„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Þykir vænt um gallana sem enginn sér nema ég

Anna Jia á fram­tíð­ina fyrir sér þegar kemur að listi­legum kökum og öðrum kræs­ingum en hún nemur rekstr­ar­verk­fræði við Háskól­ann í Reykja­vík. Hún segir námið hafa ýtt sér út í bakstur en draum­ur­inn sé diplóma­gráða í köku­gerð­ar­list.

Þykir vænt um gallana sem enginn sér nema ég

„Fyrir mér eru kökur eitt­hvað sem gleðja bæði augað, hjartað og bragð­lauk­ana. Þær eru eitt­hvað fal­legt og góm­sætt sem kætir fólkið í kringum mig, og gerir lífið aðeins sæt­ara. Það að skapa og búa til kökur veitir mér líka hug­arró. Fyrir suma er það jóga, langar göngu­ferðir eða hug­leiðsla en í mínu til­felli er það að verja tímunum saman, án þess að finna fyrir tím­anum líða. Að móta lítil raun­veru­leg blóm úr smjör­kremi, para saman hina og þessa liti og búa til alla litlu hlut­ina sem eiga eftir að smella saman og búa til fal­lega heild. Ég tekst á við allar litlu áskor­an­irnar sem geta poppað upp þegar eitt­hvað fer úrskeiðis og þá reynir á að vera úrræða­góð. Á sama tíma þykir mér alltaf sér­stak­lega vænt um litlu gall­ana sem eng­inn sér nema ég.”

Samhliða námi hefur Anna Jia starfað sem fyr­ir­sæta en hún segir fer­il­inn hafa haf­ist fyrir til­viljun þegar hún var stödd á kaffi­húsi fjórtán ára. „Þar gekk að mér kona, Marie að nafni, og spurði hvort ég hefði áhuga á fyr­ir­sætu­störfum. Eftir það fór ég í mína fyrstu mynda­töku og í beinu fram­haldi á skrá hjá casting-fyr­ir­tæki fyrir aug­lýs­ingar. Stuttu síðar tók ég þátt í ELITE-keppn­inni og stóð uppi sem sig­ur­veg­ari. Í kjöl­farið fór ég út í aðal­keppn­ina sem haldin var í Shanghai. Það var mjög skemmti­leg reynsla þar sem ég kynn­ist stelpum alls staðar að úr heim­inum.“

„Ég fann samt strax að þetta var ekki heimur sem hent­aði mér því það er mikil harka og strangar reglur um ákveðin mál sem stelpur þurfa að passa í. Ég vildi frekar taka að mér ein­staka verk­efni hér heima og passa upp á and­lega og lík­am­lega heilsu. Það getur nefni­lega eng­inn bannað mér að borða kökur þegar ég vil.“

„Annars finnst mér þessi reynsla hafa kennt mér mikið hvað varðar fram­komu og sam­vinnu með fjöl­breyti­legu fólki frá alls­konar löndum. Hvort sem það er verið að skjóta ind­verska sápu­aug­lýs­ingu á sund­bol uppi á Langjökli eða í nota­leg­heitum fyrir Bláa lónið.“

Þegar talið berst að jóla­há­tíð­inni seg­ist hún halda fast í hefðir þó að til­rauna­starf­semin sé heldur aldrei langt undan. „Eitt af því sem er alveg ómissandi um jólin er ananas­frómas­inn hennar ömmu Rann­veigar. Þetta er sítrónu­frómas með ananas­bitum ofan á og rjóma. Mjög gam­al­dags og klass­ískur. Það ríkir enn í dag jafn­mikil sam­keppni milli okkar systk­in­anna um hver fái möndl­una. Ég verð líka alltaf að baka sörur fyrir jólin en und­an­farin ár hef ég verið í til­rauna­starf­semi með þær. Fyrir utan þessar klass­ísku hef ég prófað að gera kök­urnar úr hvítsúkkulaði, sítrónu og kókos sem heppn­uð­ust alveg æðis­lega vel. Fyrir þessi jól langar mig að prófa að gera lakk­rís- og hind­berjasörur svo það eru spenn­andi tímar fram undan.“

Viðtalið í heild má lesa í nýjasta tölu­blaði Vikunnar.

Myndir / Heiðdís Guðbjörg Gunn­ars­dóttir.
Förðun / Björg Alfreðs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vikan

Lífsreynslusaga Mannlífs: Litla dóttir mín fékk heilahimnubólgu og var hætt að þekkja mig
Fólkvikan

Lífs­reynslu­saga Mannlífs: Litla dóttir mín fékk heila­himnu­bólgu og var hætt að þekkja mig

Eftir að for­eldrar mínir skildu ákvað mamma að flytja með okkur systur út á land. Í kaup­staðnum bjó einnig æsku­vin­kona hennar sem átti tvær dætur. Þá eldri átti að gera að vin­konu minni og yngri að vin­konu systur minnar. Ég skynj­aði þó fljótt að eitt­hvað illt leynd­ist í þeirri systur sem mér var ætluð og við urðum aldrei vin­konur. Mörgum...
Heilinn gefur frá sér ástarhormón þegar við eldumst: „Gerir fólk sáttara við lífið og tilveruna“
Fólkvikan

Heilinn gefur frá sér ást­ar­hormón þegar við eld­umst: „Gerir fólk sátt­ara við lífið og til­ver­una“

Við þekkjum hugs­an­lega gamlan mann eða konu sem réttir ætíð fram hjálp­ar­hönd með bros á vör. Þetta kann að tengj­ast því að heil­inn losar meira af efn­inu oxýtósíni í takt við hækk­andi aldur, ef marka má nýlega rann­sókn. Efni þetta sem gjarnan er kallað „ást­ar­horm­ónið“, virð­ist gera fólk sátt­ara við lífið og til­ver­una, auk þess að reyn­ast öðrum hjálp­legra. Ást­ar­hormón...
Tengsl mataræðis og þunglyndis – Leið til að hjálpa einstaklingum að styðja við geðheilsu sína
Fólkvikan

Tengsl matar­æðis og þung­lyndis – Leið til að hjálpa ein­stak­lingum að styðja við geð­heilsu sína

Óþarfi er að fjöl­yrða um mik­il­vægi heil­brigðs matar­æðis á heilsu og lík­am­legt atgervi fólks. Fyrir því liggur fjöldi rann­sókna. Rann­sóknir MooDFOOD-verk­efn­is­ins, sem Heil­brigð­is­vís­inda­stofnun Háskóla Íslands er hluti af, benda hins vegar til að heilsu­sam­legt mat­ar­ræði hafi einnig mikið að segja um and­lega líðan okkar. Þung­lyndi er ein helsta orsök örorku í Evrópu. Þar til nú hafa nær­ing­ar­fræð­ingar haft tak­mark­aða getu...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu