„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mamma veit best

Til eru ófáar kvik­myndir sem fjalla um hið flókna en fal­lega sam­band sem á sér stað milli móður og dóttur. Hér eru nokkrar sem sýna kómísku hlið­ina.

Mamma veit best

Svað­il­för í frum­skógi
Þegar kær­asti Emily segir henni upp ákveður hún að fara með ofur­var­kára móður sína í ævin­týra­legt frí til Ecuador. Það endar ekki betur en svo að þeim er rænt. Þær átta sig fljót­lega á því að þær verða að vinna saman, þrátt fyrir að vera gjör­ó­líkar týpur. Þessi reynsla hefur góð áhrif á sam­band þeirra og þær bind­ast fyrir vikið traust­ari böndum við það að reyna að losna úr prís­und­inni í frum­skóg­inum.

Sam­þykktur af mömmu
Í mynd­inni Because I Said So kynn­umst við Daphne Wilder. Hún er móðir sem þekkir engin mörk og vill vera með stöðug ítök í lífi dætra sinna. Dætur hennar þrjár eru geð­lækn­ir­inn Maggie, hin kyn­þokka­fulla og óábyrga Mae og hin óör­ugga en aðlað­andi Milly – sem er ekki enn gengin út og veit ekki hvernig á að haga sér þegar kemur að karl­mönnum. Til að koma í veg fyrir að yngsta dóttirin geri sömu mis­tök og hún gerði ákveður Daphne að finna sjálf full­kom­inn mann fyrir hana og koma þeim saman án þess að Milly viti.

Hættu­legt tvíeyki
Þegar kemur að því að svindla á millj­óna­mær­ingum eru mæðgurnar Maxine Paige sannir fag­menn. Svika­myllan í mynd­inni Heart­br­ea­kers er ein­föld; fyrst gift­ist Maxine þeim, síðan tælir Paige þá og svo fer Maxine fram á skilnað með til­heyr­andi skiln­að­ar­pakka. Þegar þessu er lokið snúa þær sér að næsta fórn­ar­lambi. Allt gengur eins og í sögu þar til Paige brýtur meg­in­reglu þeirra mæðgna og verður ást­fangin í alvöru af ungum bar­þjóni. Núna þarf Maxine að passa upp á að missa ekki dótt­ur­ina og besta glæpa­fé­laga sem hún mun nokkurn tíma eign­ast auk þess sem hún situr uppi gift hinum miður geðs­lega millj­arða­mær­ingi William Tensy.

Hollywood-upp­eldi
Hand­rits­höf­undur mynd­ar­innar Postcards from the Edge og bók­ar­innar sem hún er byggð á er engin önnur en leik­konan Carrie Fisher. Í mynd­inni er sagt frá leikkon­unni Suzanne sem er nýkomin af með­ferð­ar­stofnun vegna eit­ur­lyfjafíknar. Hún neyð­ist til að flytja aftur heim til móður sinnar sem hún sagði skilið við fyrir mörgum árum. Suzanne lifði í skugga móður sinnar alla sína æsku en Doris er hávær, stjórn­söm, sjálf­hverf og með mikið keppn­is­skap. Hún á það til að gefa dóttur sinni góð ráð, hvort sem hún sæk­ist eftir því eða ekki. Myndin er mjög kómísk og Meryl Streep og Shirley Maclaine fara á kostum í hlut­verki mæðgn­anna. Margar get­gátur hafa verið uppi um það hvort sam­band mæðgn­anna væri byggt á sam­bandi Carrie Fisher og móður hennar Debbie Reynolds en Carrie neit­aði því alla tíð.

Ólíkar en sam­rýndar
Myndin Anywhere but Here sýnir hversu ólíkar mæðgur geta oft verið. Adele August er sér­vitur kona sem fær einn góðan veð­ur­dag alveg nóg af litla bænum sem hún býr í. Hún yfir­gefur fjöl­skyld­una og annan eig­in­mann sinn og flytur til Beverly Hills ásamt dóttur sinni. Hún gerir það til að láta óræða og óraun­hæfa drauma sína ræt­ast. Dóttir hennar Ann er alls ekki sátt við flutn­ing­ana eða við lit­ríka hegðun móður sinnar. Adele skráir Ann í gagn­fræði­skóla í Beverly Hills með það fyrir augum að hún kynn­ist börnum frægra leik­ara, fari síðan í UCLA og verði leik­kona sjálf. Ann er hins vegar stað­ráðin í því að fara í háskóla á aust­ur­strönd­inni. Á end­anum sætt­ast þær hvor við aðra og læra að meta hversu ólíkar þær eru.

Texti / Hildur Frið­riks­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vikan

Lífsreynslusaga Mannlífs: Litla dóttir mín fékk heilahimnubólgu og var hætt að þekkja mig
Fólkvikan

Lífs­reynslu­saga Mannlífs: Litla dóttir mín fékk heila­himnu­bólgu og var hætt að þekkja mig

Eftir að for­eldrar mínir skildu ákvað mamma að flytja með okkur systur út á land. Í kaup­staðnum bjó einnig æsku­vin­kona hennar sem átti tvær dætur. Þá eldri átti að gera að vin­konu minni og yngri að vin­konu systur minnar. Ég skynj­aði þó fljótt að eitt­hvað illt leynd­ist í þeirri systur sem mér var ætluð og við urðum aldrei vin­konur. Mörgum...
Heilinn gefur frá sér ástarhormón þegar við eldumst: „Gerir fólk sáttara við lífið og tilveruna“
Fólkvikan

Heilinn gefur frá sér ást­ar­hormón þegar við eld­umst: „Gerir fólk sátt­ara við lífið og til­ver­una“

Við þekkjum hugs­an­lega gamlan mann eða konu sem réttir ætíð fram hjálp­ar­hönd með bros á vör. Þetta kann að tengj­ast því að heil­inn losar meira af efn­inu oxýtósíni í takt við hækk­andi aldur, ef marka má nýlega rann­sókn. Efni þetta sem gjarnan er kallað „ást­ar­horm­ónið“, virð­ist gera fólk sátt­ara við lífið og til­ver­una, auk þess að reyn­ast öðrum hjálp­legra. Ást­ar­hormón...
Tengsl mataræðis og þunglyndis – Leið til að hjálpa einstaklingum að styðja við geðheilsu sína
Fólkvikan

Tengsl matar­æðis og þung­lyndis – Leið til að hjálpa ein­stak­lingum að styðja við geð­heilsu sína

Óþarfi er að fjöl­yrða um mik­il­vægi heil­brigðs matar­æðis á heilsu og lík­am­legt atgervi fólks. Fyrir því liggur fjöldi rann­sókna. Rann­sóknir MooDFOOD-verk­efn­is­ins, sem Heil­brigð­is­vís­inda­stofnun Háskóla Íslands er hluti af, benda hins vegar til að heilsu­sam­legt mat­ar­ræði hafi einnig mikið að segja um and­lega líðan okkar. Þung­lyndi er ein helsta orsök örorku í Evrópu. Þar til nú hafa nær­ing­ar­fræð­ingar haft tak­mark­aða getu...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu