„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Sýni hver vændiskonan raunverulega er“

Guðrún Sigríður Sæmund­sen, við­skipta­fræð­ingur og rit­höf­undur, sendir frá sér skáld­sög­una And­stæður nú fyrir jólin. Bókin fjallar um vændi og Guðrún fór í heil­mikla rann­sókn­ar­vinnu við skrif hennar. Útkoman er raun­sönn mynd af reynslu kvenna í þessum heimi.

„Sýni hver vændiskonan raunverulega er“
||

„Ég fékk hug­mynd­ina að sög­unni árið 2015 eftir að hafa rekið augun í blaða­grein um að Amnesty International, ein stærstu mann­rétt­inda­sam­tök í heim­inum, mæltu fyrir afglæpa­væð­ingu vændis. Þá gerð­ist eitt­hvað. Mér fannst ég þurfa að kafa ofan í efnið og í raun að skrifa gegn afglæpa­væð­ing­unni,“ segir Guðrún þegar hún er spurð um til­urð bók­ar­innar. „Hugmynd að sögu í þessum dúr kemur ekk­ert „af því bara“. Ég hef alltaf haft áhuga á umræð­unni um hvort vændi eigi að vera lög­legt og hvort það sé betra fyrir vænd­is­konur og sam­fé­lagið í heild að hafa vændi meira sýni­legt og uppi á yfir­borð­inu. Ég var mjög hissa þegar ég sá til­lög­una frá Amnesty því sjálfri hefur mér alltaf fund­ist vændi vera ofbeldi.
Bókin er í raun byggð á til­lögu Amnesty. Ég skoð­aði raun­um­hverfið, bjó síðan til per­sónur og gerði úr því fróð­lega og spenn­andi sögu. Fyrir bók­ina skoð­aði ég sér­stak­lega Holland því sagan ger­ist einnig að hluta til þar. Þegar ég svo fór að kafa dýpra komst ég að því að margt hefur farið úrskeiðis með lög­leið­ingu vændis þar í landi. Eftir að banni af vænd­is­húsum var aflétt árið 2000 í Hollandi og lög­unum breytt þannig að vænd­is­konum var gert að greiða skatta og önnur gjöld, hafa aðstæður þess­ara kvenna hríð­versnað. Þrátt fyrir að starf­semin eigi að vera meira uppi á yfir­borð­inu hefur man­sal aldrei verið jafn­mikið og hol­lenska ríkið hefur verið að missa tökin á utan­um­hald­inu. Ofbeldi hefur ekk­ert minnkað og aðstæður þess­ara kvenna ekk­ert batnað. Kyn­lífstúrismi hefur bara auk­ist, mörgum til mik­ils ama, svo mikið að borg­ar­stjór­inn í Amster­dam lét til að mynda minnka umfang svo­kall­aðs „glugga­vændis“ í rauða hverf­inu.
Þessar stað­reyndir, ásamt meira efni, koma fram í bók­inni. En svo má ekki gleyma að þetta er fyrst og fremst skáld­saga, spenn­andi og fróð­leg saga, sem hristir veru­lega upp í les­and­anum.“

„Vændi er ofbeldi“
Guðrún seg­ist hafa valið þessi efn­is­tök af áhuga. Hún velti fyrir sér spurn­ingum eins og hvaða konur stunda vændi? „Þurfa þær að gera það og vilja þær það? Er ofbeldi gegn þeim að mestu útrýmt með því að hafa starf­sem­ina sýni­lega? Er vænd­is­konan að gera sér þetta til gam­ans? Vildi hún alltaf verða vænd­is­kona? Eða dreymdi hana um að gera eitt­hvað allt annað? Ef hún vildi gera eitt­hvað annað, hvað gerð­ist þá á lífs­leið­inni sem gerði það að verkum að hún fór þessa leið?
Boð­skapur bók­ar­innar er að vændi er fárán­legt. Það er hreint og beint ofbeldi gegn konum. Í bók­inni sýni ég hvað knýr vændis­kaup­and­ann áfram í að nota þjón­ustu vænd­is­konu og það sem er enn mik­il­væg­ara, ég sýni hver vænd­is­konan raun­veru­lega er, svo les­and­inn fái jákvæða mynd af henni sem per­sónu, skilji til­finn­ingar hennar og þrár. Svo er þetta líka ást­ar­saga. Ástin er dul­ar­full og dúkkar upp á ólík­leg­ustu tímum og stöðum, kannski meðal þeirra sem hefðu síst grunað það. Það eru nefni­lega líka ljósir punktar í sög­unni,“ segir Guðrún.
Við vinnslu bók­ar­innar tal­aði Guðrún meðal ann­ars við ráð­gjafa hjá Stíga­mótum og fékk sendar greinar frá þeim. Eins skoð­aði hún rann­sóknir og skýrslur, til dæmis frá Evr­ópu­þing­inu. „Mik­il­væg­asta heim­ilda­mann­eskjan mín var Mirjam van Twuijver en hún starf­aði áður sem vænd­is­kona í rauða hverf­inu í Amster­dam. Ég hitti Mirjam fyrst haustið árið 2016 en þá fékk ég leyfi til að heim­sækja hana í fang­elsið á Akureyri. Milli okkar mynd­að­ist strax mikið traust og hún var mjög opin­ská um líf sitt og æsku. Mirjam gaf mér hald­góðar upp­lýs­ingar sem hjálp­uðu mér að móta eina aðal­sögu­per­són­una í bók­inni, hana Jasmijn,“ segir Guðrún.
„Það í raun skiptir ekki máli hvað ég las eða við hvern ég tal­aði fyrir bók­ina, það var þessi rauði þráður gegn­um­gang­andi; að meiri­hluti þeirra sem stunda vændi eru konur, oft í tengslum við fíkni­efna­neyslu en svo hefur meira en helm­ingur þeirra sem stunda vændi orðið fyrir ein­hvers konar áfalli í æsku eða á ung­lings­ár­unum. Vændi er síð­asta val þeirra sem það stunda og er það gert af algerri neyð, fyrir utan þær sem eru þving­aðar til þess. Svo getur verið erfitt fyrir þær konur sem hafa stundað vændi að kom­ast út úr því.“
Hún segir að draum­ur­inn sé að skrifa, hún sé núna að lifa draum­inn og sé hvergi nærri hætt. „Eftir ára­mót ætla ég að byrja á næstu bók og það er aldrei að vita nema það verði fram­hald af And­stæður. Viðbrögð les­enda hafa verið það góð að það verður erfitt að segja skilið við sög­una og sögu­per­són­urnar. Ég get alla vega sagt að það er af nógu að taka og flæði hug­mynda enda­laust, svo fylgist með.“

„Boð­skapur bók­ar­innar er að vændi er fárán­legt. Það er hreint og beint ofbeldi gegn konum. Í bók­inni sýni ég hvað knýr vændis­kaup­and­ann áfram í að nota þjón­ustu vænd­is­konu.“ Mynd/ Íris Sig­urð­ar­dóttir

Skoðar dökkar hliðar sam­fé­lags­ins
Guðrún hefur í gegnum tíð­ina starfað tengt menntun sinni, við­skipta­fræði, en gaf svo út fyrstu skáld­sög­una sína, Hann kallar á mig, jólin 2015. And­stæður er önnur bók hennar. „Í fyrstu tveimur bók­unum mínum hef ég skrifað um dökkar hliðar sam­fé­lags­ins. Til að mynda fjall­aði fyrsta bókin mín um fíkn. Í þeirri bók kafa ég ofan í bak­grunn fíkils­ins, skoða hvernig fíknin þró­ast og sýni fram á að fík­ill­inn hefur alltaf val um aðra leið í líf­inu. Í nýju bók­inni, And­stæður, skoða ég vændi. Les­and­inn fær ann­ars vegar sjón­ar­horn vændis­kaup­and­ans og hins vegar vænd­is­kon­unnar. Í gegnum sög­una set ég fram ljóð­rænar pæl­ingar um þessar and­stæður sem tog­ast á innra með fólki í mis­mun­andi aðstæðum; græðgi og nægju­semi, illska og kær­leikur, ótti og hug­rekki.“
Hún segir að þó að við­skipta­fræði sé mennt­unin hennar hafi það ekki allt að segja um hana sem per­sónu. „Til dæmis hvað ég hugsa frá degi til dags eða hver sé ástríðan í mínu lífi. Sjálfri finnst mér gaman að læra og fræð­ast. Ég elska að lesa og eitt það skemmti­leg­asta sem ég geri er að skrifa. Það hefur fylgt mér frá blautu barns­beini. Við systk­inin erum alin upp við bækur, það var alltaf lesið fyrir okkur á kvöldin og bækur voru alltaf sýni­legar á heim­il­inu. Ef ég var í til­tekt og þurfti að velja hvort setja átti bækur ofan í kassa í geymslu eða skraut­muni, þá fór það síð­ar­nefnda. Bækurnar mínar fengu alltaf sitt pláss,“ segir hún.

Fylgist með fólki úr fjar­lægð
Góð skáld­saga þarf, að mati Guðrúnar, að grípa les­and­ann strax í upp­hafi, hreyfa við til­finn­ingum hans og fræða hann í leið­inni. „Það þarf að gefa allt í skrifin, sem getur verið mjög erfitt, sér­stak­lega ef efn­is­tökin eru þung. Ég get til dæmis verið eftir mig eftir að hafa skrifað um ofbeldi, sorg, svik, reiði eða annað þvíum­líkt. Til að vera rit­höf­undur þarf einnig að hafa áhuga á umhverf­inu og öðru fólki. Þegar ég sit og tala við ein­hvern eða horfi á fólk úr fjar­lægð þá fylgist ég með svip­brigðum og hreyf­ingum. Ég hug­leiði hvað er að ger­ast í kringum mig, til dæmis hvernig mann­eskj­unni við hlið­ina á mér á bið­stof­unni líður eða hvað mað­ur­inn fyrir framan mig í röð­inni í Bónus sé að hugsa. Þegar fólk hagar sér á ákveð­inn hátt, jafn­vel í óþökk ann­arra eða bregst ein­kenni­lega við aðstæðum eða athuga­semdum, velti ég því alveg fyrir mér hvað orsaki hegðun þess. Stundum er ég komin aftur í barn­æsku við­kom­andi og ímynda mér fjöl­skyldu­mynstur og annað til að virki­lega átta mig á hvað er í gangi. Þá er ég bara að búa til sögu í hug­anum, þar sem ég sit eða stend.“

Skrifaði sam­hliða sendi­ráðs­starfi
Guðrún á sextán mán­aða dóttur og það er annað barn á leið­inni. Árið 2006 útskrif­að­ist hún sem við­skipta­fræð­ingur frá Háskól­anum í Reykja­vík og fór síðan í master í alþjóða­við­skiptum í Grenoble Graduate School of Business í Frakk­landi. Á meðan hún var að ljúka við masters­rit­gerð­ina, snemma árs 2009, fór hún til Brussel í starfs­nám hjá EFTA en einmitt þar ger­ist bókin And­stæður að hluta til. „Fyrir mér er mik­il­vægt að hafa klárað námið, verið búsett erlendis, hitt allt þetta fólk og öðl­ast reynslu úr ýmsum áttum, því allt hjálpar það til við skrifin. Þannig mót­ast per­sónur og umhverfi út frá alls konar upp­lifun hjá mér sjálfri. Svo spilar ímynd­un­ar­aflið stórt hlut­verk og þannig hefur mér tek­ist að skrifa og gefa út tvær bækur.
Núna síð­ast starf­aði ég sem menn­ingar- og vís­inda­full­trúi hjá franska sendi­ráð­inu í Reykja­vík. Helstu verk­efni mín hjá sendi­ráð­inu voru meðal ann­ars að vera í sam­skiptum við bæði franska og íslenska lista­menn, skipu­leggja menn­ing­ar­tengda við­burði, eins og frönsku kvik­mynda­há­tíð­ina og taka þátt í ákvörð­un­ar­ferli við úthlutun menn­ingar- og vís­inda­tengdra styrkja. Samhliða starf­inu í sendi­ráð­inu skrif­aði ég nýju bók­ina mína en sagan var þrjú ár í smíðum.“

Guðrún Sigríður Sæmund­sen fjallar um vændi í bók­inni And­stæður.

Gæti hugsað sér að skrifa barna­bók
Anna­samur tími er fram undan við að fylgja bók­inni eftir sem Guðrúnu þykir mjög gaman. „Ég er með upp­lestra, hef verið að gefa við­töl og svo fram­vegis. Ég er í góðu sam­starfi við útgef­and­ann og fæ frelsi til að skipu­leggja mark­aðs­setn­ing­una sjálf. Til að mynda er ég með Facebook-síðu fyrir mig sem rit­höf­und og þar kemur inn allt efni tengt bók­unum mínum.“
Hún segir að þótt fyrstu tvær bæk­urnar fjalli um þessi þungu mál­efni segi það lítið um fram­tíð­ar­skrifin. „Eftir fimm ár gæti ég allt eins tekið upp á því að skrifa barna­bók, hug­ljúfa og fal­lega sögu fyrir börn. Ímynd­un­ar­aflið á sér engin mörk og teygir anga sína víða,“ segir hún að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

femínismi

Feminíski aðgerðarhópurinn Öfgar er hættur: „Við erum stoltar af okkar framlagi“
Innlent

Fem­iníski aðgerð­ar­hóp­ur­inn Öfgar er hættur: „Við erum stoltar af okkar fram­lagi“

Fem­iníski aðgerð­ar­hóp­ur­inn Öfgar er hættur. Stjórn­endur Öfga sendu frá sér til­kynn­ingu á Instagram þar sem sagt er frá því að hóp­ur­inn sé hættur. Hópurinn hefur inni­haldið ýmsar konur en sem dæmi má nefna um þær sem hafa komið fram undir nafni Öfga má nefna Þórhildi Gyðu Arn­ars­dóttur, Helgu Bene­dikts­dóttur, Ninnu Körlu Katrín­ar­dóttur, Huldu Hrund Guðrúnar Sig­munds­dóttur, Tönju Mjöll Ísfjörð Magn­ús­dóttur...
Femínismi – um hvað ræðir?
Skoðun

Salome Friðgeirsdóttir

Femín­ismi – um hvað ræðir?

„Femínisti er mann­eskja sem veit að jafn­rétti kynj­anna hefur ekki verið náð og vill gera eitt­hvað í því.“ Þessa skil­grein­ingu er að finna á heima­síðu Femínista­fé­lags­ins. Mikið hefur verið rætt um femín­isma síð­ustu ára­tugi, en hvað stendur þessi póli­tíska og hug­mynda­fræði­lega stefna fyrir? Einhvers staðar voru umræður á þessa leið: „þeir eru leið­in­legir og gera lítið úr konum með öfga...
„Ef þú kallar sjálfan þig ekki femínista og þú ert ekki femínisti, hvað ertu þá?“
Innlent

„Ef þú kallar sjálfan þig ekki femínista og þú ert ekki femínisti, hvað ertu þá?“

„Hvernig held­urðu í heil­indi þín sem femínisti, þegar það er auð­veld­ara að skil­greina sig opin­ber­lega sem femínista heldur en að gera það ekki?“ var spurn­ing sem níger­íski rit­höf­und­ur­inn og bar­áttu­konan Chimamanda Ngozi Adichie fékk, í opnum umræðum eftir fyr­ir­lestur sinn í Háskóla­bíói á föstu­dag­inn. „Virki­lega? Finnst þér í alvöru auð­veld­ara að skil­greina þig sem femínista heldur en að gera það...
Feminískar stúdínur knýja fram ókeypis tíðavörur fyrir stúlkur
Innlentfemínismi

Fem­inískar stúd­ínur knýja fram ókeypis tíða­vörur fyrir stúlkur

Þrjár tíundu bekkjar stúd­ínur sem saman stofn­uðu Femínista­fé­lag Grunn­skól­ans í Hvera­gerði og hrundu af stað styrkja­leit fyrir dömu­bindum og tíða­vörum síð­ast­liðið haust hafa sann­fært bæj­ar­stjórn um nauð­syn þess að bjóða ókeypis tíða­vörur í skól­anum og félags­mið­stöð­inni frá og með næsta hausti. Rannveig Arna Sig­ur­jóns­dóttir, sem lauk tíunda bekk nú í vor segir í við­tali við Frétta­blaðið að stelpur eigi ekki...
„Lúserar landsins“ reyna að stöðva samfarakennslu Sólborgar
Innlentfemínismi

„Lúserar lands­ins“ reyna að stöðva sam­fara­kennslu Sól­borgar

„Einhver segja útópía. Þetta er hins vegar 100% mögu­leg staða. Snýst bara um for­gangs­röðun fjár­magns og að drulla þessu af stað. Getið þið plís verið fólkið sem tekur þetta risa­stóra skref til að vernda næstu kyn­slóðir?“ tísti Sólborg Guð­brands­dóttir tón­list­ar­kona, fyr­ir­les­ari, bar­áttu­kona gegn kyn­ferð­is­legu ofbeldi og stofn­andi Instagram-síð­unnar Fávitar fyrir fáeinum dögum en tíst Sól­borgar rataði í fjöl­miðla og vakti...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins