„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Hreyfing er heilsubót

Fólki reyn­ist oft erfitt að sinna dag­legri hreyf­ingu og nefnir þá helst tíma­skort, þreytu, áhuga­leysi og óör­yggi sem ástæður. Mik­il­vægt er að gefa sér tíma til þess að hreyfa sig, þótt það sé ekki nema í hálf­tíma á dag, því hreyf­ing eykur lík­ams­hreysti, vellíðan og lífs­gæði almennt. Hægt er að hreyfa sig hvar og hvenær sem er og oft án lít­ils kostn­aðar – engar afsak­anir.

Hreyfing er heilsubót

Úr kyrr­setu í fimm kíló­metra hlaup
Það getur reynst mörgum erfitt að byrja að hlaupa. Couch to 5K er hlaupa­prógram sem hægt er að hlaða niður á snjall­síma og er hannað með því mark­miði að þjálfa fólk hægt og rólega upp í að geta hlaupið 5 km sam­fleytt.

Heima­til­búin lóð
Það er algjör óþarfi að kaupa dýr hand­lóð þegar maður er að byrja. Hægt er að nýta ýmsa hluti sem til eru á heim­il­inu sem lóð, til dæmis nið­ur­suðu­dósir. Einnig er snið­ugt að fylla plast­flöskur af vatni en eins lítra flaska er um það bil 1 kg.

Sippaðu eins og þú gerðir sem krakki
Að sippa er mjög áhrifa­rík leið til að bæta þolið því að tíu mín­útur af rösku sippi veitir álíka þolá­hrif og 30 mín­útur af skokki. Það sem meira er að þetta reynir á lang­flesta vöðva lík­am­ans og er rosa­lega skemmti­leg hreyf­ing.

Kíktu á bóka­safnið
Hægt er að fá fleira en skáld­sögur og fræði­rit á bóka­söfnum lands­ins. Flest bóka­söfn eru einnig með bæði lík­ams­rækt­ar­diska og -bækur til útláns. Kíktu á næsta bóka­safn og sjáðu hvað er til.

YouTube
Á YouTube er ógrynni af alls kyns skemmti­legum mynd­böndum. Margir vita þó ekki  að þar má líka finna ókeypis lík­ams­rækt­ar­mynd­bönd. Sem dæmi má nefna Blog­ilates-rás­ina þar sem pílates-kenn­ar­inn Cassey Ho setur inn hressi­leg og aðgengi­leg mynd­bönd.

Upp og niður stiga
Mik­il­vægt er að nýta öll tæki­færi sem gef­ast til hreyf­ingar. Einfalt er að venja sig af því að fara með lyft­unni upp eða niður, sama hvort um er að ræða eina hæð eða fimm, það mun koma þér á óvart hversu fljótt það venst.

Út að labba með hund­inn
Þeir sem eiga hund kann­ast við að neyð­ast til að fara með þá í göngutúr, alla­vega einu sinni á dag. Þeir sem ekki eiga hund geta þó tekið sér þetta til fyr­ir­myndar og miðað við að ganga að minnsta kosti hálf­tíma á dag.

Auð­veldar æfingar
Það eru til fjöl­margar styrkta­ræf­ingar sem hægt er að gera heima, jafn­vel á meðan maður horfir á sjón­varpið. Sem dæmi um slíkar æfingar má nefna: hné­beygjur, arm­beygjur, fram­stig, maga­æf­ingar og bakæf­ingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vikan

Lífsreynslusaga Mannlífs: Litla dóttir mín fékk heilahimnubólgu og var hætt að þekkja mig
Fólkvikan

Lífs­reynslu­saga Mannlífs: Litla dóttir mín fékk heila­himnu­bólgu og var hætt að þekkja mig

Eftir að for­eldrar mínir skildu ákvað mamma að flytja með okkur systur út á land. Í kaup­staðnum bjó einnig æsku­vin­kona hennar sem átti tvær dætur. Þá eldri átti að gera að vin­konu minni og yngri að vin­konu systur minnar. Ég skynj­aði þó fljótt að eitt­hvað illt leynd­ist í þeirri systur sem mér var ætluð og við urðum aldrei vin­konur. Mörgum...
Heilinn gefur frá sér ástarhormón þegar við eldumst: „Gerir fólk sáttara við lífið og tilveruna“
Fólkvikan

Heilinn gefur frá sér ást­ar­hormón þegar við eld­umst: „Gerir fólk sátt­ara við lífið og til­ver­una“

Við þekkjum hugs­an­lega gamlan mann eða konu sem réttir ætíð fram hjálp­ar­hönd með bros á vör. Þetta kann að tengj­ast því að heil­inn losar meira af efn­inu oxýtósíni í takt við hækk­andi aldur, ef marka má nýlega rann­sókn. Efni þetta sem gjarnan er kallað „ást­ar­horm­ónið“, virð­ist gera fólk sátt­ara við lífið og til­ver­una, auk þess að reyn­ast öðrum hjálp­legra. Ást­ar­hormón...
Tengsl mataræðis og þunglyndis – Leið til að hjálpa einstaklingum að styðja við geðheilsu sína
Fólkvikan

Tengsl matar­æðis og þung­lyndis – Leið til að hjálpa ein­stak­lingum að styðja við geð­heilsu sína

Óþarfi er að fjöl­yrða um mik­il­vægi heil­brigðs matar­æðis á heilsu og lík­am­legt atgervi fólks. Fyrir því liggur fjöldi rann­sókna. Rann­sóknir MooDFOOD-verk­efn­is­ins, sem Heil­brigð­is­vís­inda­stofnun Háskóla Íslands er hluti af, benda hins vegar til að heilsu­sam­legt mat­ar­ræði hafi einnig mikið að segja um and­lega líðan okkar. Þung­lyndi er ein helsta orsök örorku í Evrópu. Þar til nú hafa nær­ing­ar­fræð­ingar haft tak­mark­aða getu...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu