádeg­inu, þá verða þessar krítísku aðstæður aftur.“

560 sjúkraflug á ári

Samkvæmt upp­lýs­ingum sem Mannlíf afl­aði sér frá Land­spít­al­anum hafa að með­al­tali 560 sjúkra­flug til Reykja­víkur verið farin á síð­ustu fimm árum. Heild­ar­flug sjúkra­fluga í flokki F1, hafa verið að með­al­tali 179 á ári síð­ustu fimm ár. Þá hafa heild­ar­fjöldi sjúkra­fluga í flokki F2 verið að með­al­tali 210 á ári síð­ustu fimm ár. Sam­an­lagt gerir það 389 sjúkra­flug í flokki F1 og F2. Þá kemur fram í svari Land­spít­al­ans að meiri­hluti sjúkra­flugs í F1 og F2 for­gangi sé til Reykja­víkur.

For­gangur F1 er þegar um er að ræða lífsógn eða bráða­til­vik sjúk­lings, F2 er þegar um er að ræða mögu­lega lífsógn eða bráða­til­vik sjúk­lings, en ekki eins alvar­legt og sam­kvæmt F1.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins