„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“
Hen­ri­etta og Eliza Mynd: Trausti Hafsteinsson

Dán­ar­or­sök tveggja systra sem fund­ust í ánni Aberdeen hefur verið upp­lýst.

Þrí­bura­syst­urnar Hen­ri­etta og Eliza Huszti, 32 ára, sáust síð­ast 7. jan­úar áður en lík þeirra fund­ust í ánni Dee nokkrum vikum síðar 31. jan­úar. Dán­ar­or­sök þeirra hefur verið stað­fest sem drukknun og segir lög­regla að dauðs­föllin séu ekki talin grun­sam­leg.

Sjá einnig:

Tvær þrí­bura­systur hurfu spor­laust í Skotlandi – Lík fannst í á nærri staðnum sem þær sáust síð­ast

Hen­ri­etta, kaffi­bar­þjónn og Eliza, sem starf­aði við her­berg­is­þrif á hót­eli, hurfu í síð­asta mán­uði, en lög­reglan í Skotlandi hóf gríð­ar­stóra leit og not­aði sér­fræði­að­stoð lög­reglu, bæði ríkis og stað­bund­innar, þar á meðal leit­ar­hunda, sjó- og köf­un­ar­ein­ingar og flug­að­stoð, til að reyna að hafa uppi á þeim.

Gríð­ar­leg leit fór fram á sínum tíma.

Síðasta þekkta augna­blik þeirra var 7. jan­úar á Vikt­or­íu­brúnni en þær beygðu til hægri inn á göngu­stíg við hlið­ina á ánni. Syst­urnar, sem voru hluti af þrí­burum frá Ung­verja­landi, höfðu farið á sömu brú dag­inn fyrir hvarf þeirra. Sama dag höfðu þau sent leigu­sala sínum smá­skila­boð og sagt að þær myndu flytja úr íbúð­inni sinni, ákvörðun sem þau höfðu ekki deilt með ætt­ingjum.

Fyrra líkið fannst 31. jan­úar við Queen Elizabeth Bridge, um hálfa mílu frá Vikt­or­íu­brúnni, þar sem seinna líkið fannst síðar um kvöldið. Systir þeirra, Edit Huszti, sagð­ist hafa talað við þær báðar á gamlárs­kvöld. Hún sagði að þær hafi virst glaðar og kátar meðan á sam­tal­inu stóð. Það reynd­ist í síð­asta skiptið sem þær töl­uðu saman.

Bróðir þeirra, Jozsef Huszti, sagði við BBC News að móðir þeirra hafi talað við dætur sínar í 40 mín­útna sam­tali fjórum dögum áður en þær hurfu. Hann sagði að ekk­ert hafi virst óvenju­legt.

Eliza og Hen­ri­etta eru sagðar hafa verið afar nánar, gert flest saman og safnað saman til að kaupa sitt eigið hús­næði. Konurnar komu til Bret­lands fyrir sex árum og höfðu starfað í Aberdeen síðan þá. Fjöl­skyldan segir að Hen­ri­etta hafi unnið í úti­búi Costa í borg­inni.

Að vera úti á götu snemma morg­uns var óvenju­leg hegðun fyrir þær, að mati fjöl­skyldu þeirra. Lög­reglan segir að hús­ráð­andi þrí­bu­r­anna hafi fengið skila­boð um klukkan 02:12 um að þær myndu ekki snúa aftur í íbúð­ina sína, sem varð til þess að hún hringdi á lög­regl­una. Hún fann eigur systr­anna í íbúð þeirra, þar sem aðeins einn far­sími þeirra var tek­inn með sér. Slökkt var á þeim far­síma eftir að haft var sam­band við leigusal­ann.

Syst­urnar sáust í örygg­is­mynda­vél.

Degi fyrir hvarf þeirra, klukkan 14:50 mánu­dag­inn 6. jan­úar, sáust syst­urnar á örygg­is­mynda­vélum við Vikt­or­íu­brúna með bak­poka. Síðar sást til þeirra ganga til baka í átt að íbúð þeirra á Charlotte Street. Snemma á þriðju­dags­morgun, sáust þær aftur á örygg­is­mynda­vél við brúna. Í þetta skiptið eyddu þær fimm mín­útum á göngu­braut­inni á brúnni en áttu ekki sam­skipti við aðra áður en þær virt­ust hverfa.

„Við botnum ekk­ert í þessu,“ sagði bróð­ir­inn Jozsef við BBC. „Að þær hafi skrifað leigu­sala sínum skila­boð, að þær vildu segja upp leigu­samn­ingi sínum strax. Við höfðum engar upp­lýs­ingar um það. Svo það er það und­ar­lega að stelp­urnar hafi ekki sagt okkur neitt um það.“

Ef ein­stak­ling­ar glíma við sjálfs­vígs­hugs­an­ir er bent er á Hjálp­arsíma Rauða kross­ins 1717 og net­spjall Rauða kross­ins 1717.is. Opið allan sól­ar­hring­inn. Einnig má hafa sam­band við Píeta-sam­tök­in sem veita ókeyp­is ráð­gjöf í síma 552-2218, allan sól­ar­hring­inn. Net­spjall Heilsu­veru þar sem svarar hjúkr­un­ar­fræð­ingur er líka opið frá kl.8-22 alla daga. Fyrir þau sem misst hafa ást­vin í sjálfs­vígi má fá stuðn­ing í sorg hjá Sorg­ar­mið­stöð og hjá Pieta sam­tök­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Heimur

Heimur

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Heimur

Amazon-bílstjóri keyrði yfir konu og yfirgaf vettvang – MYNDBAND

Heimur

Par neyddist til að sitja við hlið látinnar konu í 13 tíma flugi: „Þokkalega átakanlegt að horfa á“

Heimur

Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

Heimur

Barn skotið til bana af lögreglumanni í San Diego – MYNDBAND

Heimur

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“