„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Rúrik gæti grætt milljónir á hverri Instagram-færslu

Rúrik gæti grætt milljónir á hverri Instagram-færslu
|

Einn af hápunktum nýlið­innar heims­meist­ara­keppni er hve hratt vin­sældir knatt­spyrnu­kappans Rúriks Gísla­sonar uxu á meðan á keppn­inni stóð, og jafn­vel eftir að Ísland datt úr leik.

BBC segir Rúrik blöndu af Brad Pitt, Channing Tatum og Chris Hemsworth

Rúrik er nú kom­inn með 1,3 millj­ónir fylgj­enda á Instagram og á sú tala eflaust eftir að hækka. Er Rúrik sá Íslend­ingur sem er með flesta fylgj­endur á sam­fé­lags­miðl­inum, en á eftir honum kemur merk­is­fólk eins og fjallið Hafþór Júlíus Björns­son, lands­liðs­mað­ur­inn Gylfi Þór Sig­urðs­son, söng­konan Björk Guð­munds­dóttir og áhrifa­vald­ur­inn Manuela Ósk. Margir hafa haft á orði að Rúrik gæti þénað smá auka­pen­ing með því að líta á Instagram sem atvinnu­veg utan fót­bolt­ans, þar á meðal fyrr­nefnd Manuela.

Hver mynd þýðir þúsundir króna

Það er engin algild regla um hve mikið áhrifa­valdar fá fyrir að aug­lýsa vörur og þjón­ustu á sam­fé­lags­miðlum. Það er hins vegar ljóst að þar eru engir smá­pen­ingar í spil­unum fyrir fólk eins og Rúrik sem kemst yfir milljón fylgj­endur.

Samkvæmt tölum sem The Economist tók saman árið 2016 getur áhrifa­valdur sem er með 1 til 3 millj­ónir fylgj­enda á Instagram þénað fimm­tíu þús­und doll­ara fyrir hverja færslu, eða rúmar fimm millj­ónir króna. Þeir sem eru með hálfa til eina milljón fylgj­enda geta þénað um eina milljón króna fyrir hverja færslu. Ef áhrifa­valdur kemst hins vegar yfir þrjár millj­ónir fylgj­enda getur þessi tala hækkað í rúmar sjö millj­ónir króna.

Hér má sjá gröf The Economist um hve mikið áhrifa­valdar geta grætt á aug­lýs­ingum.

Ef Rúrik ákveður að ein­beita sér að þessum nýja starfs­vett­vangi og jafn­vel færa sig yfir í aðra sam­fé­lags­miðla getur hann grætt á tá og fingri. Þannig geta áhrifa­valdar með 1 til 3 millj­ónir fylgj­enda á Snapchat grætt fimm millj­ónir króna fyrir hverja færslu, rúmar sex millj­ónir króna fyrir hverja Facebook-færslu og vel yfir tíu millj­ónir króna fyrir hvert mynd­band á YouTube.

Ekki bara fylgjendur sem telja

Þó þessar tölur frá The Economist séu tveggja ára gamlar, gefa þær nokkuð góða mynd af tekjum áhrifa­valda almennt séð. The Financial Times tók saman tekjur áhrifa­valda fyrr á þessu ári og í þeim kom fram að áhrifa­valdar með um hund­rað þús­und fylgj­endur gætu þénað um þrjú hund­ruð þús­und krónur fyrir hverja mynd á Instagram.

Þess ber að geta að það er ekki aðeins fylgj­enda­fjöldi sem fyr­ir­tæki horfa í þegar þau ákveða að ráða til sín áhrifa­valda til að aug­lýsa vörur sínar og þjón­ustu. Ýmislegt annað ber að hafa í huga, svo sem svo­kallað „reach”, eða til hve margra aug­lýs­ingin nær, á hvaða sam­fé­lags­miðlum áhrifa­vald­ur­inn er virkur og hver hans sér­staða á mark­að­inum er.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins