„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Prestur gagnrýnir orð vígslubiskups: „Þetta lið býr í glerhúsi.“

Prestur gagnrýnir orð vígslubiskups: „Þetta lið býr í glerhúsi.“

Prestur sem kom­inn er á eft­ir­laun segir orð­ræðu Sol­veigar Láru Guð­munds­dóttur, vígslu­bisk­ups á Hólum, í morg­un­út­varpi Rásar 2 á dög­unum, til skammar.

Þar sagði Solveig Lára meðal ann­ars að lítið traust almenn­ings í garð Þjóð­kirkj­unnar mætti rekja til lít­illar þekk­ingar fólks á störfum hennar.

Lét hún þau orð falla út frá umræðu um nýjasta þjóð­ar­púls Gallup, þar sem fram kom að ein­ungis þriðj­ungur lands­manna beri mikið traust til Þjóð­kirkj­unnar. Rúmlega þriðj­ungur ber lítið traust til stofn­un­ar­innar. Einungis fimmtán pró­sent svar­enda sögð­ust ánægðir með störf Agnesar M. Sig­urð­ar­dóttur bisk­ups.

Solveig Lára hafði meðal ann­ars einnig á orði í þætt­inum að skortur á krist­in­dóms­fræðslu og vöntun á bibl­íu­sögu­lestri væri ein orsök kvíða ungs fólks í dag.

Þessi orð­ræða er í takt við umdeild orð Agnesar bisk­ups um sið­rof sam­fé­lags­ins, frá árinu 2019. Þar vildi hún meina að sið­rof í sam­fé­lag­inu væri ástæða minnk­andi trausts til Þjóð­kirkj­unnar.

Í sam­tali við Mannlíf sagði ofan­greindur prestur, sem ekki vill láta nafns síns getið, að ungt fólk væri upp til hópa vel upp­lýst. Það hafi hins­vegar ein­fald­lega ekki góða teng­ingu eða jákvæða reynslu af Þjóð­kirkj­unni. Við­kom­andi prestur segir að fyrir því séu ýmsar ástæður. Hann til­greinir þrjár þeirra:

„Prestar eru hálauna­fólk sem rukkar óspart fyrir sína þjón­ustu. Bisk­up­arnir eru hroka­gikkir, sem aldrei segj­ast verða varir við óánægju almenn­ings. Þjóð­kirkjan virð­ist vera tíma­skekkja á okkar dögum – prestar og bisk­upar höfða ekki til unga fólks­ins, það er svo ein­falt.“

Prest­ur­inn er ómyrkur í máli:

„Vanda­málið er vöntun á inn­sæi og læsi á nútím­ann.“

„Þetta lið býr í gler­húsi,“ segir hann að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins