Mannlífið Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“
FólkHefur loðað við konur að byrja seint að skrifa11. desember 2020 Benný Sif Ísleifsdóttir var orðin fjörutíu og sex ára þegar hún gerði alvöru úr því að leggja skriftir fyrir sig. Hún segist sáralítið hafa skrifað fyrir þann tíma, var heimavinnandi húsmóðir með fimm börn og síðan í námi í þjóðfræði í Háskólanum. Skriftirnar liggja þó vel fyrir henni og nú er önnur skáldsaga hennar, Hansdætur, komin út og fær rífandi...
Fólkvikan„Ég þekki einmana fólk sem fáa grunar að sé einmana“9. desember 2020 Eftir / Steingrím Sævarr Ólafsson Maðurinn einn er ei nema hálfur, með öðrum er hann meiri en hann sjálfur -Einar Benediktsson Það er líklega fátt verra en einmanaleiki. Að upplifa félagslega einangrun, að finnast maður yfirgefinn, einn, vinafár, jafnvel vinalaus, að maður sé ekki nógu góður eða skemmtilegur. Í eðlilegu árferði er það nógu erfitt, á Covid tímum talsvert meira...
Fólk„Líf mitt er svolítið eins og töfrandi ævintýri“9. desember 2020 Hjördís Dögg Grímarsdóttir er þekkt fyrir góðar og flottar köku- og mataruppskriftir og hefur í rúman áratug rekið síðuna mömmur.is sem er með mörg þúsund fylgjendur á Facebook og Instagram. Þessi ljúfa og jákvæða Skagakona er í forsíðuviðtali jólablaðs Vikunnar sem komið er á næsta sölustað og fæst einnig í áskrift. Ekki nóg með það, heldur sá Hjördís um að...
FólkRæningjar æstir í köku Siggu Eyrúnar8. desember 2020 Söng- og leikkonan Sigríður Eyrún Friðriksdóttir, eða Sigga Eyrún eins og hún er kölluð, nýtur þess að eiga góðar stundir með fjölskyldunni á aðventunni og um jólin og ef tími gefst veit hún fátt skemmtilegra en að baka. „Mér þykir mjög gaman að baka og hef tekið mig til og gert jóla-biscotti, piparkökur, jólakonfekt og séð um eftirréttina á jólunum...
FólkKvenskörungar á norðurslóðum7. desember 2020 Mikið hefur mætt á ríkisstjórnum flestra landa í heimsfaraldrinum undanfarna mánuði og hefur athyglin beinst að forkólfum þeirra sem aldrei fyrr. Dregið hefur verið fram að lönd þar sem konur eru í æðstu embættum hafa mörg hver staðið sig betur í baráttunni við veiruna en lönd þar sem karlar eru í forsvari. Á norðurslóðum eru konur í meirihluta í embættum...
FólkÓtakmarkað geymsluþol sé hún vökvuð með áfengi7. desember 2020 Nanna Rögnvaldardóttir matreiðslubókahöfundur og matargúrú er í kökublaði Vikunnar að þessu sinni. Hún bakar tilviljanakennda ávaxtaköku sem enginn borðar nema hún sjálf. „Ég valdi þessa af því að ég held upp á hana og af því að hún er svo tilvalin til að nýta ýmislegt sem safnast upp; afganga úr pokum með þurrkuðum ávöxtum og hnetum, eitt og annað sem...
FólkJólasveinarnir fínu í gluggunum30. nóvember 2020 Margir muna eftir litlu jólasveinunum sem hreyfðust svo fallega í jólalegu búðargluggunum í Hafnarstrætinu í miðbæ Reykjavíkur. Þessir jólasveinar tilheyrðu Rammagerðinni, sem nú er orðin 80 ára en í þessa áratugafjöld hefur hún þróast og vaxið frá því að vera rammagerð og út í að vera ein elsta gjafavöruverslunin á landinu en nú er flaggskipið á menningar- og listaveginum Skólavörðustíg....
FólkvikanGrannkonan góða29. nóvember 2020 Lífsreynslusaga úr Vikunni: Fyrir tveimur árum flutti móðir mín í blokk. Hún hafði ákveðið að minnka við sig eftir að pabbi dó og þetta var falleg íbúð, fullkomin fyrir eina manneskju. Í byrjun gekk allt vel og mamma var mjög ánægð en svo flutti ný kona í húsið og þá breyttist allt. Grannkonan bjó á móti mömmu og fljótlega fór...
FólkvikanKanónur í kökublaði Vikunnar: Eitt vinsælasta blað landsins er að lenda!25. nóvember 2020 Fjöldi sælkera setur á sig svuntuna og galdrar fram dýrindis kökur og kræsingar fyrir lesendur Vikunnar, í nýjasta tölublaðinu sem kemur í verslanir á morgun, fimmtudag. Margir þeirra eru Íslendingum að góðu kunnir fyrir snilli sína í eldhúsinu og má þar nefna Albert Eiríksson, Evu Laufeyju Kjaran og Nönnu Rögnvaldardóttur. Uppskriftirnar eru jafnfjölbreyttar og viðmælendur Vikunnar. Sylvía Haukdal Brynjarsdóttir prýðir...
FólkBróðir Huldu afplánaði 5 ára dóm: „Saga bróður míns er sigursaga“18. nóvember 2020 Hulda Bjarnadóttir er landsmönnum góðkunn úr fjölmiðlaheiminum. Auk þess hefur hún verið framkvæmdastjóri Félags kvenna í atvinnulífinu, FKA og Krafts, stuðningsfélags fyrir ungt fólk með krabbamein og aðstandendur, og unnið við ráðgjöf og kennslu í almannatengslum, mörkun og viðburðastjórnun fyrir innlend og erlend fyrirtæki. Í dag starfar Hulda á mannauðssviði Marels þar sem hún leiðir alþjóðleg verkefni af ýmsu tagi....
FólkVill gefa ósýnilega fólkinu rödd6. nóvember 2020 Vilborg Davíðsdóttir var að senda frá sér skáldsöguna Undir Yggdrasil þar sem hún heldur áfram að segja sögur kvenna á landnámsöld. Í þessari bók er söguhetjan Þorgerður Þorsteinsdóttir, sonardóttir Auðar djúpúðgu sem Vilborg skrifaði þríleik um. Sterk kona sem fer sínar eigin leiðir, brýtur hefðir, upplifir djúpa sorg og menntar sig í völvufræðum. Þótt sagan gerist árið 900 talar umfjöllunarefnið...
Fólk„Þarf maður kannski að sækja um undanþágu til að fá að lifa?“1. nóvember 2020 Hlín Agnarsdóttir var að senda frá sér skáldsöguna Hilduleik þar sem hún skapar óhugnanlega framtíð fyrir eldri borgara landsins, sem sviptir eru nánast öllum réttindum þegar þeir ná ákveðnum aldri. Hlín segir söguefnið hafa komið til sín eftir dauða móður sinnar sem lést eftir sex mánuði á hjúkrunarheimili, þótt hún hefði fram að því verið ágætlega hress, ekki komin með...