„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Oft löng og hlykkjótt leið og miklar tilfinningar

Nýjasta lína Farmers Market leit nýverið dags­ins ljós. Bergþóra Guðna­dóttir, yfir­hönn­uður Farmers Market, segir lín­una vera ívið róm­an­tísk­ari heldur en eldri línur merk­is­ins.

Aðspurð hvaðan inn­blást­ur­inn kom segir Bergþóra: „Eins og ég hef gert hingað til held ég áfram að leika mér að arf­inum og gera til­raunir með efni, form og mynstur. Litirnir eru sóttir í nátt­úr­una, sem fyrr, en að þessu sinni er ég mjög upp­tekin af sterkum litum sem finn­ast á jarð­hita­svæðum eins og í Land­manna­laugum. Dökk­græn­bláir, ryðrauðir og gul­brúnir tónar eru í aðal­hlut­verki í þess­ari línu.“

Dökk­græn­bláir, ryðrauðir og gul­brúnir tónar eru í aðal­hlut­verki í nýj­ustu línu Farmers Market.

Blóma­mynstur er áber­andi í nýju lín­unni. „Ég er mikið fyrir blóm en hef ekki unnið með þau sem mynstur fyrr en núna. Þannig að nýja línan mín sem ber nafnið Blómst­ur­vellir er í dálitlu upp­á­haldi. Þar hef ég látið búa til blóma­mynstur í jarð­hita-lita­tón­unum mínum og prenta á silki og viskós. Þar að auki erum við með nýja spari ull­ar­sokka sem einnig eru blómum prýddir,“ útskýrir Bergþóra.

Dökk­græn­bláir, ryðrauðir og gul­brúnir tónar eru í aðal­hlut­verki í þess­ari línu.

„Ég hef verið að vinna að þess­ari línu í eitt og hálft ár og núna seint í haust var hún loks öll til­búin og komin í versl­anir. Það er oft löng og hlykkj­ótt leið og miklar til­finn­ingar frá hug­mynd að til­bú­inni vöru,“ segir Bergþóra.

Taka ekki óþarfa áhættu

Fyrsta lína Farmers Market kom út árið 2005. Síðan þá hefur merkið fest sig í sessi og flestir fag­ur­kerar lands­ins ættu að kann­ast við fötin frá Farmers Market.

Flestir fag­ur­kerar lands­ins ættu að kann­ast við fötin frá Farmers Market.

Spurð út í hver sé gald­ur­inn að þessum far­sæla rekstri segir Bergþóra: „Við höfum alltaf passað okkur á að sníða okkur stakk eftir vexti. Við erum bara tveir eig­endur og það vill þannig til að við erum líka hjón svo að það er mikið í húfi fyrir okkur að taka ekki óþarfa áhættu. Þar að auki erum við bæði lista­menntuð svo að við­skipta­eðlið er okkur ekki í blóð borið og við höfum orðið að til­einka okkur með tím­anum.“

Við höfum alltaf passað okkur á að sníða okkur stakk eftir vexti.

Á þessum 13 árum hefur fyr­ir­tækið vaxið hægt og rólega. „Fyrir utan hönn­un­ar­stúd­íóið mitt rekum við tvær versl­anir og vef­verslun þannig að gott starfs­fólk er lyk­il­at­riði og þar höfum við verið afar lánsöm bæði hvað varðar starfs­fólk hér heima og sam­starfs­fólk erlendis,“ útskýrir Bergþóra. Hún bætir við að á þessu 13 ára tíma­bili hafi margt breyst í brans­anum.

Myndir af nýju lín­unni tók Ari Magg.

„Það er margt sem hefur breyst frá því að við byrj­uðum tveimur árum fyrir hrun. Það hafa orðið til mörg spenn­andi fyr­ir­tæki og stórir draumar. Sum hafa lifað en önnur ekki svona eins og gengur og ger­ist. Það jákvæða að mínu mati er að íslenska hönn­un­ar­senan virð­ist vera að slíta barns­skónum og ég held að hún geti orðið okkur mik­il­væg­ari en við gerum okkur grein fyrir núna. Mér finnst alltaf gaman að bera hönn­un­ar­sen­una saman við íslensku tón­list­ar­sen­una sem er svona 20 árum á undan og hefur verið okkur afar dýr­mæt.“

Myndir af nýj­ustu línu Farmers Market / Ari Magg

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

íslenskt

Einar orðlaus þegar hann sá dagblöðin – Er íslenska að deyja út?
Innlentíslenskt

Einar orð­laus þegar hann sá dag­blöðin – Er íslenska að deyja út?

Einari K. Guð­finns­syni, fyrr­ver­andi ráð­herra og for­seta Alþingis, brá heldur betur í brún þegar hann opn­aði blöðin í morgun. Hann er veru­lega sár fyrir hönd íslensk­unnar að ekki sér hægt að gera betur. Tilefni skrifa Einars á Facebook eru flennistórar aug­lýs­ingar dag­blað­anna um afslátt­ar­dag­inn „Black Friday“. Þing­mað­ur­inn fyrr­ver­andi furðar sig á því hvers vegna ekki hafi verið hægt að gefa...
Hefurðu smakkað Bopp? Rammíslenskt úr sveitinni
Innlentíslenskt

Hefurðu smakkað Bopp? Ramm­ís­lenskt úr sveit­inni

Það er alltaf ánægju­legt fyrir neyt­endur og sam­fé­lagið þegar nýjar íslenskar vörur koma á markað. Ekki er verra ef það er líf­rænt, hollt og gott. Fyrir ekki svo löngu kom Bopp í versl­anir en það eru popp­aðar bygg­flögur sem Havarí fram­leiðir. Á Karls­stöðum í Berufirði búa hjónin Berglind Häsler og Svavar Pétur Eysteins­son ásamt börnum. Þar starf­rækja þau gisti­heim­ili, tón­leika­stað,...
Ræktum orðspor Íslands
Skoðun

Aðsend skoðun

Ræktum orð­spor Íslands

Skoðun Eftir / Sigurð Hann­es­son Nýta ætti hvert tæki­færi til þess að auka veg íslenskrar fram­leiðslu og hönn­unar og rækta þannig orð­spor Íslands með til­heyr­andi verð­mæta­sköpun. Einstök hönnun og vönduð fram­leiðsla getur eflt ímynd Íslands og aukið eft­ir­spurn á því sem frá okkur kemur. Nú þegar íslensk hús­gögn og hönnun prýða suð­ur­stofu Bessa­staða að frum­kvæði Samtaka iðn­að­ar­ins er ástæða til...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins