„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Hilmar Fjeldsted er fallinn frá

Hilmar Fjeldsted er fallinn frá

Hilm­ar Fjeld­sted Lúth­ers­son, pípu­lagn­inga­meist­ari og mótor­hjóla­maður, lést að heim­ili sínu 20. fe­brú­ar síð­ast­lið­inn, 86 ára að aldri.

Í dán­ar­frétt mbl.is kemur fram að Hilmar hafi fæðst 26. ágúst 1938 í Reykja­vík. For­eldrar Hilmars voru Lúther Salómons­son og Sveins­ína Odds­dóttir en systik­ini hans voru Sverrir (sam­feðra), Sigríður, Jóhann og Reynir.

Frá fjög­urra ára aldri bjó Hilmar í Kópavogi en árið 2004 flutti hann á Selfoss og árið 2015 til Hafn­ar­fjarðar. Kvæntist hann eft­ir­lif­andi eig­in­konu sinni, Guðmundu Kolbrúnu Guð­munds­dóttur árið 1963. Bjuggu þau í Lund­ar­brekku í Kópavogi og starf­aði Hilmar þá við pípu­lagnir. Árið 1980 fluttu hjónin að Hlíð­ar­vegi 5a. Samkvæmt mbl.is var þar góður bíl­skúr þar sem Hilmar hóf að rækta mót­or­hjóla­bakt­er­í­una.

Hilmar var einn af stofn­fé­lögum Bif­hjóla­sam­taka Lýð­veld­is­ins, Snigla en þegar Snigl­arnir voru stofn­aðir árið 1984 var Hilmar nokkru eldri og reynd­ari en aðrir í sam­tök­unum. Naut hann tak­marka­lausrar virð­ingar innan Snigl­anna og var honum í heið­ur­skyni úthlutað Snigla­núm­er­inu #1. Í Snigl­unum var hann yfir­leitt kall­aður „Old Timer“ en smám saman breytt­ist það í „Tæmerinn“.

Þegar árin færð­ust yfir varð Hilmar dug­legri við að gera upp gömul mót­or­hjól en hann var ein­stak­lega fær við þá iðju og naskur að finna eða smíða vara­hluti sem vant­aði, sem aðrir töldu ófá­an­lega með öllu. Fjölmörg listi­lega vel upp­gerð mót­or­hjól liggja eftir Hlmar, af öllum gerðum og stærðum.

Börn þeirra Hilm­ars og Guðmundu eru Auður Sól­veig, Atli (lést 1998), Sveinn Fjeld­sted og Hrafn­hild­ur Fjeld­sted.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins