„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Samþykki ekki leikreglur auðstéttarinnar

Sólveig Anna Jóns­dóttir flosn­aði fljótt upp úr námi, varð móðir ung að aldri, dvaldi átta ár í Banda­ríkj­unum þar sem hún sann­færð­ist end­an­lega um skað­semi kap­ít­al­ism­ans, sneri aftur beint í hrunið þar sem hún lék stórt hlut­verk í bús­á­halda­bylt­ing­unni og var lág­launa­kona á íslenskum vinnu­mark­aði í tíu ár áður en hún skyndi­lega stóð uppi með svo há laun að hún sá sig knúna til að lækka þau um 300 þús­und krónur.

Samþykki ekki leikreglur auðstéttarinnar
||

„Ef við erum orðin svo klikkuð og svo langt leidd af firr­ingu mann­fjand­sam­legrar hug­mynda­fræði að það er allt í einu orðið bylt­ing­ar­kennt að fólk geti lifað af dag­vinnu­laun­unum sínum og að skatt­kerfið verði mótað af þörfum þeirra sem raun­veru­lega vinna vinn­una, þá hlýt ég að vera stolt af því að segj­ast vera bylt­ing­ar­mann­eskja,“ segir Sólveig Anna Jóns­dóttir, sem í vor var kjörin for­maður stétt­ar­fé­lags­ins Eflingar.  Hún er í far­ar­broddi nýrrar kyn­slóðar verka­lýðs­for­ingja sem þykja mun rót­tæk­ari en þeir sem fyrir voru og þeir hafa hafa mik­inn átaka­vetur á mark­aði verði ekki gengið að kröfum þeirra.

Brjáluð lýsing sem á sér enga stoð í raunveruleikanum

Sólveig Anna segir að það hafi verið mikil við­brigði að fara úr því að hafa unnið lág­launa­störf í ára­tug og vera skyndi­lega farin að stýra einu stærsta stétt­ar­fé­lagi lands­ins. Bara það að vinna á skrif­stofu hafi verið nýtt fyrir henni og fyrst um sinn hafi hún verið þjáð af svoköll­uðu svik­ara­heil­kenni (e. impostor syndrome). „Ég er sem betur fer ekki þar lengur en ég vissi allan tím­ann að þetta yrði mjög erfitt og þess vegna var ég mjög hik­andi við að láta slag standa. Allt sem ég gerði var ég að gera í fyrsta skipti. Ég hef alltaf verið með sjálfa mig í við­stöðu­lausu prófi og þar sem ég er minn harð­asti dóm­ari er ég alltaf til­búin að gefa sjálfri mér fall­ein­kunn en ég held að þetta hafi gengið ágæt­lega. Á engum tíma­punkti ímynd­aði ég mér að þetta yrði auð­velt eða þægi­leg inni­vinna. Það er kannski vegna þess að ég dembi mér út í þetta af hug­sjón frekar en hefð­bundn­ari frama­draumum og við slíkar kring­um­stæður er meira í húfi.“

„Ég hef alltaf verið með sjálfa mig í við­stöðu­lausu prófi og þar sem ég er minn harð­asti dóm­ari er ég alltaf til­búin að gefa sjálfri mér fall­ein­kunn en ég held að þetta hafi gengið ágæt­lega.“

For­mennskan er þó ekki óum­deild og nýverið greindi Morg­un­blaðið frá miklum átökum innan félags­ins. Sólveig Anna og fram­kvæmda­stjór­inn Viðar Þor­steins­son voru sökuð um að „stjórna með ofríki og hót­unum“ og tveir starfs­menn sagðir hafa farið í veik­inda­leyfi vegna sam­skipta­örð­ug­leika. Var jafn­framt talað um óvin­veitta yfir­töku á Eflingu. „Hann var mjög brjál­æð­is­legur sá frétta­flutn­ingur,“ svarar Sólveig Anna aðspurð og bætir við að í málum sem þessum sé erfitt að grípa til varna enda sé hún sem for­maður bundin trún­aði við starfs­fólk. Hún geti þó sagt að umfjöll­unin gefi ekki rétta mynd af veru­leik­anum. „Það var pínku sjokker­andi. Þetta sím­tal sem ég átti við Agnesi Braga­dóttur [blaða­mann Morg­un­blaðs­ins], ég vissi alveg þegar því lauk að þetta yrði ein­hver hasar og partur af mér fór að hlæja því þetta var svo fárán­legt.“

Hún fellst þó á að það hafa komið upp ákveðnir sam­starfsörð­ug­leikar. „Þetta hefur ekki bara verið dans á rósum. Það hafa komið upp sam­starfsörð­ug­leikar ef ég á að orða það þannig.“

Mættirðu and­stöðu starfs­fólks þegar þú tókst við?

„Ég vissi að það yrði ekki bara erfitt fyrir mig að koma þarna inn heldur líka fyrir fólkið sem ég starfa með. Ég hafði verið mjög gagn­rýnin þó auð­vitað hafi ég verið að gagn­rýna for­ystu félags­ins og þá stefnu sem var í gildi, ekki bara þar heldur yfir hreyf­ing­una í heild sinni sem mér þótti mjög röng og þykir enn. En þá var ég ekki að ráð­ast að starfs­fólk­inu en ég skildi þá og skil enn að fólk hafi tekið mér með vissri varúð. En engu að síður, yfir heild­ina var tekið vel á móti mér. Ég mætti sam­starfsvilja og kurt­eisi og í mörgum til­fellum vin­áttu sem ég er ótrú­lega þakk­lát fyrir.“

En stjórnið þið með ofríki og hót­unum?

„Ég kann­ast svo sann­ar­lega ekki við það. Það get ég sagt af algjörum heið­ar­leika að það er brjáluð lýs­ing sem á sér enga stoð í raun­veru­leik­anum. Það eru þarna leik­endur sem hafa ólíkar fyr­ir­ætl­anir þannig að ann­ars vegar er þetta sett fram í þeim til­gangi að grafa undan og eyði­leggja þá bar­áttu sem auð­vitað er þegar hafin, og mun verða meiri og rosa­legri í vetur, og svo hins vegar er þetta sett fram af fólki sem getur ekki sætt sig við nið­ur­stöður þess­ara kosn­inga og hver úrslitin þar urðu.“

Fólk leyfir sér sturlaðan málflutning

Kjara­samn­ingar renna út nú um ára­mótin og kynntu stétt­ar­fé­lögin kröfu­gerðir sínar fyrir stjórn­völdum og atvinnu­rek­endum. Um þær kröfur verður tek­ist á í kom­andi kjara­við­ræðum, en þar er meðal ann­ars farið fram á að lág­marks­laun verði 425 þús­und krónur að loknum samn­ings­tíma, að lág­marks­laun verði skatt­laus, að skatta- og bóta­kerfið verði end­ur­skoðað og að ráð­ist verði í þjóð­ar­á­tak í hús­næð­is­málum.

Til­lög­urnar þykja vissu­lega rót­tækar en eru þær raun­hæfar? „Ef ég bara horfi á þetta út frá sjálfri mér sem starf­aði sem lág­launa­kona á íslenskum vinnu­mark­aði í 10 ár og þurfti lengi að vera í tveimur vinnum til að geta átt ein­hvers konar líf sem sner­ist ekki bara um blank­heit og stress, þá finnst mér þetta eins eðli­legt og sann­gjarnt og hægt er að hugsa sér. Sum við­brögðin við þessum kröfum hafa verið ofsa­fengin, að vissu leyti vegna þess að þetta er fólk sem aðhyllist þá hug­mynda­fræði að það eigi alltaf að verð­leggja vinnu fólks á sem minnsta mögu­lega máta. Svo er ekki heldur hægt að horfa fram hjá því að fólk sem fer fram með svona harka­legum við­brögðum hefur aldrei kynnst því hvað það er að lifa og starfa sem ófag­lærð verka­mann­eskja á íslenskum vinnu­mark­aði og hversu streitu­fullt líf það er. Á sama tíma og mér svíður þetta og vissu­lega móðg­ast við þessi hörðu við­brögð þá hugsa ég líka að þessu fólki sé svo­lítil vor­kunn af því að það bara greini­lega getur ekki sett sig í spor þeirra stétta sem það sjálft tiheyrir ekki. Það virð­ist ekki fært um að líta á aðstæður verka- og lág­launa­fólks, sýna því ein­hverja sam­hygð eða sam­kennd sem er afleið­ing þeirrar brú­tal nýfrjáls­hyggju sem við höfum verið látin lifa undir.“

„Sum við­brögðin við þessum kröfum hafa verið ofsa­fengin, að vissu leyti vegna þess að þetta er fólk sem aðhyllist þá hug­mynda­fræði að það eigi alltaf að verð­leggja vinnu fólks á sem minnsta mögu­lega máta.“

Ein þess­ara „ofsa­fengnu“ við­bragða mátti finna í leið­ara Harðar Ægis­sonar í Frétta­blað­inu, en þar var kröfum stétt­ar­fé­lag­anna lýst sem „sturluðum og í engum takti við efna­hags­legan veru­leika“ og for­ystu­menn þeirra sagðir mesta ógnin gagn­vart lífs­kjörum meg­in­þorra fólks. Sólveig Anna segir að gagn­rýni Harðar hafi farið yfir öll vel­sæm­is­mörk. „Þessi grein er bók­staf­lega mjög harðsvíruð árás á algjör­lega eðli­legar og sann­gjarnar óskir fólks um að þegar sest verður að samn­inga­borð­inu, bæði gagn­vart Samtökum atvinnu­lífs­ins og stjórn­völdum, að þá verði fólki mætt með sann­girni og það við­ur­kennt að skipt­ing gæð­anna sé með engu móti rétt­lát. Þetta er bara ótrú­legt, í alvöru talað. Auðvitað verð ég að leggja við eyrun og átta mig á því að í her­búðum þessa fólks sem með mál­flutn­ingi sínum sýnir og sannar að það er hinir raun­veru­legu óvinir vinn­andi fólks á Íslandi. Ég upp­lifi þetta sem ógn­andi hegðun og mér finnst mjög merki­legt til þess að hugsa að þetta er sama fólk sem heyrir minnst á orðið verk­fall og brjálast, talar þar um ógn­anir og þess háttar en leyfir sér sjálft að fara fram með mál­flutn­ingi sem er bók­staf­lega sturl­aður og ekki í takti við neinn raun­veru­leika eða hóf­still­ingu.“

Ætla ekki að samþykkja þessar leikreglur

Und­an­farnar vikur hafa þó borist fréttir af versn­andi afkomu fyr­ir­tækja, meðal ann­ars í ferða­þjón­ustu þar sem launa­kostn­aður er stærsti útgjalda­lið­ur­inn, og hafa atvinnu­rek­endur gefið í skyn að ekki verði hægt að mæta auknum launa­kostn­aði öðru­vísi en með upp­sögnum. Sólveig Anna segir að sé það raunin, sé eitt­hvað mikið að kerf­inu. „Ef það er eini val­kost­ur­inn, að ann­að­hvort haldi fólk áfram að sætta sig við laun sem duga bók­staf­lega ekki til að kom­ast af eða að upp­sagnir og hörm­ungar blasi við, þá segir það okkur bók­staf­lega allt um það ofbeldis- og kúg­un­ar­sam­band sem vinnu­aflið er látið búa við. Ég vil for­dæma efna­hags­kerfi sem virkar svona,“ segir Sólveig Anna og bætir við: „En þetta er áróður, þetta er sú áróð­ursmask­ína sem fer alltaf af stað þegar vinnu­aflið og full­trúar þess setja fram kröfur. Þetta er sami kór­inn og söng þegar sett var fram krafa um 300 þús­und króna lág­marks­laun í síð­ustu samn­ingum. En þá, sem betur fer, bar íslenskt sam­fé­lag gæfu til að hafna þeim áróðri og sam­ein­ast að miklu leyti um að það væri fárán­legt að biðja um minna.“

Sólveig Anna gefur sömu­leiðis lítið fyrir þau rök að efna­hags­horfur nú séu svart­ari en þegar samið var fyrir þremur árum. „Ég hef alltaf sagt að við búum í efna­hags­kerfi sem er sér­hannað til þess að láta það alltaf ger­ast, hvort sem það er upp­sveifla, nið­ur­dýfa eða vægur sam­dráttur, þá eru tap­ar­anir alltaf vinnu­aflið sem þó knýr áfram hag­vöxt­inn og hjól atvinnu­lífs­ins. Ég ætla bara ekk­ert að sam­þykkja þessar leik­reglur, að þetta séu einu leik­regl­urnar sem við megum spila eftir.“

En er hægt að horfa fram hjá þessum hag­tölum, til dæmis þeim sem sýna að kaup­máttur hafi aldrei í sög­unni auk­ist jafn­mikið og und­an­farin ár?

„Ég bara veit hvernig kaup­máttur þeirra sem hafa minnst á milli hand­anna er. Með hús­næð­is­mark­að­inn eins og hann er og hvað það er dýrt að lifa í þessu landi, þá er það eins og ein­hver sadískur brand­ari að vera alltaf að sveifla þessu framan í fólk. Vissu­lega hefur orðið kaup­mátt­ar­aukn­ing hjá sumum hópum. Hér búa stórir hópar við æðis­gengna vel­sæld og við besta mögu­lega lífs­stíl sem völ er á. Það breytir því ekki að þetta er ekki raun­veru­leiki allra. Af hverju í ósköp­unum ætti ég að fók­usera á þá hópa sem hafa það best í stað þess að horfa á þá hópa sem hafa það verst í íslensku sam­fé­lagi?“

Gat ekki hætt að horfa á heimabankann

Fréttir af umtals­verðum launa­hækk­unum til handa þing­mönnum og for­stjórum rík­is­stofn­ana, fyrir til­stilli kjara­ráðs og síðar stjórna opin­berra fyr­ir­tækja, hleyptu illu blóði í verka­lýðs­hreyf­ing­una og segir Sólveig Anna að þessar ákvarð­anir, ásamt ríf­legum launa­hækk­unum for­stjóra stærstu fyr­ir­tækja lands­ins, hafi spilað hlut­verk í kröfu­gerð­inni. Þessar launa­hækk­anir hafi verið ögrun gagn­vart vinn­andi fólki. Sjálf tók hún þá ákvörðun að lækka laun sín um 300 þús­und krónur á mán­uði. „Mér fannst ég ein­hvern veg­inn verða að gera það, það var ein­hver knýj­andi þörf inni í mér. Ég, sem lág­launa­kona, þurfti að horfast í augu við það – og það eru mjög grimm örlög og sárt fyrir full­orðna mann­eskju að gera það – að geta ekki staðið á eigin fótum efna­hags­lega. Fyrir mig, sem sós­íal­ískan femínista, var það mjög sorg­legt að til þess að geta boðið börn­unum mínum upp á eitt­hvað sem er hægt að flokka sem eðli­legt líf myndi ég ávallt þurfa að eiga sam­býl­is­mann til að hjálpa. Hvað erum við að tala um þegar við segjum að Ísland sé rosa­lega mikil jafn­réttispara­dís, hversu fölsk er sú mynd sem er dregin þar upp? Að mínu mati er hún mjög fölsk.“

„Mér fannst ég ein­hvern veg­inn verða að gera það, það var ein­hver knýj­andi þörf inni í mér,“ segir Sólveig um þá stað­reynd að hún lækk­aði laun sín um 300 þús­und krónur.

Sólveig Anna rifjar upp fyrstu launa­greiðsl­una sem hún fékk frá Eflingu. „Ég lá uppi í rúmi og kíkti inn í heima­bank­ann minn og ég gat ekki hætt að horfa. En þetta fyllti mig engri æðis­legri gleði eða þetta var ekki svona: „Jess, loks­ins á ég pen­ing“ heldur hugs­aði ég meira hvaða brjál­semi þetta væri. Hvernig gat ég verið að vinna og vinna eins og brjál­æð­ingur öll þessi ár og aldrei nokkurn tíma séð upp­hæð inni á heima­bank­anum mínum sem komst einu sinni nálægt þessu.“

„Ég lá uppi í rúmi og kíkti inn í heima­bank­ann minn og ég gat ekki hætt að horfa.“

Var þetta ekki bara kap­ít­al­ismi að verki, að þeir sem leggja mikið á sig munu upp­skera eins og þeir sá?

„Kap­ít­al­ism­inn segir nátt­úr­lega alltaf eitt­hvað kreisí. Hann er alltaf með ein­hverjar ódýrar útskýr­ingar á sínum snærum en lög­mál hans geta nátt­úr­lega ekki ráðið för inni í verka­lýðs­hreyf­ing­unni. Henni ber skylda að taka til hjá sér líka þegar kemur að þessum málum, að setja reglur um hvað sé eðli­legur launa­munur þar.“

Hjólaði í vinnu til að losna við Bónusferðir

En það eru ekki bara launin sem verða á sam­inga­borð­inu heldur einnig lífs­kjörin í land­inu. Þar vega hús­næð­is­málin þungt enda ófremd­ar­á­stand á hús­næð­is­mark­aði. Þær kröfur snúa að stjórn­völdum enda liggur sökin þar. „Ég er ekki mjög gömul kona, ég er 43 ára, en þegar ég var að hefja minn búskap þótti það enn normal að ungt fólk gæti eign­ast sína eigin íbúð og staðið undir afborg­unum með hóf­legum tekjum. Það er ekki raunin lengur og þetta er afleið­ing af ömur­legum efna­hags­á­kvörð­unum þeirra sem hér fara með völd. Það varð alkul í upp­bygg­ingu hús­næðis og til að keyra efna­hags­lífið af stað var blásið til ferða­manna­góð­æris og það var tekin mark­viss ákvörðun um það á æðstu stöðum í íslensku sam­fé­lagi og settir gríð­ar­legir fjár­munir í það. Til að keyra þá upp­sveiflu var fluttur inn gríð­ar­lega stór hópur af erlendu verka­fólki. Allt þetta var gert án þess að því grund­vall­ar­at­riði væri svarað um hvar þetta fólk ætti að búa.“

Hús­næð­islið­ur­inn er ekki eitt­hvað sem verka­lýðs­hreyf­ingin mun slaka á til að ná fram öðrum kröfum því ekki sé hægt að reka sam­fé­lag þar sem vinnu­afl­inu er ekki tryggt þak yfir höf­uðið. „Slík sam­fé­lög eru við­bjóðs­leg og dæmd til að enda í kata­st­rófu. Þú þarft að tryggja vinnu­afl­inu mat, hvíld og hús­næði. Ef þú getur ekki mætt þessum lág­marks­þörfum áttu að skamm­ast þín svo ótrú­lega mikið að þú átt að draga þig í hlé með skottið á milli lapp­anna.“

Varðandi hátt mat­væla­verð segir Sólveig Anna það við­semj­enda þeirra að koma með svör og lausnir að borð­inu. „Það er líka á þeirra ábyrgð að mæta okkur með hug­vit­sam­legum lausnum sem sýna að þeim sé alvara í því að bæta kjör fólks og tryggja að launin séu ekki bara strax étin upp með fyrstu Bón­us­ferð­unum. Ein af ástæð­unum fyrir því að ég fór að hjóla í og úr vinnu var sú að ég hataði að vera á bílnum því þá þurfti ég að fara í Bónus. Þegar þú ert með ótrú­lega léleg laun og þarft að borga rosa­lega mik­inn pen­ing við kass­ann í Bónus fyrir eitt­hvað smott­erí, þá olli það mér svo miklu hug­ar­angri. Það dró svo úr lífs­gæðum mínum að ég vildi frekar hjóla í og úr vinn­unni og dömpa þeirri ábyrgð á mann­inn minn alfarið. Sem var kannski svo­lítið leið­in­legt fyrir hann.“

„Ein af ástæð­unum fyrir því að ég fór að hjóla í og úr vinnu var sú að ég hataði að vera á bílnum því þá þurfti ég að fara í Bónus.“

Að verða ung móðir það besta sem gat gerst

Talið berst að sós­í­al­ism­anum, rót­tækn­inni og því hvað reki Sólveigu Önnu áfram í bar­átt­unni gegn fjár­mála­öfl­unum. Segja má að hún hafi fengið þessa eig­in­leika í vöggu­gjöf. „Ég var alin upp á mjög rót­tæku heim­ili þannig að strax frá því ég var lítil stelpa var alltaf verið að tala um alþjóða­mál og mál í stóru sam­hengi,“ segir Sólveig Anna, en hún er dóttir útvarps­þul­anna Jóns Múla Árna­sonar og Ragn­heiðar Ástu Pét­urs­dóttur. Jón Múli var mjög virkur í Sós­í­alista­flokknum og síðar Alþýðu­banda­lag­inu og hlaut fang­els­is­dóm fyrir þátt­töku sína í óeirð­unum á Aust­ur­velli 1949 en var síðar náð­aður. Sólveig Anna átti eftir að feta í fót­spor hans, eins og nánar verður komið að síðar.

„Báðir for­eldrar mínir höfðu mjög mikil áhrif á mig. Ég fékk afar frjálst upp­eldi og kannski full­frjálst, ég er lang­yngst af mínum systk­inum og ég held að þau hafi bæði verið komin á ein­hvern stað að þau leyfðu mér að gera nokkurn veg­inn það sem ég vildi. Ég var alls ekki erfið en ég var svo­lítið sér­lunduð. Þegar ég var búin að læra að lesa not­aði ég það mjög mark­visst að vera alltaf með bók og ég lærði það mjög snemma að barn með bók er alltaf látið í friði af fólki sem sér lestur sem lyk­il­inn að öllu. Ég var þess vegna mjög útsmogin að koma mér undan allri ábyrgð með því að lesa mjög mikið.“ Skóla­gangan var nokkuð mörkuð af þessu, segir Sólveig Anna sem lýsir sér sem „mis­mennt­aðri“. Hún hafði hæfi­leika sem sneru að hinu rit­aða máli en raun­grein­arnar voru ekki hennar sterkasta hlið. Skóla­kerfið var þannig að það refs­aði henni fyrir það sem hún kunni ekki í stað þess að umb­una fyrir það sem hún kunni og þegar grunn­skóla­göng­unni var lokið var hún orðin upp­gefin á því. „Ég gerði nokkur áhlaup á það að vera í mennta­skóla en mér leið bara ekk­ert vel inni í skóla, ég upp­lifði skóla­stofn­anir sem óvin­veitt umhverfi. Þannig að ég er mjög mik­ill tals­maður þess að börnum og ung­lingum sé mætt þar sem þau eru og að við horfum ávallt á það sem fólk getur og reynum að gera minna úr því sem við getum ekki.“

„Ég var alls ekki erfið en ég var svo­lítið sér­lunduð. Þegar ég var búin að læra að lesa not­aði ég það mjög mark­visst að vera alltaf með bók og ég lærði það mjög snemma að barn með bók er alltaf látið í friði af fólki sem sér lestur sem lyk­il­inn að öllu.“

Sólveig Anna fór þess vegna ung út á vinnu­mark­að­inn. „Ég varð ung móðir sem var lík­lega það besta sem gat komið fyrir mig. Mig vant­aði mikið ein­hvern stöð­ug­leika, eitt­hvað akk­eri, og var einmitt svo heppin að for­eldrar mínir studdu mig mjög vel þar og voru mér mikið innan handar.“

Sólveig Anna á tvö börn með eig­in­manni sínum, Magnúsi Sveini Helga­syni, en þau eru nú 18 og 21 árs. „Við vorum svona ung­linga­kærustupar, hættum saman og byrj­uðum saman.“

Árið 2000 fluttu þau saman út til Minnesota í Banda­ríkj­unum þar sem Magnús Sveinn lærði hag­sögu og banda­rísk stjórn­mál. Þar bjuggu þau í átta ár og segir Sólveig Anna að veran í Banda­ríkj­unum hafi sann­fært hana end­an­lega um skelfi­legar afleið­ingar kap­ít­al­ism­ans.

„Ég flutti út þegar George W. Bush var kos­inn for­seti og það var inn­rásin í Afganistan, Írak og allur við­bjóð­ur­inn sem fylgdi því, Guant­anamo, Abu Grahib, felli­byl­ur­inn Katrina. Þetta var rosa­leg röð af bylm­ings­höggum þar sem algjör­lega tryllt auð­stétt, und­ir­seld blóð­ugri heims­valda­hug­mynda­fræði lét bara hvert höggið dynja á sak­lausu fólki. Það var ótrú­legt að verða vitni að því.“

Í Banda­ríkj­unum lifði Sólveig Anna í tveimur heimum. Annars vegar sem lág­launa­kona þar sem hún starf­aði í kjör­búð og hins vegar sem milli­stétt­ar­kona sem sinnti sjálf­boða­liða­störfum í skóla barn­anna. Í kjör­búð­inni starf­aði hún með fólki sem til­heyrði stétt hinna vinn­andi fátæku, fólki sem vann sleitu­laust alla sína ævi en átti ekki mögu­leika á að brjót­ast út úr fátækt. „Svo fékk ég líka að prófa þetta milli­stétt­ar­líf hvítra kvenna sem snýst um þetta barna­líf, í þessum heimi kvenna sem eiga menn sem þéna það vel að þær fara bara af vinnu­mark­aði. Þar upp­lifði ég að mér voru afhent ein­hver furðu­leg for­rétt­indi bara út á það að vera hvít og nor­ræn, að kunna ein­hverjar reglur sem sam­fé­lagið hefur ákveðið að séu mik­ils virði, ein­hvern evr­ópskan hegð­un­ar­máta sem ég upp­skar blessun sam­fé­lags­ins út á. Það var mjög sjokker­andi að upp­lifa það því ég hafði í prinsipp­inu alltaf verið and-rasísk en að sjá það með eigin augum hvað ras­ism­inn og kyn­þátta­hyggjan er við­ur­styggi­lega sjúkt fyr­ir­bæri opn­aði mjög augu mín.“

Beint heim í byltinguna

Fjöl­skyldan flutti heim sum­arið 2008, nán­ast beint ofan í íslenska efna­hags­hrunið. Sólveig Anna segir að þessi tími hafi verið fjöl­skyld­unni erf­iður, þau glímdu við atvinnu­leysi og fjár­hag­ur­inn var þröngur. En Sólveig Anna kom heim frá Banda­ríkj­unum full bar­áttu­anda og hún var til­búin til að láta að sér kveða í bús­á­halda­bylt­ing­unni. Það gerði hún eft­ir­minni­lega því hún var í hópi níu­menn­ing­anna sem voru ákærðir fyrir árás á Alþingi í des­em­ber 2008. Um þá reynslu segir Sólveig Anna: „Hún var mjög áhuga­verð en mjög erfið. Það var skrítin til­viljun að ég var í þeim hópi. Afleið­ing­arnar af því að fara inn í alþing­is­húsið til að mót­mæla, hversu erf­iðar þær voru og hversu mikla and­lega orku og tíma þær tóku frá mér. Ekki bara mér heldur líka mann­inum mínum. Það var mjög erfitt. Og ég við­ur­kenni alveg að undir það síð­asta í því máli þegar dóms­málið var komið af stað og við vorum ákærð … það var ekk­ert smá­ræði að hafa þessa ofbeld­is­hótun hang­andi yfir höfð­inu á sér. Ég var alveg orðin stressuð og komin á nett kvíða­rösk­un­ar­róf þar.“

„Það var ekk­ert smá­ræði að hafa þessa ofbeld­is­hótun hang­andi yfir höfð­inu á sér. Ég var alveg orðin stressuð og komin á nett kvíða­rösk­un­ar­róf þar.“

Sólveig Anna segir að þessi reynsla hafi setið lengi í henni þótt hún geri það ekki lengur. „Ég hugs­aði oft mikið um þetta og ég upp­lifði mig mjög valda­lausa meðan á þessu stóð og fannst það mjög óþægi­legt. Þetta var á sama tíma og ég var virki­lega að kynn­ast því hvernig væri að vera lág­launa­kona á Íslandi og ég er virki­lega að horfast í augu við þau örlög sem var líka erfitt. Afleið­ingar hruns­ins lögð­ust mjög þungt á okkur, mig og mann­inn minn, með atvinnu­leysi og fjár­hagskröggum þannig að þetta var mjög „intense“ og erf­iður tími. Svo lærði ég hversu tjúlluð borg­ara­stéttin getur leyft sér að verða þegar hún upp­lifir að sér sé ógnað. Það var mjög hressi­legur lær­dómur.“

Sérðu eftir þessu?

„Nei, ég sé ekk­ert eftir þessu. Á end­anum áskotn­að­ist mér margt, eins og að kynn­ast snjöllu og snið­ugu fólki sem var ekki búið að láta sam­fé­lagið móta sig alveg og lifði á eigin for­sendum. Það var mjög hressandi.“

Sólveig Anna var einnig lyk­il­þátt­tak­andi í öðru máli sem skók þjóð­ina á árunum eftir hrun, leka­mál­inu svo­kall­aða. Hún var í hópi aðgerða­sinna sem boðað höfðu mót­mæli í dóms­mála­ráðu­neyt­inu þegar vísa átti hæl­is­leit­and­anum Tony Omos úr landi. Sama morgun og mót­mælin fóru fram birt­ist frétt á for­síðu Frétta­blaðs­ins sem unnin var upp úr minn­is­blaði sem hafði verið lekið úr ráðu­neyt­inu. Málið end­aði með afsögn Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur og dómi yfir aðstoð­ar­manni hennar. „Það var ótrú­legt og það var enn eitt dæmið um hversu tjúlluð borg­ara­stéttin verður þegar hún upp­lifir ein­hverja ógn. Viðbrögð þeirra sem fara svona með völd eru svo­leiðis að á end­anum eru þau sínir eigin verstu óvinir. Það var eitt æðis­gengn­asta dæmi sög­unnar um þetta dramb sem getur sýkt fólk sem kemst í of mikil völd.“

Lífsstíll efri stéttanna ekki mögulegur án vinnuaflsins

Það er mikið talað um að fram undan sé átaka­vetur með hörðum deilum á vinnu­mark­aði. Sólveig Anna telur ekki að svo þurfi að vera. „Það eina sem þarf er að við­semj­endur okkar mæti okkur af sann­girni, að þeir við­ur­kenni rétt­mæti krafn­anna og komi að samn­inga­borð­inu með það hug­ar­far að við ætlum saman í það verk­efni að sann­ar­lega bæta lífs­kjör verka- og lág­launa­fólks á Íslandi. Ég ætla enn þá að leyfa mér að halda í þá von að svo verði. Ég held að póli­tíska and­rúms­loftið í sam­fé­lag­inu sé með þeim hætti að þau geti raun­veru­lega ekki komið sér hjá því að takast á við þetta.“

Megum við eiga von á því að hér logi allt í verk­föllum?

„Ég, sem áhuga­mann­eskja um verka­lýðs­bar­áttu, tala ekki af léttúð um verk­föll og hef aldrei gert. En ég veit að verk­föll eru eitt það mik­il­væg­asta og merki­leg­asta sem vinnu­aflið hefur, því það sýnir hversu stór­kost­legt vægi það hefur. Án vinnu­aflsins er allt tal um hag­vöxt inn­an­tómt og lífs­stíl efri stétt­anna ekki mögu­legur. Ef það er á end­anum eina leiðin sem er fær, er það bara svo­leiðis. En þá verður sann­ar­lega ekki við okkur að sakast.“

Myndir / Hallur Karlsson
Förðun / Björg Alfreðs­dóttir alþjóð­legar förð­urn­ar­fræð­ingur YSL á Íslandi

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins