„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Sigrún María einkaþjálfari með hugmyndir að hollu nesti fyrir fólk á ferðinni

Sigrún María einkaþjálfari með hugmyndir að hollu nesti fyrir fólk á ferðinni
||

Einka­þjálf­ar­inn Sigrún María Hákon­ar­dóttir er 28 ára gömul og heldur úti heima­síð­unni Fit­By­Sigrun þar sem hún deilir meðal ann­ars æfingum og hollum upp­skriftum. Sigrún María hefur áður gefið les­endum Mannlífs góðar hug­myndir að snið­ugum æfingum sem hægt er að gera með börn­unum í sum­ar­frí­inu. Nú eru hins vegar margir á far­alds­fæti, sér­stak­lega um versl­un­ar­manna­helg­ina sem nálg­ast óðum, og því báðum við Sigrúnu Maríu að gefa les­endum hug­myndir að hollu og góðu nesti fyrir alla fjöl­skyld­una.

Einka­þjálf­ar­inn Sigrún María deilir 5 æfingum sem hægt er að gera með börn­unum

„Ég segi við alla sem koma til mín eða leita ráða hjá mér að banna sér ekki neitt, allt er leyfi­legt en að velja ávallt holl­ari val­kost­inn ef hann er í boði,” segir Sigrún María. „Það breyt­ist eitt­hvað við að hugsa svona og svo mik­il­vægt að upp­lifa ekki sam­visku­bit þó svo að maður fái sé eitt­hvað sem flokk­ast sem óhollt. Síðan er gott að eiga fína vatsnflösku sem gerir það skemmti­legra að drekka vatn jafnt og þétt yfir dag­inn og að hafa það mark­mið að ná alla­vega einum ávexti og einu græn­meti inn í dag­inn, allt annað er bónus,” bætir hún við.

Hvað er hægt að grípa úti í búð?

Sigrún segir mik­il­vægt að nesti í ferða­lögum sé ein­falt og fljót­legt.

„Þegar ég hugsa út í snið­ugt nesti á ferð­inni hugsa ég hvað sé hægt að grípa í mat­vöru­búð og hafa lítið fyrir að útbúa. Hér er nesti sem ég mæli með á ferð­inni, sér­stak­lega ef þú ert með fjöl­skyldu,” segir Sigrún María. „Flatkaka með hummus, kjúklinga­skinku og kletta­sal­ati (má sleppa). Hægt er að fá sér tvær svona í hádeg­is­mat ásamt epli og/eða gul­rótum eða eina í milli­mál,” bætir hún við og lætur fylgja með hvað þarf að kaupa í nestið:

Álpappír eða plast­poka til að geyma nesti í
Flat­kökur
Hummur
Kjúklinga­skinka
Kletta­salat
Plast­hníf eða eitt­hvað til að smyrja hummus með

Það er leikur einn að grípa með sér ávexti í ferða­lagið.

„Síðan sem milli­mál er voða snið­ugt að kippa með sér grískri jógúrt eða skyri, Hleðslu eða Hámark, ban­ana, epli, hnetu­smjör/möndlu­smjör og auð­vitað plast­hníf, skeið og plast­poka,” segir Sigrún María. Hér á eftir eru nokkur milli­mál sem hún mælir með:

Grísk jógúrt með múslí (hægt að kaupa til­búið).
Grísk jógúrt með smá hnetu- eða möndlu­smjöri og epli.
Skyr með smá hnetu- eða möndlu­smjöri og ban­ana.
Hleðsla/Hámark og ban­ani.
Banani með hnetu- eða möndlu­smjöri.
Epli með hnetu- eða möndlu­smjöri.

Sigrún María er hreystin upp­máluð.

Einn dagur í einu

En hvernig er best fyrir fólk að byrja að breyta um matar­æði og velja holl­ari val­kosti?

„Tileinka sér hug­ar­farið að taka einn dag í einu er mjög góð byrjun og að ætla sér ekki of mikið. Að byrja mjög smátt og gera það að vana, til dæmis byrja bara á því að bæta inn ávöxtum í matar­æðið, eða drekka vatn reglu­lega yfir dag­inn. Þegar það er orðið að vana, að vinna þá í að koma góðum vana á fyrstu mál­tíð dags­ins og svo koll af kolli. Vera þol­in­móð/ur með þetta því þetta gæti tekið nokkra mán­uði og þú munt stundum ná að halda þér á beinni línu en þú munt líka detta útaf spor­inu, en þá er mik­il­vægt að koma sér aftur á réttu leið­ina.”

Myndir / Berglind Jóhanns­dóttir og úr einka­safni

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins