„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Lífið er of stutt fyrir vont kaffi

Kaffið er punkt­ur­inn yfir i-ið eftir góða veislu eða með kök­unum. Um jólin er einmitt tím­inn til að gera vel við sig svo ekki gleyma að velja þér gott kaffi til að njóta yfir hátíð­arnar. Lífið er of stutt fyrir vont kaffi.

Lífið er of stutt fyrir vont kaffi

Íslandi er hægt að kaupa mikið úrval af góðu kaffi, bæði í sér­versl­unum fyrir kaffi og úti í stór­mark­aði. Í Hagkaup í Garðabæ sá ég nýlega að fín­asta kaffi var þar til sölu, m.a. frá Kaffi­tári, Te og kaffi og fleiri íslenskum fyr­ir­tækjum. Þegar ég skrif­aði um kaffi fyrir Gest­gjafann hér áður fyrr mælti ég annað slagið með kaffi sem fékkst í stór­mörk­uðum, eins og Svörtum Rúbín, Illy, Lavazza Club, Café Noir og fleiri teg­undum, en úrvalið hefur auk­ist síðan þá.

Eitt sinn gerði ég óform­lega rann­sókn fyrir Gest­gjafann og þar kom í ljós að kostn­aður af einum upp­á­helltum bolla af dýr­ara kaffi á móti ódýru náði ekki að vera einni krónu hærri, þarna mun­aði aurum á hvern bolla. Eflaust hefur þetta breyst en það getur varla munað nema örfáum krónum á milli bolla.

Bragðmikið með kökum

Í köku­veisl­una er bragð­mikið kaffi algjör dásemd, ekki síst með súkkulaði­kökum. Hátíða­kaffi frá Kaffi­tári fæst víða á þessum árs­tíma, og Jóla­kaffi Te og kaffis, og það ætti að höfða til sem flestra. Það hentar vel í venju­lega upp­á­hell­ingu, pressukönnu eða bauna­vél.

Þeir sem nota mjólk út í kaffi gætu gert enn betur við sig og notað kaffi­rjóma sem er svo góður út í bragð­mikið kaffi.

Espressó­kaffi er alls ekki ein­göngu fyrir espressókönnur eða bauna­vélar, það er hægt að nota það líka í venju­lega upp­á­hell­ingu eða pressukönnu. Í bauna­vél­ina mína nota ég iðu­lega bragð­mikið kaffi, eins og Espresso Roma frá Te og kaffi, og þegar ég bregð mér í bæinn kaupi ég oft Hús­blönd­una frá Kaffi­tári sem fæst í kaffi­búðum Kaffi­társ. Svo á ég tvær miklar upp­á­halds­teg­undir þegar kemur að bragð­miklu kaffi í pressukönnu. Það eru Espressó Krakatá frá Kaffi­tári og French Roast frá Te og kaffi en þessar teg­undir eru líka afar góðar í venju­legri upp­á­hell­ingu.

Alls konar kaffi

Milt Afr­íku­kaffi nýtur sín vel eitt og sér, eins og Kenía- eða Eþíóp­íu­kaffi, en slepptu því alfarið að reyna að gera þér espressó úr því. Þegar kaffi er ljós­brennt njóta fín­leg blæ­brigði þess og ávaxta­tónar sín til hins ýtrasta. Það er mjög gott í venju­legri upp­á­hell­ingu og pressukönnu.

Með­al­brennt kaffi, eins t.d. frá Gvatemala eða Kólumbíu, höfðar til margra. Það hefur eft­ir­bragð eins og dökk­brennt kaffi og hentar bæði vel eitt og sér og með kökum. Hægt er að búa það til í venju­legri upp­á­hell­ingu, í pressukönnu eða bauna­vél. Það er gott með mjólk og án hennar.

Bragð­bætt kaffi elska margir og það fæst iðu­lega fyrir jólin og þá með t.d. kanil­bragði. Alls ekki setja það í bauna­vél, nema þú viljir að venju­lega kaffið þitt bragð­ist eins og jóla­kaffi fram eftir næsta ári …

Einnig er hægt að kaupa ýmis konar síróp, líka syk­ur­laus, til að setja út í kaffið sitt.

Leitaðu ráða hjá starfs­fólki kaffi­búða, það hefur fengið fræðslu og getur hjálpað þér að finna besta kaffið fyrir þig. Lestu líka á mið­ann á pökk­unum og próf­aðu þig áfram. Inni á vefnum kaffi­tar.is er hægt að taka snið­ugt kaffi­próf og finna þannig sína upp­á­halds­teg­und.

Kaffi gleður

Fyrir rúmum sautján árum keypti ég Espressó Krakatá frá Kaffi­tári fyrir erfi­drykkju pabba heit­ins sem haldin var í stórum sal. Krakatá er dökk­brennt og bragð­mikið kaffi, mjög gott með kökum. Ég gleymi aldrei frænk­unum sem gripu þétt­ings­fast í erm­ina á jakk­anum mínum og spurðu klökkar af hrifn­ingu hvaða kaffi þetta væri. Þær væru sann­ar­lega ekki vanar því að fá svona gott kaffi í erfi­drykkjum eða veislum. Ég þurfti að skrifa niður nafnið á kaff­inu fyrir þær og nokkra aðra gesti í erfi­drykkj­unni. Ef maður hugsar út í það, því að bjóða upp á allt það fín­asta og besta í kökum en klikka svo á kaff­inu?

Höfum í huga við kaffigerð

– Hafðu áhöld til kaffi­n­eyslu hrein.

– Ekki und­ir­búa kaffi­könn­una kvöld­inu áður með því að setja vatnið og kaffi­duftið í hana. Sá tíma­sparn­aður er ekki þess virði því þetta skerðir bragð­gæði kaff­is­ins til muna.

– Notaðu venju­legt magn af dökk­brenndu kaffi í könn­una, þótt það sé dökkt er það ekki sterkara, bara bragð­meira. Það sama gildir um ljós­brennt kaffi, það verður hrein­lega vont ef þú notar of mikið magn af því á móti vatni.

– Ekki kaupa of mikið kaffi í einu. Kaffi geym­ist best við her­berg­is­hita en um leið og það hefur setið lengi í opnum pakka gufar ilm­ur­inn og góða bragðið smám saman upp og kaffið fær hvim­leitt geymslu­bragð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins