„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Lykillinn að góðum rakstri

Rakstur er mik­il­vægur þáttur í húð­um­hirðu karla. Hér eru nokkur góð ráð.

Lykillinn að góðum rakstri

Mjúkt skegg tryggir betri rakstur
Lyk­ill­inn að góðum rakstri er að tryggja það að skeggið sé vel blautt áður en haf­ist er handa. Þurrt skegg er nefni­lega mun harð­ara sem gerir það að verkum að rakst­ur­inn er erf­ið­ari og rak­vél­ar­blöðin slitna fyrr. Best er að skella sér í heita sturtu og raka sig svo eftir hana, en ef ekki gefst tími til að fara í sturtu er gott að setja vel heitan og rakan þvotta­poka á and­litið í um það bil tvær mín­útur fyrir rakst­ur­inn. Þetta mýkir skeggið, ásamt því að örva og opna húð­ina, þannig að rakst­ur­inn verður létt­ari og útkoman betri.

Sápa og bursti
Notið rak­sápu sem inni­heldur mikið af raka­gef­andi og smyrj­andi efnum, til dæmis glyser­íni og silíkoni, eða góðan andits­hreinsi sem freyðir vel. Gæð­arak­sápur mynda þykka og mjúka froðu án aðstoðar freyði­efna á borð við súlföt sem geta þurrkað húð­ina. Ef tími gefst er gott að leyfa rak­sáp­unni að vera um stund á húð­inni áður en rakst­ur­inn hefst svo skeggið verði eins mjúkt og mögu­legt er. Þótt sumar rak­sápur megi hæg­lega bera á með fingr­unum jafn­ast ekk­ert á við að nota góðan rak­bursta, eins og alvörurak­arar nota, því hann ýfir skegg­hárin þannig að rakst­ur­inn verður enn fínni en ann­ars.

Vertu með, ekki á móti
Við rakst­ur­inn er mik­il­vægt að nota góða rak­vél, hvort sem um ræðir raf­magns­rak­vél eða sköfu. Sköfu á alltaf að renna létt yfir hör­undið, ekki þrýsta fast að, og strekkja vel á húð­inni á meðan. Mik­il­vægt er að hreinsa rak­vél­ar­blaðið oft og vel meðan á rakstr­inum stendur, svo að ekki safn­ist hár á milli blað­anna. Ef sápan þornar þarf aðeins að nota meira vatn og vinna froð­una aftur upp með burst­anum, ekki nota meiri sápu. Það á alltaf að raka í sömu stefnu og skeggið vex, aldrei á móti. Að raka á móti skegg­vext­inum getur valdið sviða og inn­grónum hárum í and­liti ásamt því að auka lík­urnar á því að maður skeri sig við rakst­ur­inn. Til að tryggja góðan rakstur getur verið gott að setja aftur á sig rak­sápu og raka aðra umferð en þá þvert á skegg­vöxt­inn, en var­ast samt ofrakstur.

Eftir rakstur og sótt­hreinsun
Meðferð eftir rakst­ur­inn er ekki síður mik­il­væg og und­ir­bún­ing­ur­inn. Strax að loknum rakstri er gott að skvetta dálitlu köldu vatni á and­litið til loka húð­inni aftur. Margir klikka oft á því, bera strax á sig rakspíra og upp­skera mik­inn sviða. En það er ekki fyrr en að húð­inni hefur verið lokað á þennan hátt sem á að bera á sig rakspíra, helst ein­hvern sem inni­heldur lítið sem ekk­ert alkó­hól, eða raka­krem (after shave balm) til sótt­hreins­unar og mýk­ingar.

Viðhald á tækjum og tólum
Eftir hverja notkun þarf að hreinsa bæði burst­ann og rak­vél­ina. Hristið vatn úr burst­anum, ekki vinda hann, og geymið hann hang­andi svo hárin vísi niður, en það kemur í veg fyrir að raki safn­ist fyrir og valdi hár­losi. Bitlaust eða skítugt blað er ein meg­in­á­stæðan fyrir óþægi­legum rakstri og skurðum. Rak­vél­ar­brýni, eins og Razorpit, geta þá komið að góðum notum og gera manni kleift að spara í kaupum á rak­vél­ar­blöðum. Það eykur notkun hvers rak­vél­ar­blaðs frá tíu rök­strum upp í allt að hund­rað rakstra að hreinsa það og brýna svo að það verði hár­beitt á ný.

Texti / Hildur Frið­riks­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vikan

Lífsreynslusaga Mannlífs: Litla dóttir mín fékk heilahimnubólgu og var hætt að þekkja mig
Fólkvikan

Lífs­reynslu­saga Mannlífs: Litla dóttir mín fékk heila­himnu­bólgu og var hætt að þekkja mig

Eftir að for­eldrar mínir skildu ákvað mamma að flytja með okkur systur út á land. Í kaup­staðnum bjó einnig æsku­vin­kona hennar sem átti tvær dætur. Þá eldri átti að gera að vin­konu minni og yngri að vin­konu systur minnar. Ég skynj­aði þó fljótt að eitt­hvað illt leynd­ist í þeirri systur sem mér var ætluð og við urðum aldrei vin­konur. Mörgum...
Heilinn gefur frá sér ástarhormón þegar við eldumst: „Gerir fólk sáttara við lífið og tilveruna“
Fólkvikan

Heilinn gefur frá sér ást­ar­hormón þegar við eld­umst: „Gerir fólk sátt­ara við lífið og til­ver­una“

Við þekkjum hugs­an­lega gamlan mann eða konu sem réttir ætíð fram hjálp­ar­hönd með bros á vör. Þetta kann að tengj­ast því að heil­inn losar meira af efn­inu oxýtósíni í takt við hækk­andi aldur, ef marka má nýlega rann­sókn. Efni þetta sem gjarnan er kallað „ást­ar­horm­ónið“, virð­ist gera fólk sátt­ara við lífið og til­ver­una, auk þess að reyn­ast öðrum hjálp­legra. Ást­ar­hormón...
Tengsl mataræðis og þunglyndis – Leið til að hjálpa einstaklingum að styðja við geðheilsu sína
Fólkvikan

Tengsl matar­æðis og þung­lyndis – Leið til að hjálpa ein­stak­lingum að styðja við geð­heilsu sína

Óþarfi er að fjöl­yrða um mik­il­vægi heil­brigðs matar­æðis á heilsu og lík­am­legt atgervi fólks. Fyrir því liggur fjöldi rann­sókna. Rann­sóknir MooDFOOD-verk­efn­is­ins, sem Heil­brigð­is­vís­inda­stofnun Háskóla Íslands er hluti af, benda hins vegar til að heilsu­sam­legt mat­ar­ræði hafi einnig mikið að segja um and­lega líðan okkar. Þung­lyndi er ein helsta orsök örorku í Evrópu. Þar til nú hafa nær­ing­ar­fræð­ingar haft tak­mark­aða getu...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu