„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Varpar ljósi á fæðingarþunglyndi

Varpar ljósi á fæðingarþunglyndi
Sóley ómars­dóttir rejún­íon reunion

Rejúníon er nýtt íslenskt leik­rit eftir Sóleyju Ómars­dóttur í fram­leiðslu Lakehouse. Verkið ger­ist í íslenskum sam­tíma og varpar ljósi á fæð­ing­ar­þung­lyndi, barn­eignir, sam­bönd og sam­fé­lags­pressu.

„Ég byrj­aði að skrifa leik­ritið þegar ég var ólétt af mínu öðru barni og var mikið hugsað til erf­iðs tíma­bils þegar ég var ólétt í fyrsta sinn. Hug­myndin var að skrifa verk um konur sem væru á ein­hvern hátt aftengdar umhverf­inu og fólk­inu í kringum sig, og lifðu í ein­hverri ósýni­legri ein­angrun. Þetta hefur verið mjög langt þró­un­ar­ferli og verkið hefur tekið miklum breyt­ingum. Það er í raun­inni enn þá í þróun núna á æfinga­ferl­inu þar sem allur þessi fjöldi lista­manna sem kemur að sýn­ing­unni kemur með nýja sýn og hug­myndir,“ segir Sóley.

Leik­ritið fjallar um íslensku ofur­kon­una og ferla­fræð­ing­inn Júlíu, sem í stað­inn fyrir að horfast í augu við þá erf­ið­leika sem hún upp­lifði við að verða móðir, sekkur sér í vinnu, bolla­köku­bakstur og Snapchat-frægð. Hún tekur einnig að sér að sjá um 20 ára grunn­skóla-rejún­íon í leyndri von um að end­ur­nýja tengslin við æsku­vin­konu sína og lífið áður en allt varð svona flókið.

„Kveikjan að hug­mynd­inni kom frá því tíma­bili þegar ég flutti ólétt heim til Íslands og var að vinna fjar­vinnu heiman frá mér. Ég upp­lifði mikla ein­angrun og var alveg úr tengslum við lífið hérna heima. Ég datt fljótt í þung­lyndi og hafði einnig yfir­þyrm­andi áhyggjur af því hvernig ég myndi standa mig í móð­ur­hlut­verk­inu. Eftir fæð­ing­una var ég einnig með mik­inn kvíða sem tengd­ist því að vera ein heima með ung­barn og bera ábyrgð á lífi þess en slíkur kvíði teng­ist einnig fæð­ing­ar­þung­lyndi. Ég leit­aði mér aldrei aðstoðar en ég sé það eftir á að ég hefði átt að gera það,“ segir Sóley.

Fordómarnir gagnvart þeim sjálfum

Sóley segir að umræðan um fæð­ing­ar­þung­lyndi hafi opn­ast mikið á síð­ast­liðnum árum en hún heldur að enn þá sé ákveðið tabú í kringum það. „Eins og Sæunn Kjart­ans­dóttir sál­fræð­ingur orð­aði svo vel á mál­þing­inu sem Lakehouse hélt í Tjarn­ar­bíói um dag­inn, þá eru konur með for­dóma gagn­vart sjálfum sér að upp­lifa þessar til­finn­ingar því það að líða svona er ekki eitt­hvað sem þær lögðu upp með í byrjun. Ég held að við séum yfir­leitt umburð­ar­lynd­ari gagn­vart öðrum og þeirra erf­ið­leikum, en þegar við upp­lifum erf­ið­leika sjálf þá finnst okkur við vera svo mis­heppnuð,“ segir Sóley og heldur áfram. „Svo er annað, að fólk heldur oft að hug­takið fæð­ing­ar­þung­lyndi eigi bara við um konur sem elska ekki barnið sitt. En konur geta að sjálf­sögðu upp­lifað fæð­ing­ar­tengt þung­lyndi þó að þær elski barnið sitt. Þetta var alla­vega mis­skiln­ingur hjá mér og kom að ein­hverju leyti í veg fyrir að ég leit­aði mér aðstoðar. Það er því gott að opna meira á þessa umræðu því þung­lyndi og kvíði í kringum barn­eignir er alveg ótrú­lega algengt. Ég komst að því þegar ég var að skrifa að flestir sem ég tal­aði við um verkið tengdu eitt­hvað við mál­efnið.“

Krafa um ofurkonu ímyndun

Hún telur að klár­lega sé pressa frá sam­fé­lag­inu um að konur eign­ist bæði börn og glæstan starfs­feril. „Það eru næstum því for­dómar í íslensku sam­fé­lagi gagn­vart konum sem velja bara annað hvort. Margar konur eiga hins vegar ekk­ert val um að vera ofur­konur, eins og til dæmis ein­stæðar mæður sem kannski neyð­ast til að vinna í tvö störf. En þessi týpíska ofur­kona sem við hugsum frekar um þegar við tölum um ofur­konur er frekar týpa sem er í flottu starfi en á samt nokkur börn, rekur fal­legt heim­ili, sinnir félags­störfum, fer í fjall­göngur og póstar chia-grautnum sínum á Instagram. Einhver krafa um slíkar ofur­konur er eitt­hvað sem ég held að sé bara ímyndun. Fólki er yfir­höfuð alveg sama hvað aðrir eru að gera.“

Verkið er frum­sýnt 30. nóv­em­ber í Tjarn­ar­bíó. Á bak við sýn­ing­una stendur leik­fé­lagið Lakehouse, en leik­stjóri er Árni Krist­jáns­son. Leikarar eru Sólveig Guð­munds­dóttir, Sara Martí Guð­munds­dóttir og Orri Huginn Ágústs­son. Fram­kvæmda­stjórn, tón­list og hljóð­heimur er í höndum Hörpu Fannar Sig­ur­jóns­dóttur. Fiona Rigel sér um leik­mynd og bún­inga, með aðstoð Bryn­dísar Óskar Þ. Ingv­ars­dóttur. Vala Ómars­dóttir sér um hreyfi­leik­stjórn, Ingi Bekk um vídeó og Halldór Örn Ósk­ars­son um ljós.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

þunglyndi

Egill um þunglyndið og COVID: Keypti frystikistu og birgði sig upp af mat
Innlent

Egill um þung­lyndið og COVID: Keypti frystikistu og birgði sig upp af mat

„Maður fest­ist í þrá­hyggju­kenndum hugs­unum – bak við mann er for­tíð sem virkar óbæri­lega þung, full af eft­ir­sjá en fyrir framan skelf­ing óviss fram­tíð. Maður týnir núinu þar sem er sagt að ham­ingj­una sé helst að finna. Svo hættir maður að geta sofið, vaknar á nótt­inni og hinar þungu hugs­anir troða sér strax fram,“ segir Egill Helgason sjón­varps­maður í for­síðu­við­tali...
Innlent

„Ég gafst upp á að streit­ast á móti sjúk­dómnum“

Fanney Sig­urð­ar­dóttir greind­ist með geð­hvarfa­sýki árið 2011 eftir að hafa verið lögð inn á geð­deild. Í upp­hafi skamm­að­ist hún sín mikið og setti sér það mark­mið að eng­inn skyldi kom­ast að því að hún væri með geð­sjúk­dóm. Í dag hefur hún tekið sjúk­dóm­inn í sátt og vill fræða áhuga­sama um geð­hvarfa­sýki og áhrif hennar. Líf Fann­eyjar tók stakka­skiptum þegar hún...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins