„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Svarthvíta hetjan mín

Það eru ákveðnir töfrar sem fylgja svart­hvítum myndum.

Svarthvíta hetjan mín

Lengi vel voru svart­hvítar myndir það eina sem var í boði en jafn­vel í dag, mörgum ára­tugum eftir að lit­filmur voru fundnar upp, eru enn til kvik­mynda­gerð­ar­menn sem velja að taka myndir upp í svart­hvítu.

Datt í lukku­pott­inn
Í Nebraska (sjá mynd hér að ofan) kynn­umst við Woody Grant, öldruðum vél­virkja og fyrr­ver­andi mál­ara, sem ákveður að ferð­ast frá Montana til Nebraska til að inn­heimta milljón doll­ara sem hann heldur að hann hafi unnið í happ­drætti. Woody er vegna óhóf­legrar áfeng­is­neyslu í gegnum árin orð­inn veru­lega rugl­aður ofan í sér­visk­una sem hefur alltaf ein­kennt hann. Þegar hann fær bréf þar sem látið er að því liggja að hann hafi unnið milljón doll­ara í happ­drætti og það eina sem hann þurfi að gera sé að mæta á svæðið og sækja vinn­ing­inn. Allir í kringum hann vita að þetta er aug­lýs­inga­brella, eða hrein­lega svindl, en Woody er harður á því að vinn­ing­ur­inn sé raun­veru­legur og ákveður að sækja hann.

Schindler var þýskur við­skipta­jöfur sem óvænt gerð­ist bjarg­vættur mitt í þriðja ríki nas­ista í Þýska­landi.

Bjarg­vættur
Ósk­arsverð­launa­myndin Schindler’s List er byggð á sannri sögu Oskars Schindler. Hann var mont­inn og gráð­ugur þýskur við­skipta­jöfur sem óvænt gerð­ist bjarg­vættur mitt í þriðja ríki nas­ista í Þýska­landi. Hann ákvað að breyta verk­smiðju sinni í flótta­manna­búðir fyrir gyð­inga og náði þannig að bjarga 1.100 gyð­ingum frá því að verða sendir í Auschwithz-fanga­búð­irnar, þar sem gasklef­inn beið þeirra.

Myndin Man­hattan er talin vera ein af meist­ara­verkum Allens.

Svört kómedía
Leik­stjór­inn Woody Allen hefur gaman að því að leika sér með ýmis stíl­brigði eins og svart­hvíta filmu. Í Man­hattan leikur Woody Allen sjálfur Isaac sem er 42 ára og skil­inn við Jill. Hún býr nú með annarri konu og er að skrifa bók þar sem hún ætlar að deila per­sónu­legum hlutum úr sam­bandi þeirra Isaac. Isaac á svo í ást­ar­sam­bandi við ung­lings­stúlk­una Tracy þar til hann hittir Mary, hjá­konu besta vinar síns og kol­fellur fyrir henni.

Frances opnar hjarta sitt fyrir ást­inni og dans­inum á ný með mis­góðum árangri.

Hálf­full­orðin
Frances Ha í sam­nefndri kvik­mynd er dans­ari af lífi og sál. Hún starfar hins vegar sem dans­kenn­ari til að ná endum saman. Hana langar að gera og verða margt en nær árangri í fáu. Mesti sigur hennar hingað til er vin­átta hennar og Sophie. Vin­kon­urnar eru svona semi-hip­sterar og hanga saman öllum stundum, en fást við fátt utan þess að gera írónískar athuga­semdir um lífið um umhverfið í anda Dorothy Parker. Þegar fólk hefur orð á því að þær séu farnar að minna á les­bískt par sem sé hætt að stunda kyn­líf krefst Sophie að þær end­ur­skoði vin­átt­una. Þannig fer Frances opnar hjarta sitt fyrir ást­inni og dans­inum á ný með mis­góðum árangri.

Texti / Hildur Frið­riks­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vikan

Lífsreynslusaga Mannlífs: Litla dóttir mín fékk heilahimnubólgu og var hætt að þekkja mig
Fólkvikan

Lífs­reynslu­saga Mannlífs: Litla dóttir mín fékk heila­himnu­bólgu og var hætt að þekkja mig

Eftir að for­eldrar mínir skildu ákvað mamma að flytja með okkur systur út á land. Í kaup­staðnum bjó einnig æsku­vin­kona hennar sem átti tvær dætur. Þá eldri átti að gera að vin­konu minni og yngri að vin­konu systur minnar. Ég skynj­aði þó fljótt að eitt­hvað illt leynd­ist í þeirri systur sem mér var ætluð og við urðum aldrei vin­konur. Mörgum...
Heilinn gefur frá sér ástarhormón þegar við eldumst: „Gerir fólk sáttara við lífið og tilveruna“
Fólkvikan

Heilinn gefur frá sér ást­ar­hormón þegar við eld­umst: „Gerir fólk sátt­ara við lífið og til­ver­una“

Við þekkjum hugs­an­lega gamlan mann eða konu sem réttir ætíð fram hjálp­ar­hönd með bros á vör. Þetta kann að tengj­ast því að heil­inn losar meira af efn­inu oxýtósíni í takt við hækk­andi aldur, ef marka má nýlega rann­sókn. Efni þetta sem gjarnan er kallað „ást­ar­horm­ónið“, virð­ist gera fólk sátt­ara við lífið og til­ver­una, auk þess að reyn­ast öðrum hjálp­legra. Ást­ar­hormón...
Tengsl mataræðis og þunglyndis – Leið til að hjálpa einstaklingum að styðja við geðheilsu sína
Fólkvikan

Tengsl matar­æðis og þung­lyndis – Leið til að hjálpa ein­stak­lingum að styðja við geð­heilsu sína

Óþarfi er að fjöl­yrða um mik­il­vægi heil­brigðs matar­æðis á heilsu og lík­am­legt atgervi fólks. Fyrir því liggur fjöldi rann­sókna. Rann­sóknir MooDFOOD-verk­efn­is­ins, sem Heil­brigð­is­vís­inda­stofnun Háskóla Íslands er hluti af, benda hins vegar til að heilsu­sam­legt mat­ar­ræði hafi einnig mikið að segja um and­lega líðan okkar. Þung­lyndi er ein helsta orsök örorku í Evrópu. Þar til nú hafa nær­ing­ar­fræð­ingar haft tak­mark­aða getu...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu