„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Bleikt og freistandi rauðrófu-risotto

Rauðrófur hafa verið vin­sælar hér á landi síð­ustu ár enda eru þær bragð­góðar, fal­legar á lit­inn og mjög hollar. Þær inni­halda sterkt rautt lit­ar­efni sem gerir mat­inn sem þær bland­ast við bara fal­legri.

Bleikt og freistandi rauðrófu-risotto
Ómót­stæði­legt rauðrófu-risotto.

Þegar rauðrófa er skorin niður er betra að nota plast­bretti eða mat­ar­disk undir hana frekar en tré­bretti því tréð drekkur frekar í sig rauða lit­inn úr róf­u­nni. Samt sem áður er auð­velt að ná rauða litnum af flestum eld­hús­á­höldum með heitu vatni. Gott er að vera í gúmmí­hönskum til að sleppa við að fá lit­inn á hend­urnar.

Soðnar rauðrófur í vakúm­pökkum fást nú víða, þær er oft­ast að finna í græn­met­is­borði versl­ana. Þetta gerir öllum kleift að bjóða upp á rétti úr rauðrófum án fyr­ir­vara.

Á mið­öldum voru rauðrófur not­aðar í lækn­inga­skyni. Kemur fram í hinum ýmsu heim­ildum að þær hafi þótt góðar við melt­ing­ar­vanda­málum og ýmsum kvillum í tengslum við blóðið. Þær eru nán­ast fitu­lausar en með frekar háan syk­ur­stuðul. Rauðrófur eru ríkar af járni, A-, B6- og C-vítamíni, fólín­sýru, magnesíum og kal­íum og eru mjög trefj­a­ríkar.

Rauðrófur eru ekk­ert skyldar gul­róf­unum sem flestir þekkja. Þær eru af sömu ætt og spínat, eða af skraut­hala­ætt, en gul­rófur til­heyra kross­blóma­ætt og eru náskyldar kál­teg­undum og fleiri góðum nytja­plöntum.

Rauðrófu-risotto
fyrir 2-3

250 g eld­aðar rauðrófur
1 laukur
2 hvít­lauks­rif
1 msk. smjör
160 g Arborio-hrís­grjón, henta vel til að búta til risotto
1 ½ græn­metisten­ingur, t.d. frá Rapunzel
500 ml heitt vatn
60 ml þurrt hvítvín
1 blað lár­við­ar­lauf
¼ tsk. cayenne-pipar
100 g feta­ostur
smakkið til með salti og pipar
2 msk. fersk basi­líka

Skerið rauðróf­urnar í ten­inga og setjið til hliðar. Saxið lauk og hvít­lauk og steikið við vægan hita upp úr smjör­inu. Bætið hrís­grjón­unum saman við og látið malla aðeins með lauknum. Búið til soð úr sjóð­andi vatni og græn­metisten­ingi og hellið í nokkrum skömmtum út í hrís­grjónin og látið sjóða niður. Það sama er gert með hvítvínið. Hrærið alltaf í á meðan. Setið lár­við­ar­laufið út í og cayenne-pip­ar­inn. Það tekur um það bil 20 mín­útur að full­elda hrís­grjónin. Þegar 10 mín­útur eru liðnar af eld­un­ar­tím­anum eru rauðróf­urnar settar út í pott­inn. Smakkið til með salti og svörtum pipar. Takið lár­við­ar­laufið upp úr og skreytið rétt­inn með feta­osti og ferskri basi­líku.

Grunnaðferð við soðnar og bakaðar rauðrófur

Best er að sjóða eða baka rauðrófur heilar með hýð­inu. Þannig hald­ast nær­ing­ar­efni, bragð og vökvi betur í þeim við eldun.

Bakaðar: Hitið ofn­inn í 180°C. Pakkið hverri rófu þétt í álp­appír og bakið í u.þ.b. 45 mín­útur, tím­inn fer þó eftir stærð róf­u­nnar. Gott er að stinga prjóni í róf­u­rnar til að athuga hvort þær eru eld­aðar í gegn.

Soðnar: Setjið róf­u­rnar beint ofan í sjóð­andi vatn án þess að nokkuð sé búið að eiga við þær og sjóðið í u.þ.b. 45 mín­útur. Alls ekki að skera rót­ar­end­ann í burtu og ef stilk­ur­inn er langur er best að skilja nokkra senti­metra eftir af honum. Ef þetta er gert þá lekur minni safi úr róf­u­nni við eldun, þetta á í raun bæði við um bak­aðar og soðnar rófur. Suðu- eða bök­un­ar­tím­inn fer eftir stærð en með­al­rófa þarf 40-60 mín­útna eld­un­ar­tíma. Kælið róf­una áður en tekið er utan af henni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

aðalréttir

Einfalt og fljótlegt á nýju ári
Mannlífið

Einfalt og fljót­legt á nýju ári

Eftir allar hátíð­ar­kræs­ing­arnar sem hafa ein­kennt und­an­farna daga er freist­andi að hafa hlut­ina ein­falda og fljót­lega núna þegar kemur að elda­mennsku. Hérna kemur smá sam­an­tekt yfir rétti sem eiga það sam­eig­in­legt að vera til­tölu­lega fljót­legir og ein­faldir. Ótrúlega ein­föld laxa­baka Þessa er til­valið að græja í miðri viku. Mynd / Rakel Ósk Fljót­legur sítrónu­fisk­réttur Full­komið með soðnum kart­öflum. Mynd /...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Mannlífið

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður