„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Snillingur að taka sig til á stuttum tíma

Snillingur að taka sig til á stuttum tíma

Hulda Vig­dís­ar­dóttir vinnur á aug­lýs­inga­stof­unni Pipar/TBWA en hefur jafn­framt starfað sem fyr­ir­sæta í rúm sex ár, hér heima og erlendis. Hún þýddi einnig bók­ina Hnotu­brjót­ur­inn og músa­kóng­ur­inn eftir E.T.A. Hoffmann sem nýlega kom út í fyrsta sinn í íslenskri þýð­ingu. Mynd­skreyt­ingar í bók­inni eru eftir lista­kon­una Margréti Reykdal. Hulda leyfði okkar að kíkja aðeins í fata­skáp­inn sinn.

„Ég hef alltaf haft brenn­andi áhuga á tungu­málum og mál­vís­indum en fyrir tveimur árum lauk ég M.A.-prófi í íslenskri mál­fræði. Eins hef ég gaman af ljós­myndun, skap­andi skrifum og þýð­ingum. Ég myndi segja að fata­stíll­inn minn sé frekar afslapp­aður þótt mér finn­ist á sama tíma skemmti­legt að skera mig úr og koma fólki á óvart. Góð vin­kona mín sagði eitt sinn að ég væri „snill­ingur í að taka mig til á stuttum tíma“ og ætli það sé ekki bara ágætis lýs­ing á mínum per­sónu­lega stíl. Hverju ég klæð­ist, veltur ansi mikið á hvernig skapi ég er í þá stund­ina en yfir­leitt er ég þó með eitt­hvert skart á mér líka. Ég gæti verið í hettu­peysu og galla­buxum í dag en síð­kjól og pels á morgun. Sú flík sem hefur mesta til­finn­inga­gildið er senni­lega bleik ull­ar­peysa sem amma átti. Hún er ákaf­lega hlý fyrir kulda­skræfu eins og mig.“

Að hennar mati ættu allar konur að eiga fal­legar lát­lausar og vand­aðar svartar buxur sem ganga við öll til­efni. Síðan komi sér líka vel að eiga hlut­lausa boli og flotta klúta í lit sem passa við allt.

„Nýjustu kaupin í fata­skápnum mínum er rós­bleikur Stadium-jakki, svartur Trefoil-kjóll og bleikar Adibreak Tracsuit-buxur sem ég fékk á adi­das.is. Ég er eig­in­lega búin að vera skotin í Adidas síðan ég var átta ára og fékk fyrsta alvöru­í­þrótta­gall­ann minn en á meðan flestar stelp­urnar í bekknum völdu sér Nike-galla vildi ég ekki sjá annað en lín­urnar þrjár. Ég á meira að segja jakk­ann enn og nota af og til, þótt hann sé ef til vill í minnsta lagi. Mig hefur lengi langað í þessar þrjár Adidas-flíkur.“ Mynd/Hallur Karlsson
„Efst á óska­list­anum þessa stund­ina er silf­ur­lituð úlpa en mig hefur dreymt um slíka flík óra­lengi. Síð­ast­liðið vor varð svo þessi úlpa á vegi mínum og ég hef varla farið úr henni síðan.“ Mynd/Hallur Karlsson.
„Upp­á­halds­flíkin mín er, í fullri hrein­skilni, dúnskór úr Ikea sem besta vin­kona mín gaf mér í gríni um síð­ustu jól. Þar á eftir held ég síðan mest upp á fal­legan rauðan síð­kjól úr blúndu­efni sem ég fékk eftir eina fyrstu mynda­tök­una mína.“ Mynd/Hallur Karlsson
„Ég á nokkra upp­á­halds­skart­gripi sem ég get ekki gert upp á milli. Gull­hring sem föð­ur­amma mín lét smíða handa mér úr trú­lof­un­ar­hring sínum, gull­háls­men sem móð­ur­amma mín fékk frá afa og gaf mér í ferm­ing­ar­gjöf, silfur­arm­band frá mömmu og fleira.“ Mynd/Hallur Karlsson
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

minn stíll

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu