„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Gæti borðað avókadófranskarnar með chili-majó í öll mál

Mat­gæð­ing­ur­inn Guðrún Sóley Gests­dóttir sýnir og sannar hversu gómætur vegan matur getur verið með nýju upp­skrift­ar­bók­inni sinni.

Sæl­ker­inn og fjöl­miðla­konan Guðrún Sóley Gests­dóttir var að gefa út mat­reiðslu­bók sem hefur að geyma dásam­legan vegan-upp­skriftir. Bókin heitir Græn­kera­krásir Guðrúnar Sóleyjar: vegan upp­skriftir fyrir mann­úð­leg mat­ar­göt. Guðrún Sóley segir bók­ina vera fyrir alla þá sem elska góðan mat.

Spurð út í hvernig það kom til að hún hellti sér út í bóka­skrif segir Guðrún Sóley: „Ég á minnst í þeirri hug­mynd – þær Dögg og Anna Lea hjá Sölku útgáfu­húsi tóku eftir að ég deildi vegan upp­skriftum út um allar trissur, grill­aði vegan­borg­ara út um allan bæ og bauð linnu­laust í vegan mat­ar­boð. Þær stungu að mér þeirri til­lögu að ég tæki allt brasið saman í bók og ég stökk á það tæki­færi því mér finnst mik­il­vægt að sýna fólki hvað vegan mat­reiðsla er auð­veld, góm­sæt og skemmti­leg.“

Ég er sökker fyrir frönskum í öllum myndum og ég gæti borðað avóka­d­ófranskarnar með chili-majó í öll mál.

Þegar Guðrún Sóley er beðin um að nefna upp­á­halds­upp­skrift­ina sína úr bók­inni á hún erfitt með að svara. „Úff, það er erfitt að segja! Ég er sökker fyrir frönskum í öllum myndum og ég gæti borðað avóka­d­ófranskarnar með chili-majó í öll mál. En ann­ars á réttur sem ég kalla GSG-special heimt­ingu á þessum titli. Það eru hnetu­smjörs-sesam-núðlur með fersku græn­meti og lime. Bragð­lauk­arnir tjúll­ast yfir þessum rétti og hann hæfir við öll til­efni,“ segir Guðrún Sóley. Hún lýsir GSG-special sem lit­ríkum og nær­ing­ar­ríkum rétti sem er auð­velt að útbúa. „Rétt­ur­inn er góður kaldur og heitur. Kostir hans eru eig­in­lega ótelj­andi og ég hef enn ekki hitt mann­eskju sem þykir hann vondur.“

Missir sig í pizza-gleði

Guðrún Sóley er mikið fyrir pít­sur.

Aðspurð hvaða matur henni sjálfri þykir ómissandi segir Guðrún Sóley: „Ég er svo ein­föld sál að ég segi pizzur. Ein­hverjir gætu haldið að það væri lítið fútt í vegan pizzum en það er á mis­skiln­ingi byggt – þær eru nákvæm­lega jafn djúsí og skemmti­legar. Nú er hægt að fá skrilljón teg­undir af vegan ostum og rjóma­ostum úti í búð, auk þess sem hægt er að útbúa þá heima með lít­illi fyr­ir­höfn. Svo er bara að missa sig í gleð­inni; blanda til dæmis chili, ferskum fíkjum, steiktum sveppum, fennel eða hverju því sem okkur finnst best. Ég vil líka meina að góð pizza þurfi alltaf svo­kallað „krönsj-elem­ent“ – eitt­hvað stökkt og gott á topp­inn, til dæmis saxaðar salt­hnetur eða mulið nachos. Ég fæ vatn í munn­inn!“

Ég vil líka meina að góð pizza þurfi alltaf svo­kallað „krönsj-elem­ent“.

Ekki eintómt brokkólí

Það er aug­ljóst að í bók­inni er að finna afar fjöl­breyttar upp­skriftir, allt frá djúp­steiktum avóka­d­ófrönskum og hummus yfir í góm­sæta súkkulaði­köku og pavlovur. „Þær eru nauð­syn­legur hluti af matar­æði hverrar mann­eskju og bjóða upp á enda­lausa mögu­leika.“

Guðrún Sóley segir upp­skrift­irnar í bók­inni vera fyrir alla sæl­kera. „Ég lagði þunga áherslu á að hver ein­asti réttur væri bragð­góður, djúsí og mett­andi. Vegan matur er alls ekk­ert megr­un­ar­fæði eða ein­tómt hrátt brokkolí. Hún er líka fyrir þá sem vilja auka hlut­fall græn­metis í matar­æð­inu sínu og læra að fara með hrá­efni sem okkur er kannski ekki tamt að nota.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

grænmeti

Grillað romain-salat með brauðteningum, bökuðum tómötum og kjúklingi
Mannlífið

Grillað rom­ain-salat með brauð­ten­ingum, bök­uðum tómötum og kjúklingi

Salöt bjóða upp á enda­lausa mögu­leika og geta verið mjög sað­söm ef haft er í huga að hafa hrá­efni úr öllum fæðu­flokkum svo sem prótín, trefjar og góða fitu. Fyrir þetta salat er gott að eiga grillpönnu en einnig er hægt að nota úti­grill. Grillað rom­ain-salat Sítrónu-sal­atsósa 1 sítróna 1 söltuð sítróna (pres­er­ved lemon) skorin í tvennt og í þunnar...
Bakað sætkartöflu- og grænkálssalat sem við elskum
Mannlífið

Bakað sæt­kart­öflu- og grænkáls­salat sem við elskum

Þetta bragð­mikla salat sló í gegn í til­rauna­eld­húsi Gest­gjafans. Það getur vel verið aðal­réttur en það er líka gott að bera það fram sem með­læti með fisk- eða kjöt­réttum. Ekki bara bragð­gott og hollt heldur líka lit­ríkt og fal­legt. Bakað sæt­kart­öflu- og grænkáls­salat 2 sætar kart­öflur 2 msk. harissa-krydd­mauk 4 msk. ólífu­olía 50 g grænkál 1 tsk. Maldon-salt 100 g...
Geggjuð uppskeruhandbók Gestgjafans er komin út
Mannlífið

Geggjuð upp­skeru­hand­bók Gest­gjafans er komin út

Í þessu blaði er fjöld­inn allur af góm­sætum og spenn­andi réttum úr upp­sker­unni ásamt góðum fróð­leik og ráðum til dæmis um það hvernig á að grilla fisk. Stór þáttur með ein­stak­lega góðum og áhuga­verðum laxa og sil­unga­upp­skriftum allt frá bök­uðum engi­fer og soja­laxi til bleikju með möndlum og blóm­káli. Að auki er að finna í blað­inu súpur úr upp­sker­unni, græn­met­is­bökur,...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins