„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Nokkrar staðreyndir um kassavín …

Nokkrar staðreyndir um kassavín …
kassa­vin

Fyrir nákvæm­lega 50 árum síðan, lagði Ástr­al­inn Thomas Angove, vín­gerð­ar­maður frá Suður-Ástralíu, inn umsókn á einka­leyfi á ílátum sem áttu eftir að umbylta vín­mark­aðnum. Poki úr pólý­etý­len­plasti sem gat inni­haldið 4,5 l af víni var settur í kassa úr pappa.

Neyt­endur þurftu bara að klippa hornið af pok­anum og loka aftur með þar til gerðum tappa. Þessi vara þró­að­ist fljót­lega, sér­stak­lega pok­inn sem varð tveimur árum seinna úr mörgum lögum af plasti og málmi. Seinna kom krani á pok­ann sem tryggði að hann væri loft­þéttur og læki ekki. Í dag inni­halda flestir kassar 3 lítra af víni, en ekki lengur 4,5 eða 5 lítra, sem sam­svarar fjórum 750 cl flöskum.

Þessi upp­finn­ing – eða kannski frekar hug­mynd – átti eftir að verða óhemju­vin­sæl í vín­heim­inum og sem dæmi má segja að rúm­lega helm­ingur af þeim vínum sem selj­ast á Norð­ur­löndum eru í kassa. Óneit­an­lega hefur kassa­vínið marga kosti fyrir neyt­and­ann: umbúð­irnar eru ódýr­ari en flösk­urnar og verð á hvern lítra af víni verður þar með ódýr­ari, vínið geym­ist betur eftir að búið er að opna og þægi­legra (og stundum örugg­ara) er að flytja vínið í þessum kössum. Neyt­and­inn verður samt að hafa nokkur atriði í huga þegar hann kaupir kassa­vín.

Líftími kassavínsins

Þó að vínið geym­ist betur eftir að búið er að rjúfa inn­sigli pokans (= opna kran­ann) en vín á flösku, gildir það ekki um geymslu vín­s­ins áður en kass­inn er opn­aður. Súrefni hefur mikil áhrif á geymslu víns og síast það í litlum mæli í gegnum plast­filmuna, meira en í gegnum gler­flösk­urnar. Kassavín hefur þar af leið­andi styttri líf­tíma áður en kass­inn er opn­aður, í flestum til­fellum eitt ár, og ber að sýna dag­stimpil. Vínið verður ekki hættu­legt heilsu eftir að það rennur út en bragð­ist breyt­ist, ávöxt­ur­inn minnkar.

Líftími vínsins í kassanum

Kassa­vínið hefur þó vinn­ing­inn þegar kemur að því að geyma það eftir að búið er að opna fyrir kran­ann. Talað er um að vínið geym­ist í 4 til 6 vikur eftir að búið er að opna. Það er kannski full­mikil bjart­sýni því eftir 3 til 4 vikur fer súr­efnið sem kemur inn þegar kran­inn er not­aður að hafa áhrif og ávöxt­ur­inn minnkar, vínið oxast þá og bragðið breyt­ist. Hér er það ekki hættu­legt heilsu en ánægjan er þó mest að drekka vínið ferskt og með því bragði sem ætl­ast er til að sé af því.

Vínið í kassanum er sama vínið og er í flöskunni en …

Þegar vín­inu er pakkað í fram­leiðslu­land­inu er það í flestum til­fellum það sama og er á flöskum með sama nafni en árgangur er ekki tekin fram á kass­anum (eða sjaldn­ast) þannig að þar er árgöngum blandað saman. Þegar vínið er flutt í tank­skipi frá fram­leiðslu­landi og pakkað í Evrópu þarf að nota aukefni til að „stabil­isera“ vínið, öll leyfi­leg, en kok­teill aukefn­anna getur komið fram sem óþol eða ofnæmi hjá þeim sem eru við­kvæmir fyrir – og þeim fjölgar stöðugt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

drykkir

Nokkrar staðreyndir um kassavín …
Mannlífið

Nokkrar stað­reyndir um kassa­vín …

Fyrir nákvæm­lega 50 árum síðan, lagði Ástr­al­inn Thomas Angove, vín­gerð­ar­maður frá Suður-Ástralíu, inn umsókn á einka­leyfi á ílátum sem áttu eftir að umbylta vín­mark­aðnum. Poki úr pólý­etý­len­plasti sem gat inni­haldið 4,5 l af víni var settur í kassa úr pappa. Neyt­endur þurftu bara að klippa hornið af pok­anum og loka aftur með þar til gerðum tappa. Þessi vara þró­að­ist fljót­lega,...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Mannlífið

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður