„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Ég gafst upp á að streitast á móti sjúkdómnum“

Fanney Sig­urð­ar­dóttir greind­ist með geð­hvarfa­sýki árið 2011 eftir að hafa verið lögð inn á geð­deild. Í upp­hafi skamm­að­ist hún sín mikið og setti sér það mark­mið að eng­inn skyldi kom­ast að því að hún væri með geð­sjúk­dóm. Í dag hefur hún tekið sjúk­dóm­inn í sátt og vill fræða áhuga­sama um geð­hvarfa­sýki og áhrif hennar.

Líf Fann­eyjar tók stakka­skiptum þegar hún greind­ist með geð­hvarfa­sýk­ina, þá 22 ára gömul. Sjúk­dóm­ur­inn hafði haft áhrif á líf hennar frá því að hún var barn en samt sem áður var henni brugðið þegar geð­læknir stað­festi að um geð­sjúk­dóm væri að ræða.

„Margir skamm­ast sín alveg gíf­ur­lega þegar þeir grein­ast með geð­sjúk­dóm og það gerði ég svo sann­ar­lega. Það mátti eng­inn vita af þessu þegar ég var lögð inn. Ég missti af heilli önn úr skól­anum því ég var með svo miklar áhyggjur yfir því að hafa verið í burtu, ég vissi ekki hvað ég ætti að segja fólki þegar ég kæmi til baka.“

Fanney við­ur­kennir að áður en hún fékk grein­ingu hafi verið hún með for­dóma fyrir fólki sem glímdi við geð­sjúk­dóma. Það hafi því örugg­lega ýtt undir þá miklu skömm sem hún fann fyrir. „Mér leið eins og heim­ur­inn væri hrun­inn. Ég glímdi við mikið „identity crisis“ og þurfti að sætta mig við að vera geð­veik eftir að hafa sjálf verið með for­dóma, til dæmis fyrir fólki sem er þung­lynt. Mér fannst að fólk ætti bara að harka af sér. En það er erfitt að vera með for­dóma fyrir sjálfum sér og þess vegna var ég í mik­illi krísu. Þetta var algjört sjokk.“

Hún bætir við að þó að það hafi verið erfitt að grein­ast með geð­hvarfa­sýki hafi verið gott að fá útskýr­ingu á því sem hún hafði verið að upp­lifa og svör við spurn­ingum. „Mér fannst ég aldrei vita almenni­lega hver ég var.“

„Það er erfitt að vera með for­dóma fyrir sjálfum sér og þess vegna var ég í mik­illi krísu. Þetta var algjört sjokk.“

Þegar Fanney greindi fólki í kringum sig frá því að hún væri með geð­hvarfa­sýki, fimm árum eftir að hún fékk grein­ingu, var þungu fargi af henni létt. „Mér fannst ég algjör­lega frelsuð. Ég gat ein­hvern veg­inn hætt að fela mig, þetta er auð­vitað bara per­sónu­leika­breyt­ing sem verður á manni í geð­hvörfum og það var gott að geta útskýrt það. Þetta kom fólki á óvart en sumir sögðu reyndar að nú skildu þeir ýmsa hluti. Ein­hverjir í kringum mig höfðu fundið að ég var að fela eitt­hvað. Og það pass­aði, ég vildi bara ekki sýna hver ég var í raun og veru.“

 Skrifar texta og ljóð um sjúk­dóm­inn

Fanney segir það hafa verið stórt skref fyrir sig að byrja að tala opin­skátt um sjúk­dóm­inn. Síðan þá hefur hún reglu­lega birt færslur á Facebook þar sem hún lýsir sjúk­dómnum og áhrifum hans og oftar en ekki er húmor í frá­sögnum hennar. Hún vill fræða það fólk sem hefur áhuga.

„Ég nenni ekki að tala enda­laust um þetta. Ég kýs frekar að skrifa um þetta, semja ljóð og gera eitt­hvað skap­andi. Ég reyni að hafa kímni í þessu, það hjálpar mér mikið að hafa húmor fyrir sjúk­dómnum og taka þessu ekki of alvar­lega,“ segir Fanney bros­andi.

Sjálf kveðst hún ekki hafa fundið miklar upp­lýs­ingar um sjúk­dóm­inn á Netinu þegar hún greind­ist. „Ég fann ekki mik­inn fróð­leik í um sjúk­dóm­inn í upp­hafi, það er að segja út frá sjón­ar­horni sjúk­lings­ins. Þess vegna finnst mér líka ágætt að skrifa um hann og birta á Facebook. En sem betur fer er þetta aðeins að breyt­ast og upp­lýs­inga­flæðið er orðið meira. Ég var til dæmis mikið í því að reyna að finna mér ein­hverjar fyr­ir­myndir með geð­hvarfa­sýki þegar ég greind­ist. Einhvern til að líta upp til því sjálfs­traust mitt var var svo lítið. Það var alveg aga­legt. En eina sem ég fann voru ein­hverjar fræði­greinar.“

Guð og djöfullinn með skilaboð

Þegar Fanney er beðin um að lýsa því hvernig sjúk­dóm­ur­inn lýsir sér hjá henni brosir hún, hún veit ekki alveg hvar hún á að byrja. „Sjúk­dóm­ur­inn lýsir sér ekki eins hjá öllum, en ég er heppin að því leyt­inu til að ég er að eðl­is­fari frekar ábyrg. Þannig að mínar man­íur hafa yfir­leitt ekki skaðað aðra mjög mikið eða valdið mér fjár­hags­örð­ug­leikum eins og svo mörgum. Fólk fer nefni­lega alveg út í það að stofna fyr­ir­tæki í man­íum og gera annað stór­tækt. Í raun­inni verður maður bara allt önnur útgáfa af sjálfum sér. Maður gerir alls konar hluti af mik­illi hvat­vísi og getur því brennt brýr að baki sér í leið­inni. En ég hef verið til­tölu­lega heppin.“

„Ég var til dæmis mikið í því að reyna að finna mér ein­hverjar fyr­ir­myndir með geð­hvarfa­sýki þegar ég greind­ist. Einhvern til að líta upp til því sjálfs­traust mitt var var svo lítið.“

Fanney segir man­íuköstin sín þó vissu­lega hafa haft mikil áhrif á líf hennar. „Það helsta sem ger­ist hjá mér er að ég missi tengslin við raun­veru­leik­ann. Ég átta mig engan veg­inn á hvað er við­eig­andi að segja og gera. Í mínu til­felli þá er guð mjög sterkur þáttur í man­í­unum en í þung­lynd­inu er skratt­inn alltaf á eftir mér. Guð talar við mig í gegnum útvarpið, sjón­varpið og umferð­ar­ljós. Hann gefur mér tákn um það sem ég á að gera. Gefur mér verk­efni,“ útskýrir Fanney og brosir. Það er aug­ljóst að hún getur séð spaugi­legu hlið­ina á hlut­unum.

„Oft er þetta eitt­hvað í þá átt­ina að ég sé útval­inn ein­stak­lingur og eigi að bjarga heim­inum. Og ég á að laga fólk, sem er ekki kannski mjög vin­sælt að gera,“ segir Fanney og hlær. „En svo upp­lifir maður sig svo mis­skil­inn af því að maður heldur að maður sé að gera gott. Ég hef móðgað fólk án þess að taka eftir því, með ein­hverjum ráð­legg­ingum. Þess vegna var svo gott að opna mig um sjúk­dóm­inn við fólk sem hafði kannski bara þekkt mig í maníu, þá fékk það að vita að þetta var ekki eðli­lega útgáfan af mér. Þetta er auð­vitað ég, en bara í ástandi sem er sjúkt ástand.“

Í þau skipti sem Fanney hefur upp­lifað það að guð leið­beindi henni þá leið henni eins og hún væri betri en aðrir. „Málið er að þetta er ekki raun­veru­legt en maður upp­lifir samt svo sterkt að þetta sé raun­veru­leik­inn. Ég veit yfir­leitt ekki þegar ég er í maníu, það er málið. Ég upp­lifi mig betri en aðra og þegar fólk reynir að draga úr mér, skilj­an­lega þar sem ég er alltaf á 150 km hraða, þá finnst mér fólk öfund­sjúkt.“

Þó að Fanney eigi sjálf erfitt með að átta sig á þegar hún er í maníu þá eru hennar nán­ustu farnir að þekkja inn á sjúk­dóm hennar. „Ég breyt­ist útlits­lega mikið eftir því hvort ég er í maníu eða þung­lyndi. Ég hef t.d. allt í einu verið komin með brúnar litalinsur, litað dökkt hár, permanent og svaka brúnku. Þannig að þegar ég skoða gamlar myndir af mér get ég séð hvert ástandið var út frá útlit­inu. Mamma tekur vel eftir þessu, þegar hún sér breyt­ingar á útliti mínu þá veit hún hvað er í gangi.“

Árstíðabundnar sveiflur

Fanney segir að í sínu til­felli fari hug­ar­á­stand hennar eftir árs­tíðum og sjúk­dóm­ur­inn ein­kenn­ist af löngum man­íuköstum á móti löngum þung­lyndisköstum. „Þetta hafa yfir­leitt verið sex mán­uðir í maníu og sex mán­uðir í þung­lyndi. „Ef ég væri ekki á lyfjum færi ég í geð­rof í kringum 20. októ­ber og væri að koma úr sex mán­aða maníu um 25. ágúst. Svo inn á milli er það sem kall­ast blandað ástand, þá get ég verið í þung­lyndi og maníu innan dags, í rugl­uðu ástandi, t.d. í sept­em­ber. Manían nær hámarki í júlí og minnkar svo jafnt og þétt þangað til ég fer alveg niður í þung­lyndi,“ útskýrir Fanney. Hún líkir þessu við rús­sí­bana­ferð. „Maður fer jafn­hátt upp og maður fer niður.“

Maníunni fylgir mik­ill kvíði að sögn Fann­eyjar og hún líkir til­finn­ing­unni við það sem stundum hefur verið kallað „djamm­visku­bit“, þ.e. þegar fólk fær sam­visku­bit eftir að hafa sleppt fram af sér beisl­inu undir áhrifum áfengis. „Maður skamm­ast sín mikið fyrir man­í­urnar. Ég geri allan fjand­ann sem ég myndi aldrei nokkurn tíma gera í jafn­vægi, geri hluti sem ég veist svo sem alveg að ég á ekki að gera, en hvat­vísin er svo mikil. Og hugs­aðu þér að vera í svona ástandi í sex mán­uði í einu, á þeim tíma getur svo margt gerst.“

„Maður skamm­ast sín mikið fyrir man­í­urnar.“

Spurð út í hvað tekur við eftir sex mán­uði í maníu segir Fanney: „Í mínu til­felli slekkur lík­am­inn bara á sér og ein­föld­ustu hlutir geta verið svo erf­iðir. Ég er örmagna. Og ofan á það kemur kvíð­inn, t.d yfir því sem maður hefur gert í man­í­unni. Kvíðinn er svo lam­andi.“

Eins og áður segir er upp­lifun Fann­eyjar að guð spili stórt hlut­verk í lífi hennar þegar hún er í maníu. Svo er það djöf­ull­inn sem er í þung­lynd­inu. Spurð út í hvort hún sé trúuð svarar Fanney ját­andi. „Já, ég er trúuð. En það er víst algengt að fólk með geð­hvarfa­sýki finni fyrir guði og djöfl­inum í maníu og þung­lyndi, alveg óháð því hvort það sé trúað eða ekki. Það er svo rosa­lega skrítið. Ég hef lesið lýs­ingar frá fólki sem hefur upp­lifað þetta ástand og það upp­lifir svip­aða hluti og ég hef upp­lifað. Til dæmis að ein­hver tali við það í gegnum útvarpið eða gefi þeim merki í gegnum hluti í umhverf­inu. Maður getur orðið hræddur, það hafa til dæmis komið tímar sem ég þorði ekki að keyra því ég var hrædd um að djöf­ull­inn myndi stýra mér út af veg­inum.“

„Það hafa til dæmis komið tímar sem ég þorði ekki að keyra því ég var hrædd um að djöf­ull­inn myndi stýra mér út af veg­inum.“

Sjálfsvígshugsanir reglulega frá 10 ára aldri

Á móti man­í­unni kemur mikið þung­lyndi eins og Fanney lýsir. Þá gera sjálfs­vígs­hugs­anir vart við sig. „Þar er eins og djöf­ull­inn sé að tala við mig. Hann gefur mér mögu­leika og hug­myndir um hvernig ég geti skaðað mig. Þá er eini mögu­leik­inn til að kom­ast úr þung­lynd­inu sá að svipta sig lífi. Það er mjög hættu­legt ástand,“ útskýrir Fanney sem hafði verið í geð­rofi í nokkra daga án þess að sofa þegar hún var lögð inn á geð­deild árið 2011.

„Þá var það þannig að alltaf þegar ég lok­aði aug­unum birt­ist djöf­ull­inn, þess vegna vildi ég halda aug­unum opnum. Á end­anum var ég orðin svo þreytt að ég fór inn í eld­hús um miðja nótt og náði í ein­hvern hníf. Þetta var bara smjör­hnífur, ein­hver bit­laus, en ég var komin með hann upp að úln­liðnum. En það var þá sem ég ákvað að hringja á mömmu og láta hana vita af þessu. Ég hugs­aði með mér að það væri leið­in­legt fyrir hana að vita ekki að ég væri að fara, algjört rugl,“ segir Fanney og hristir höf­uðið þegar hún rifjar þessa nótt upp.

„Mamma náði að vera róleg í sím­ann og tala mig til. Hún bað mig að bíða aðeins með þetta en var auð­vitað í algjöru panikki. Svo skellti hún á og brun­aði til mín. Ég man lítið eftir þessu en hún sagði mér að ég hafi verið róleg en samt mjög ringluð. En mér fannst ég bara þurfa að gera þetta til að kom­ast úr þessu ástandi.“

„Þá var það þannig að alltaf þegar ég lok­aði aug­unum birt­ist djöf­ull­inn, þess vegna vildi ég halda aug­unum opnum. Á end­anum var ég orðin svo þreytt að ég fór inn í eld­hús um miðja nótt og náði í ein­hvern hníf.“

Fyrsta sjálfs­vígs­hugs­unin gerði vart við sig þegar Fanney var aðeins 10 ára. „Hún kom bara upp úr þurru, það var ekk­ert að. Og lengi hélt ég að þetta væri eðli­legt, að hugsa svona. En ég átt­aði mig á fyrir nokkrum árum að það væri ekki eðli­legt að fá sjálfs­vígs­hugs­anir.“

Fanney verður aug­ljós­lega meyr þegar hún hugsar til baka. „Ég fór í svaka­lega hug­leiðslu síð­asta sumar. Þar áttum við að heim­sækja okkur sem börn í hug­anum. Við áttum að faðma okkur og þetta var rosa­legt „break trough“ fyrir mig, að geta farið og huggað þessa 10 ára stelpu sem vissi ekk­ert hvað var í gangi.“

Síðan Fanney var 10 ára hafa sjálfs­vígs­hugs­an­irnar gert vart við sig reglu­lega. „Þegar þær koma í mik­illi van­líðan og þung­lyndi er maður bara týndur í ein­hverju ástandi og skilur ekki það sem er að ger­ast. Þess vegna finnst mér svo sárt að heyra af ungu fólki sem sviptir sig lífi í geð­rofi. Þegar maður er í þannig ástandi þá sér maður ekk­ert annað en það sem er að ger­ast í hausnum á manni. Þess vegna verð ég líka leið þegar fólk er að dæma þá sem fremja sjálfs­víg, sá sem hefur ekki upp­lifað þetta getur ekki skilið.“

Hætti að geta stjórnað drykkjunni

Fanney hefur ágætis stjórn á sjúk­dómnum í dag, að eigin sögn. „Ég finn samt alltaf fyrir sjúk­dómnum. Ég tek lyf tvisvar á dag en lyfin „covera“ ekki allt, bara hluta. Svo þarf ég líka að lifa heilsu­sam­legu lífi og best er að vera í rútínu. Svo hætti ég að drekka áfengi því það bara gekk ekki að drekka ofan í sjúk­dóm­inn. Ég sé sko ekki eftir að hafa sleppt áfeng­inu,“ segir Fanney.

Hún segir geð­lyfin og áfengið ekki hafa virkað vel saman. „Lyfin binda áfengið í lík­am­anum, þannig að þú finnur fyrir áhrif­unum lengur en ella. Ég fatt­aði bara almenni­lega, eftir að ég hætti, hver áhrif áfeng­is­ins voru virki­lega.“

„Aðal­á­stæðan fyrir því að ég hætti að drekka var sú að ég not­aði áfengið til að reyna að kom­ast í man­íur. Það er nefni­leg lít­ill púki í manni sem vill vera í þessu ástandi. Þetta er nátt­úr­lega bara nátt­úru­leg víma. Alltaf þegar ég var búin að fá mér nokkra drykki gerði þessi púki vart við sig. Þannig hætti ég að geta stjórnað drykkj­unni. Ég var að reyna að kom­ast í maníu, það gerð­ist ekki en á móti kom að ég þró­aði með mér áfeng­is­vanda­mál.“

Spurð hvort man­ían sé skárri kostur en þung­lyndið af tvennu illu svarar Fanney ját­andi. „Ég myndi segja það, já. Mér finnst erfitt að við­ur­kenna það því man­ían er svo slæm. Hún kostar suma aleig­una og lífið. Andlega í man­í­unni ertu í sælu­vímu og allt er æðis­legt. En lík­am­inn á þér ræður ekki við þetta, þér líður ekk­ert sér­stak­lega vel lík­am­lega. Þetta er van­líðan en vellíðan á sama tíma. En aftur á móti með þung­lyndið, þá ertu bara í sjálfs­vígs­hugs­unum allan dag­inn. Fólkið í kringum mig myndi örugg­lega frekar segja þung­lyndi því þá er auð­veld­ara að eiga við mig. En hvað mig varðar þá myndi ég velja man­í­una.“

„Þannig hætti ég að geta stjórnað drykkj­unni. Ég var að reyna að kom­ast í maníu, það gerð­ist ekki en á móti kom að ég þró­aði með mér áfeng­is­vanda­mál.“

Jákvæðnin hefur hjálpað

Fanney man oft ekki mikið eftir því sem hún gerir í maníu en mamma hennar hefur þá hjálpað henni að fylla í eyð­urnar. „Þetta verður svo­lítið draumkennt þegar maður lítur til baka. Þess vegna hef ég líka reynt að skrifa um sjúk­dóm­inn og rifja þetta upp, því ég vil ekki gleyma hvernig þetta var. Ég vil muna hvað þetta var sárt og erfitt, sem víti til varn­aðar, svo ég hætti ekki að taka lyfin mín af því að mér líður betur.“

Fanney skrifar gjarnan texta og ljóð um þá erf­ið­leika sem hún gengur í gegnum. Mynd / Hallur Karlsson

Það leynir sér ekki að Fanney er hress og jákvæð að eðl­is­fari. Hún segir jákvæðn­ina hafa hjálpað henni mikið í bar­átt­unni við sjúk­dóm­inn en tekur fram að bar­áttan hefur verið flókn­ari en það. „Það hefur hjálpað mér að vera jákvæð. En svo er það annað mál, það er ekki hægt að segja fólki sem er að glíma við t.d. kvíða og þung­lyndi að vera bara jákvætt. Það hjálpar ekki.  Hér áður fyrr fékk ég sam­visku­bit yfir því að vera þung­lynd, sér­stak­lega þegar fólk sagði mér að ég ætti að vera hress. En ég hef lært að bera virð­ingu fyrir líðan minni. Ef mér líður illa þá er það bara þannig. Maður á ekki að berja sig niður fyrir að líða ein­hvern veg­inn, lífið er nú nógu flókið fyrir,“ segir hún bros­andi.

Planar ekki langt fram í tímann

Sjúk­dóm­ur­inn hefur svo sann­ar­lega haft áhrif á líf Fann­eyjar þó að hún hafi tamið sér að taka honum ekki of alvar­lega. Eins og áður sagði missti hún heila önn úr námi þegar hún var lögð inn á geð­deild. Svo missti hún einnig vinn­una rétt áður en hún var greind með geð­hvarfa­sýki. „Ég var rekin úr starfi og ég veit ekki einu sinni af hverju eða hvað ég var að gera. Þannig að já, þetta hefur haft mark­andi áhrif á líf mitt.“

Vegna sjúk­dóms­ins á Fanney erfitt með að und­ir­búa hluti langt fram í tím­ann. „Ég veit ekki hvernig ástandið á mér verður eftir nokkra daga, hvað þá vikur eða mán­uði. Ég bók­aði til dæmis ferð í smá­geð­hæð í apríl, flug og heilt pró­gramm í jóga­nám­skeið. Svo tveimur dögum áður en flugið var þá fór ég að finna að ég ætti kannski ekki að fara í ferða­lagið. Og ég hafði rétt fyrir mér, sama dag og ég átti að fara út var ég í þannig ástandi að ég hefði aldrei getað farið ein út. Ég varð auð­vitað sorg­mædd en ég er alveg búin að sætta mig við að svona getur þetta verið. Ég veit að ef ég hefði farið þá hefði það orðið miklu dramat­ískara og erf­ið­ara heldur en að fara bara ekki. Ég er farin að þekkja mig.“

Lærði að meta litlu hlutina

Í dag líður Fanneyju vel og hefur lært að lifa með sjúk­dómnum. Spurð út í hvernig hún komst á þennan stað segir Fanney: „Vegna lyfj­anna, ég er komin á rétt lyf núna. Og líka vegna upp­gjafar, ég gafst upp á að streit­ast á móti sjúk­dómnum. Ég er búin að sætt­ast við þetta, ég get ekk­ert gert í þessu nema bara taka lyfin mín og reyna að lifa sem heil­brigð­ustu lífi.“

„Í dag get ég sagt að ég sé mjög montin af mér, montin af því að vera bipolar. Það er svo skrítið að vera á þessum stað því hér áður fyrr þá skamm­að­ist ég mín svo mikið, en núna er ég stolt. Ég lít á sjúk­dóm­inn sem tæki­færi, hann hefur kennt mér svo mikið. Ég hef líka lært að taka mig ekki eins alvar­lega og ég gerði áður fyrr. Það var mjög frelsandi, að vera ekki alltaf svona hátíð­legur. Ég get alveg við­ur­kennt að hér áður fyrr var ég hroka­full en öll þessi reynsla lækk­aði aldeilis í mér rostann,“ segir Fanney bros­andi. „Ég varð þakk­lát fyrir litlu hlut­ina og hef skilið að við erum öll ólík á ólíkri ferð. Maður verður að bera virð­ingu fyrir því.“

„Ég get alveg við­ur­kennt að hér áður fyrr var ég hroka­full en öll þessi reynsla lækk­aði aldeilis í mér rostann.“

Hvað fram­tíð­ina varðar hefur Fanney til­einkað sér að hugsa ekki of langt fram í tím­ann. „Ég ætla að lifa í núinu án þess að hugsa of mikið um fram­tíð­ina, því maður veit ekki hvað getur gerst. Ég er sátt akkúrat núna og ætla að ein­beita mér að því.“

Myndir / Hallur Karlsson

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

þunglyndi

Egill um þunglyndið og COVID: Keypti frystikistu og birgði sig upp af mat
Innlent

Egill um þung­lyndið og COVID: Keypti frystikistu og birgði sig upp af mat

„Maður fest­ist í þrá­hyggju­kenndum hugs­unum – bak við mann er for­tíð sem virkar óbæri­lega þung, full af eft­ir­sjá en fyrir framan skelf­ing óviss fram­tíð. Maður týnir núinu þar sem er sagt að ham­ingj­una sé helst að finna. Svo hættir maður að geta sofið, vaknar á nótt­inni og hinar þungu hugs­anir troða sér strax fram,“ segir Egill Helgason sjón­varps­maður í for­síðu­við­tali...
Varpar ljósi á fæðingarþunglyndi
Innlentþunglyndi

Varpar ljósi á fæð­ing­ar­þung­lyndi

Rejúníon er nýtt íslenskt leik­rit eftir Sóleyju Ómars­dóttur í fram­leiðslu Lakehouse. Verkið ger­ist í íslenskum sam­tíma og varpar ljósi á fæð­ing­ar­þung­lyndi, barn­eignir, sam­bönd og sam­fé­lags­pressu. „Ég byrj­aði að skrifa leik­ritið þegar ég var ólétt af mínu öðru barni og var mikið hugsað til erf­iðs tíma­bils þegar ég var ólétt í fyrsta sinn. Hug­myndin var að skrifa verk um konur sem...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins