„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Íslendingar elska marens!

Á Íslandi er varla haldin veisla án þess að skellt sé í mar­ens.

Íslendingar elska marens!
Það er á hreinu að mar­ens er mjög vin­sæll á Íslandi. Hér eru dásam­legar vegan mar­enskökur.

Ég hef spurt þónokkra í kringum mig hvort þeir hafi orðið varir við mar­enskökur á ferða­lögum sínum um heim­inn. Svarið er eig­in­lega alltaf nei eða að það hafi alla vega ekki verið mjög áber­andi. Því fór ég að velta fyrir mér hvort mar­ens­á­hugi og -ást sé eitt­hvað sér­ís­lenskt fyr­ir­bæri. Um það er erfitt að full­yrða en það er alveg á hreinu að mar­ens er engu að síður mjög vin­sæll á Íslandi. Varla er haldin íslensk veisla án þess að skellt sé í mar­ens og borin fram girni­leg og góm­sæt mar­en­sterta. Það var þessi ein­staki áhugi land­ans á mar­ens sem varð kveikjan að þessum mar­ens­þætti og við fórum alla leið!

Marens er mjög ein­föld kaka í eðli sínu en það eru nokkur atriði sem þarf að hafa í huga til þess að hann heppn­ist vel og verður farið yfir þau hér í þætt­inum. Ég hef heyrt því fleygt að veð­ur­far hafi áhrif á mar­ens­gerð, mik­ill loft­þrýst­ingur og raki séu t.d. ekki ákjós­an­legar breytur. Það tekur stundum aðeins lengri tíma að baka mar­ens­inn ef mjög rakt er í veðri en það hefur ekk­ert úrslita­vald. Franskar mak­rónur eru kannski það við­kvæm­asta en það verður þó ekki fjallað um þær hér.

Til eru nokkrar teg­undir af sæt­meti sem eru með svip­aða upp­bygg­ingu og mar­ens og er að mestu búið til úr eggja­hvítum og sykri og ég mun fara yfir helstu teg­und­irnar ásamt þessum hefð­bundna mar­ens sem við þekkjum öll svo vel.

Nokkur góð marens ráð

    • Hafið skál­ina alltaf tand­ur­hreina
    • Byrjið alltaf á því að þeyta eggja­hvít­urnar aðeins áður en sykrinum er bætt við
    • Hrærið auka­hrá­efni alltaf mjög var­lega saman við mar­ens­deigið
    • Ef eggjarauða bland­ast saman við hvít­urnar, veiðið hana upp með eggja­skurn. Prufið að
      þeyta, ef ekk­ert ger­ist, byrjið upp á nýtt og notið það gamla í ommeilettu.
    • 1 eggja­hvíta er u.þ.b. 30-35 g
    • 1 dl af eggja­vítum, sam­svarar hvítu úr þremur eggjum
    • Hafið alltaf eggja­hvít­urnar við stofu­hita
    • Geymið mar­ens í lok­uðum umbúðum
    • Mjúkir toppar:
      Þegar þeyt­ar­anum er stungið ofan í eggja­hvítu­hræruna, hann tek­inn upp og snúið við, slútir mar­ens­inn aðeins niður.
    • Stífir toppar:
      Þegar þeyt­ar­anum er stungið ofan í eggja­hvítu­hræruna, hann tek­inn upp og snúið við, stendur mar­ens­inn beint upp í loftið.

Fullt af skemmti­legum og góm­sætum mar­ens­upp­skriftun í köku­blaði Gest­gjafans! Nú fer hver að verða síð­astur að næla sér í ein­tak – enda upp­selt hjá útgef­anda!

Höfundur / Gunnar Helgi Guð­jóns­son
Stílsiti / Hanna Ingi­björg Arn­ars­dóttir
Myndir / Heiðdís Guðbjörg Gunn­ars­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Mannlífið

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður