„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Best að finna jafnvægið í öllu

Hafrún Lilja Elí­as­dóttir er sann­kall­aður bakst­urs­snill­ingur sem hefur þann hæfi­leika að baka ekki aðeins góm­sætar kökur, heldur líka dásam­lega fal­legar kökur. Fjöl­skyldu­með­limir og vinir Hafrúnar njóta oft góðs af hæfi­leikum hennar en þegar kemur að hinum ýmsu til­efnum er hún ávallt boðin og búin að leggja sitt á vog­ar­skál­arnar.

Best að finna jafnvægið í öllu
|Gísli prýddi for­síðu Vikunnar í jan­úar árið 2009.|Gísli Þór lýsti erf­iðum upp­vaxt­ar­árum í við­tali við Vikuna árið 2009.

Hafrún Lilja er að eigin sögn ekki ein af þeim sem kemst í jóla­skap um leið og IKEA-geitin rís upp.

„Ég dett yfir­leitt ekki í jólagír­inn fyrr en í kringum 20. des­em­ber. Aðdrag­and­inn finnst mér ekk­ert sér­stakur, öll jóla­lögin, skrautið og stressið er ekki beint minn tebolli. En ég er mikið fyrir hefð­irnar og sam­ver­una með fólk­inu mínu í kringum hátíð­irnar, en við fjöl­skyldan höldum í nokkrar hefðir sem mér þykja ómissandi. Fyrst og fremst ber að nefna upp­setn­ingu jóla­þorps­ins hjá for­eldrum mínum, það er alveg heilög stund. For­eldrar mínir eru svo alltaf með hádeg­is­boð á aðfanga­dag fyrir okkur syst­urnar, maka og börn. Það er ein af mínum upp­á­halds­hefðum og hringir pínu­lítið inn jólin.“

Ég er sem sagt mikil sósu­kona.

Þegar kemur að ómissandi hefðum tengdum mat nefnir Hafrún fyrst ristað brauð með graf­lax og heima­til­búna sósu með. „Svo býr pabbi til heims­ins bestu sósu með jólamatnum sem ég kýs að kalla „pabbasósu“ en ég fæ mér yfir­leitt smá­vegis kjöt með sós­unni. Ég er sem sagt mikil sósu­kona. Svo má ekki gleyma því að njóta líka yfir hátíð­irnar og safna orku. Ég geri það bæði með því að liggja í uppi í sófa, undir teppi  með söru­skál­ina og með því að fara aðeins út í ferska loftið og kyrrð­ina og hreyfa mig. Mér finnst best að finna jafn­vægið í öllu.“

Hafrún hefur mik­inn áhuga á mat­ar­gerð og bakstri og er dug­leg að prófa sig áfram með nýjar upp­skriftir. „Ég þarf oft að vera svo­lítið flókin þegar kemur að elda­mennsku, vil oft vera með margar teg­undir af með­læti og svona, en Hjalti, kær­asti minn, kýs að hafa hlut­ina örlítið ein­fald­ari sem er bara frá­bært. Þar komum við aftur að jafn­væg­inu góða,“ segir hún. „Fyrir jólin baka ég yfir­leitt sörur, mömmu­kossa og ser­ena­kökur. Svo bý ég líka til sultu og jólaís. En enda­legur listi fer í raun allt eftir því hvað ég gef mér tíma í og hvað mig langar að gera hverju sinni.“

Sultan sem er góð með öllu

„Fyrst ætla ég að gefa upp­skrift að sultu sem hefur verið lengi í upp­á­haldi hjá mér með jólamatnum. Æsku­vin­kona móður minnar, sem kvaddi þessa ver­öld allt of snemma, gerði alltaf þessa sultu fyrir jólin. Hún keyrði hana alltaf út á aðfanga­dag til okkar og ann­arra. Þó að upp­skriftin sé ein­föld er það minn­ingin um þessa ynd­is­legu mann­eskju sem ég kýs að halda á lofti á þennan hátt og gefur mér og fjöl­skyldu minni mikið. Ég hef und­an­farin tvenn jól gert þessa sultu og laumað með til ætt­ingja og vina og hyggst gera það áfram.

En það er svo frá­bært að hún er góð með öllu. Ég borða hana alltaf með ham­borg­ar­hryggnum á jól­unum. En sultan er líka frá­bær með ostum, í jóla­graut­inn, ofan á brauð eða hvað sem er. Ég hvet ykkur til að prófa.“

Jarðaberjasulta með kanil

500 g jarð­ar­ber
250 g sykur
1-2 kanil­stangir (ég set yfir­leitt 2-3 stangir því ég vil meira kanil­bragð)
½ poki sultu­hleypir
20-30 ml vatn

Allt er sett saman í pott og látið malla á með­al­háum hita í svona 30-40 mín. Ég kýs að hafa jarð­ar­berin vel maukuð og því læt ég sult­una malla jafn­vel lengur og stappa þau niður með sleif­inni á meðan ég hræri. En ef jarð­ar­berin eiga að halda lögun sinni skal láta sult­una malla á lægri hita.

47. tbl. 2018, Hafrún Lilja, kaka, köku­blaðið, kökur, Margrét Björk, VI1810191960, vikan

Riz à l‘amande

125 g graut­ar­grjón
50 g sykur
1 vanillu­stöng
1,2 l nýmjólk
500 ml þeyttur rjómi
200 g möndlur, saxaðar gróft

Setjið hrís­grjón, sykur og nýmjólk í pott. Skerið vanillu­stöng­ina í tvennt og skafið inni­haldið ofan í pott­inn. Látið stöng­ina fylgja með. Sjóðið rólega saman í 40 mín. Hrærið reglu­lega og gætið þess að graut­ur­inn brenni ekki við. Slökkvið undir og setjið lok yfir. Látið standa og kólna. Kælið graut­inn yfir nótt.

Þeytið rjómann og hakkið möndl­urnar. Blandið var­lega saman við graut­inn. Gott er að gera það í þremur skömmtum. Geymið heila möndlu fyrir möndlu­gjöf. Berið fram með kirsu­berjasósu (kara­mellusósu og/eða jarð­ar­berja-kanilsult­unni).

Skotheldur jólaís

Gott er að gera ísinn nokkrum dögum fyrir jólin.

„Hér er upp­skrift að jóla­ísnum sem ég hef alltaf gert und­an­farin ár. Upp­skriftin er mjög ein­föld og tekur enga stund að skella í. Gott er að gera hana nokkrum dögum fyrir jólin og hafa eft­ir­rétt­inn til­bú­inn. Hægt er að leika sér með blönd­una með því að setja mis­mun­andi bragð­dropa og kurl í hana. Á mynd­inni má sjá ísinn í litlum tupperware-ísformum sem eru húðuð með hjúpsúkkulaði og skreytt með ferskum berjum.

En það sem mér þykir svo gott við ísinn er að það er hægt að leika sér með allskyns útfærslur. Setja í mis­mun­andi form og skreyta eftir til­efnum. Hlut­föllin af blönd­unni henta vel í eitt stórt íshring­form og svo þrjú lítil form eins og sést á mynd­inni. En þessi stærð er að mínu mati full­kom­inn skammtur í eft­ir­rétt á aðfanga­dags­kvöld og svo á ég hring­inn alltaf til við annað til­efni yfir hátíð­irnar.“

5 eggja­r­auður
5 msk. sykur
1 vanillu­stöng
½ l þeyttur rjómi
½ tsk. vanillu­dropar
½ poki af Nóa-kara­melluk­urli

Setjið eggja­r­auð­urnar í hræri­vél­ar­skál og þeytið í 1 mín­útu. Hellið sykrinum smátt og smátt saman við eggin og hrærið þar til syk­ur­inn og rauð­urnar verða léttar og ljósar eða í u.þ.b 5 mín­útur. Skerið vanillu­stöng­ina til helm­inga eftir endi­löngu og skafið kornin innan úr henni með hníf.

Setjið vanillu­kornin út í eggja­r­auð­urnar og látið vél­ina ganga í 10 sek. Blandið 1/3 af þeytta rjóm­anum saman við eggja­blönd­una með píski. Blandið afgang­inum af rjóm­anum smátt og smátt saman við blönd­una með stórri skeið eða sleif. Smakkið til með vanillu­dropum og setjið kur­lið var­lega í blönd­una og hrærið til. Setjið ísblönd­una í ísform og frystið.

Myndir / Hákon Davíð Björns­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

eftirréttir

Sætir byggbitar með súkkulaði
Mannlífið

Sætir bygg­bitar með súkkulaði

Í þessum sætu bitum notum við perlu­bygg sem er lúxus­út­gáfan af bygg­inu. Bygg hefur mjög lágan syk­ur­stuðul, inni­heldur flókin kol­vetni og er mjög trefj­a­ríkt og er því sér­lega gott fyrir melt­ing­una, svo er það líka mjög sað­samt og bragð­gott. Sætir bygg­bitar með súkkulaði 8-10 bitar 200 g perlu­bygg, soðið sam­kvæmt leið­bein­ingum á pakka 90 g kókos­flögur, ristaðar 80 g fíkjur,...
Sexí hráefni og sjúklega gott
Mannlífið

Sexí hrá­efni og sjúk­lega gott

Þennan búð­ing er ótrú­lega auð­velt að gera. Sýran í límón­unum veldur því að búð­ing­ur­inn hleypur og áferðin verður sér­stak­lega skemmti­leg og minnir um margt á eft­ir­rétt­inn vin­sæla Panna cotta. Hér voru not­aðar ferskjur með en það er um að gera að prófa fleira, til dæmis blá­ber, kara­melliseruð epli eða perur. Límónu­búð­ingur með kara­melliseruðum ferskjum fyrir 6-8 5 dl rjómi 140...
Ofureinfaldur og sumarlegur eftirréttur
Mannlífið

Ofurein­faldur og sum­ar­legur eft­ir­réttur

Eft­ir­réttir úr sítrónum eru afar ferskir en athugið að þær geta verið mjög mis­jafn­lega súrar og því er mik­il­vægt hér að smakka til. Eins er smekkur manna ákaf­lega mis­mun­andi þegar kemur að súru bragði. Bætið flór­sykri út í rjómann ef þarf en athugið samt að mak­rónu­kök­urnar eru mjög sætar og bæta við sætu­bragðið þegar rétt­ur­inn er settur saman. Í þennan eft­ir­rétt er líka til­valið að nota mar­enskökur í stað mak­róna, eða amar­etti-kökur ef þið kom­ist yfir slíkt.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu