„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Aldagömul aðferð gegn öldrun húðar

And­litsnudd má nota til að vinna gegn öldrun húðar.

Aldagömul aðferð gegn öldrun húðar

Það er fátt sem veitir jafn­mikla afslöppun og vellíðan og gott nudd. Flestir þekkja það sem leið til að losa um spennu og bólgur í vöðvum lík­am­ans en færri gera sér grein fyrir að það má einnig nýta til að sporna gegn öldrun húðar.

Eftir því sem við eld­umst lætur húðin meira og meira á sjá; vef­irnir slapp­ast, and­litið missir fyll­ingu og hrukkur mynd­ast. Við höfum áður fjallað um hvernig sé mögu­legt að hægja á þessu ferli með réttri húð­um­hirðu en einnig  má ná tölu­verðum árangri með því einu að nudda and­litið reglu­lega.

And­litsnudd eykur blóð­flæði til húðar sem eykur ljóma og þéttni hennar ásamt því að byggja upp vöðvana sem spornar gegn því að hún slapp­ist niður.

Til eru ýmsar aðferðir við and­litsnudd og sumar þeirra hafa tíðkast í margar aldir,  til dæmis er talið að Kleópatra hafi nuddað and­lit sitt til að við­halda feg­urð sinni. Á 19. öld not­uðu svo geis­hurnar í Japan svo­kallað shi­atsu-nudd, eða punkta­nudd. Þá eru fing­ur­góm­arnir not­aðir til að þrýsta létt á valda punkta á and­lit­inu sem hjálpar sog­æða­kerf­inu að losa um stíflur og úrgangs­efni sem hafa safn­ast fyrir í húð­inni.

And­litsnudd eykur blóð­flæði til húðar sem eykur ljóma og þéttni hennar ásamt því að byggja upp vöðvana sem spornar gegn því að hún slapp­ist niður. Eftir ein­göngu nokkra daga af end­ur­teknu nuddi er hægt að sjá mik­inn mun; vöðvarnir eru slakir svo ásýndin verður afslapp­aðri og ung­legri og húðin glóir vegna auk­ins blóð­flæðis og nær­ingar.

Lyk­ill­inn að góðu and­litsnuddi er að nota and­litsolíu en einnig má nota  olíu­hreinsi til að koma í veg fyrir að húðin drag­ist til en það eykur líka upp­töku virku efn­anna í olí­unni því þeim er nuddað svo vel inn í húð­ina.

And­litsnudd lífgar ekki aðeins upp húð­ina heldur hefur það einnig slak­andi og end­ur­nær­andi áhrif á lík­ama og sál. Við notum and­lit okkar og vöðva þess mun meira dags­dag­lega en við gerum okkur grein fyrir. Því er algengt að fólk finni fyrir ýmsum streitu­tengdum ein­kennum, til dæmis spennu­höf­uð­verk eða augn­þreytu sem má losa um með nudd­inu.

Einfalt punktanudd fyrir andlit

1. Gott er að byrja með léttum en þéttum strokum upp á við og til hliðar, yfir bæði kinnar og enni, til að und­ir­búa húð­ina. Síðan eru fing­ur­gómar löngu­tangar not­aðir til að þrýsta á punkta á and­lit­inu.
2. Þrýst er á milli auga­brúna og svo á þrjá punkta upp enni að hárs­rót. Því næst á miðjar auga­brúnir og svo aftur þrjá punkta upp enni að hárs­rót. Sama aðferð er svo einnig end­ur­tekin við enda auga­brúna.
3. Næst er þrýst undir augun, frá nefi og á fjóra punkta að gagn­auga. End­ur­takið þrisvar sinnum.
4. Síðan er þrýst á sex punkta með fram kinn­beinum þangað sem kjálki og kinn­bein mæt­ast. End­ur­takið þrisvar sinnum.
5. Undir mið­nesi er þrýst á fjóra punkta með fram efri vör að munn­vikum. End­ur­takið þrisvar sinnum.
6. Þrýst er undir miðja neðri.vör, með báðum fingrum, svo þrjá punta niður miðja höku og end­ur­tekið þrisvar sinnum.
7. Að lokum má klípa létt í húð­ina með vísi­fingri og þum­al­fingri. Á enni er klipið með fram auga­brún, um það bil fjögur klíp, og end­ur­tekið þrisvar. Síðan er klipið frá miðri höku og með fram kjálka, um átta klíp að eyra.

Texti / Hildur Frið­riks­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fróðleikur

Dularfull baktería étur flak Titanic: „Hefur hvergi fundist annars staðar“
Menning

Dul­ar­full bakt­ería étur flak Titanic: „Hefur hvergi fund­ist ann­ars staðar“

Baktería sem fannst árið 2010 á flaki Titanic, er smá saman að éta flak skips­ins til agna. Illugi Jök­uls­son fjöl­miðla­maður er haf­sjór upp­lýs­inga um allt milli him­ins og jarðar eins og nýjasta Facebook-færsla hans ber vitni um. Þar segir hann frá bakt­eríu sem fannst árið 2010 á flaki Titanic. Bakt­er­ían étur járn skips­ins smá saman og er nú talið að...
Illugi sýnir okkur hvað við erum lítil: „Maður lifandi, allt það furðulega líf!“
Menning

Illugi sýnir okkur hvað við erum lítil: „Maður lif­andi, allt það furðu­lega líf!“

Illugi Jök­uls­son fjöl­miðla­maður með meiru er haf­sjór af fróð­leik, það vita allir sem vilja vita. Í nýj­ustu færslu sinni á Facebook kemur hann með fróð­leik sem sýnir okkur hversu agn­arsmá við mann­fólkið erum í stóra sam­heng­inu. Í færsl­unni birtir Illugi gull­fal­lega ljós­mynd af fimm stjörnu­þokum sem kall­ast Kvintett Stefáns. Segir hann ómögu­legt að segja til um fjölda sól­stjarna innan Kvin­tetts­ins...
Nokkrar staðreyndir um kassavín …
Mannlífið

Nokkrar stað­reyndir um kassa­vín …

Fyrir nákvæm­lega 50 árum síðan, lagði Ástr­al­inn Thomas Angove, vín­gerð­ar­maður frá Suður-Ástralíu, inn umsókn á einka­leyfi á ílátum sem áttu eftir að umbylta vín­mark­aðnum. Poki úr pólý­etý­len­plasti sem gat inni­haldið 4,5 l af víni var settur í kassa úr pappa. Neyt­endur þurftu bara að klippa hornið af pok­anum og loka aftur með þar til gerðum tappa. Þessi vara þró­að­ist fljót­lega,...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu