Mannlífið Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“
InnlentPrestur gagnrýnir orð vígslubiskups: „Þetta lið býr í glerhúsi.“11. nóvember 2021 Prestur sem kominn er á eftirlaun segir orðræðu Solveigar Láru Guðmundsdóttur, vígslubiskups á Hólum, í morgunútvarpi Rásar 2 á dögunum, til skammar. Þar sagði Solveig Lára meðal annars að lítið traust almennings í garð Þjóðkirkjunnar mætti rekja til lítillar þekkingar fólks á störfum hennar. Lét hún þau orð falla út frá umræðu um nýjasta þjóðarpúls Gallup, þar sem fram kom...
InnlentSiðrof samfélagsins: Telur lítið traust stafa af vanþekkingu á störfum Þjóðkirkjunnar9. nóvember 2021 Solveig Lára Guðmundsdóttir, vígslubiskup á Hólum, vill kenna skorti á kristindómsfræðslu og vöntun á biblíusögulestri um kvíða ungs fólks í dag. Þetta hafði vígslubiskupinn á orði í morgunútvarpi Rásar 2 í morgun. „Ef við horfum á síðustu tuttugu árin hefur náttúrulega heil kynslóð vaxið úr grasi sem hefur ekki lært til dæmis neinar biblíusögur eða fengið neina kristindómsfræðslu og þá...
InnlentÍslenska þjóðkirkjan: Fimmtán prósent Íslendinga eru ánægðir með störf Agnesar biskups8. nóvember 2021 Þriðjungur Íslendinga ber mikið traust til þjóðkirkjunnar, en þetta kom fram í nýjum Þjóðarpúlsi frá Gallup. Hlutfall þeirra sem bera mikið traust til kirkjunnar er sambærilegt og fyrri ár: 36% bera lítið traust til kirkjunnar en þriðjungur Íslendinga ber hvorki lítið né mikið traust til kirkjunnar. Lítið hefur breyst í viðhorfi Íslendinga til aðskilnaðs ríkis og kirkju; 23% eru á...
InnlentBiskupBrottreknir starfsmenn í máli við Þjóðkirkjuna – Agnes er sökuð um óráðssíu og einelti23. október 2021 Aðalmeðferð í máli Magnhildar Sigurbjörnsdóttur gegn Þjóðkirkjunni fer fram þann 27. október næstkomandi í Héraðsdómi Reykjavíkur. Magnhildur er fyrrverandi starfsmaður Þjóðkirkjunnar, sem vann náið með Agnesi M. Sigurðardóttur biskupi. Hún var í kirkjuráði og starfaði á Biskupsstofu sem verkefnisstjóri fjármáladeildar. Hún var einnig framkvæmdastjóri leikmannastefnunnar. Magnhildur er ekki fyrsti fyrrverandi starfsmaður Þjóðkirkjunnar sem leggur til atlögu við stofnunina. Áður hafði...
InnlentKirkjanSéra Skírnir krefst réttlætis: Agnes biskup dregin fyrir dóm á fimmtudag17. mars 2021 Agnes Sigurðardóttir biskup verður dregin fyrir dóm á næstunni vegna meintra brota gegn Skírni Garðarssyni sem hrakinn var úr starfi i tvígang. Skírnir telur brottreksturinn vera ólögmætan. Hann fer fram á háar bætur frá kirkjunni, annars vegar miskabætur vegna æruskaða og meingerðar á persónu hans upp á 4.5 milljónir króna og hins vegar skaðabætur vegna þess tjóns sem presturinn telur...
InnlentKristinn segir biskup stjórna með geðþóttaákvörðunum: „Hafa kirkjuyfirvöld eitthvað að fela?“4. janúar 2021 Kristinn Jens Sigurþórsson, fyrrverandi sóknarprestur saurbæjarprestakalls á Hvalfjarðarströnd, telur að íslensku þjóðkirkjunni sé stjórnað með geðþóttaákvörðunum Agnesar Sigurðardóttur biskups og kollega hennar. Honum sýnist kirkjuyfirvöld einfaldlega gera mun minni siðferðiskröfur til sjálfra sín en þau gera til annarra. Skoðanir Kristins koma fram í aðsendri grein í Morgunblaðinu. Þar tekur hann tvö dæmi um presta sem hafa misst embætti sín vegna...
InnlentGuðbjörn telur Agnesi biskup hafa villst að heiman: „Mér varð undarlega innanbrjósts“17. nóvember 2020 Guðbjörn Jónsson, fyrrverandi ráðgjafandi, er þeirrar skoðunar að Agnes Sigurðardóttir, biskup Íslands, og meðbiskupar hennar hjá Þjóðkirkjunni séu villtir. Þeirra megin hugðarefni séu peningar í stað boðskapsins um mannkærleika, virðingu og auðmýkt. Guðbjörn ritar skoðun sína í aðsendri grein í Morgunblaðinu og segir tilefni skrifa sinna vegna grein biskupanna þriggja hérlendis, Agnesar, Sólveigar Láru Guðmundsdóttur og Kristjáns Björnssonar. Hann leitaði...
InnlentWerner Ívan segir stjórnendur kirkjunnar ekki saklausa: „Hvað er eiginlega á seyði?“16. október 2020 Werner Ívan Rasmusson, aldurhnigið sóknarbarn þjóðkirkjunnar, er ekki par hrifinn af hugmyndinni um aðskilnað ríkis og kirkju. Hann telur víst að með því komi áhrif Þjóðkirkjunnar til að minnka enn frá því sem orðið er og hleypa öðrum miður æskilegum trúarbrögðum að valdastóli. „Mér skilst að þetta þýði að þjóðkirkjan verði lögð af sem slík og þykja mér það vondar...
SlúðurorðrómurAfkomandi sálmaskálds í ónáð biskups8. október 2020 Það þykir ekki farsælt fyrir presta og aðra starfsmenn Þjóðkirkjunnar að andmæla yfirstjórninni. Á meðal þeirra sem eru í ónáð Agnesar Sigurðardóttur biskups er séra Úrsúla Árnadóttir sem í tvígang hefur kært það að brotið var á henni. Í bæði skiptin vann hún málin og úrskurðað var að biskup hefði brotið jafnréttislög. Hermt er að arkitektinn á bak við brotin...
InnlentÓlgan í kringum biskup: Kirkjan neitar ítrekað að svara fyrir ávirðingar6. október 2020 Þjóðkirkjan neitar að svara fyrir þau deilumál sem finna má innan kirkjunnar. Um nokkurt skeið hefur Mannlíf leitað viðbragða hjá talsmönnum hennar vegna ýmissa mála en án árangurs. Pétur Georg Markan, samskiptastjóri Biskupsstofu, virðist ekki vilja ræða viðkvæm málefni sem að kirkjunni snúa. Um nokkurt skeið hafa hrannast upp ósvaraðar fyrirspurnir vegna mála sem snúa að einelti og deilum innan...
SlúðurorðrómurÆvareiður prestur í Skálholti2. október 2020 Bænabréf, sem skilið var eftir í kór Skálholtskirkju vegna þeirrar ákvörðunar kirkjuráðs og Kristjáns Björnssonar vígslubiskups að rukka alla þá sem heimsóttu kirkjuna, vakti mikla athygli. Þar lýsti starfsmaður Skálholtskirkju því sem synd að rukka syrgjendur og aðra sem vildu finna frið, gleði eða huggun. Margir fallast á þaða sjónarmið að Þjóðkirkjan seilist of langt í markaðshyggju og jafnvel græðgi...
InnlentBiskupDularfullt bænabréf í Skálholtskirkju – Biskup lýsir dónaskap og öskrum30. september 2020 Dularfullt bænabréf til biskups var lengi fyrir augum gesta og gangandi í Skálholtskirkju. Þar er fordæmd sú ákvörðun yfirstjórnar Þjóðkirkjunnar að innheimta aðgangseyri af gestum kirkjunnar. Bréfið hvarf seinna jafn skyndilega og það birtist en þá hafði fjöldi manns lesið það. Bréfinu virðist hafa verið stungið undir stól. Það nýmæli var tekið upp í Skálholtskirkju í sumarbyrjun 2019 að rukka...