„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Pítsa-polenta

Ljúffeng pítsa með sveppum, timían og hvít­lauk.

Pítsa-polenta
|

Polenta er nafn á gróf­möl­uðum maís en var upp­runa­lega heiti yfir algengan rétt á Norður-Ítalíu sem er eins­konar grautur sem svipar til kart­öflu­stöppu. Þegar polentu-mjöl kólnar verður það þétt­ara í sér og minnir á brauð, þá er það gjarnan skorið í bita sem eru steiktir og verða þá stökkir og góðir.

Polenta er bragð­lítil og á þess vegna vel við bragð­sterkan mat. Hún er t.d. borðuð með smjöri og osti eða höfð með pott­réttum úr kjöti eða fiski. Grunn­ur­inn er alltaf að bæta vökva saman við mjölið og svo er það hitað í potti. Hrært er stöðugt í blönd­unni þar til eins­konar deig mynd­ast sem er til­búið þegar það loðir ekki lengur við hliðar potts­ins. Þá er ann­að­hvort kryddi eða smjöri eða osti blandað saman við og hún borðuð heit sem með­læti eða sett í  eld­fast mót og látin stífna. Þegar hún kólnar er hún skorin í sneiðar, bökuð, grilluð eða steikt.
Í Banda­ríkj­unum, sér­stak­lega í Suð­ur­ríkj­unum, er gjarnan borið fram svo­kallað „cornbread“ með mat. Brauðinu er dýft í sósur og pott­rétti og þykir mörgum það ómissandi með Suð­ur­ríkja­mat. Það er fljót­legt að baka slíkt brauð enda er lyfti­duft yfir­leitt notað í stað gers. Notað er grófmalað maís­mjöl sem er í raun mjög svipað og polentu-mjölið.
Hér er hún notuð í pít­su­botn sem kom ljóm­andi vel út. Sniðugt fyrir þá sem eru með glút­en­óþol eða vilja sneiða hjá hveiti.

Polentu-pítsa með sveppum, timían og hvítlauk

fyrir 4-6
170 g polentu-mjöl
4 dl mjólk
50 g pecorino-ostur (má nota annan bragð­mik­inn harðan ost)
1 tsk. salt
50 g smjör
4 hvít­lauks­geirar, sneiddir
200 g sveppir að eigin vali
3 msk. ferskt timían, saxað
200 g mozzarella-ostur
salt og pipar eftir smekk

Hitið ofn í 200°C. Hrærið polentu-mjölið, mjólk, rif­inn pecorino-ost og salt saman með sleif. Hnoðið deigið létt með hönd­unum. Það á að vera hægt að fletja það út með köku­kefli en einnig er hægt að nota fing­urna og dreifa úr því á smjör­papp­ír­inn þannig að úr verði hring­laga kaka, um það bil 1 ½ cm þykk.
Hitið smjörið á pönnu og steikið hvít­lauk við vægan hita í nokkrar mín­útur og bætið svo svepp­unum út í og steikið áfram í nokkrar mín­útur í við­bót eða þar til svepp­irnir hafa náð að steikj­ast aðeins og dökkna. Bragð­bætið með timí­ani, salti og pipar. Setjið hluta af mozzarella-ost­inum á polentu-botn­inn, síðan steiktu svepp­ina og dreifið að lokum afgang­inum af ost­inum yfir. Bakið í 10 mín­útur eða þar til ost­ur­inn hefur fengið fal­legan lit. Gott að bera fram með hvít­lauksolíu.

Pecorino-ostur er bragð­mik­ill, harður ítalskur ostur úr sauða­mjólk. Nafnið er dregið af ítalska orð­inu pecora sem þýðir sauðfé.

Myndir / Aldís Páls­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

aðalréttir

Einfalt og fljótlegt á nýju ári
Mannlífið

Einfalt og fljót­legt á nýju ári

Eftir allar hátíð­ar­kræs­ing­arnar sem hafa ein­kennt und­an­farna daga er freist­andi að hafa hlut­ina ein­falda og fljót­lega núna þegar kemur að elda­mennsku. Hérna kemur smá sam­an­tekt yfir rétti sem eiga það sam­eig­in­legt að vera til­tölu­lega fljót­legir og ein­faldir. Ótrúlega ein­föld laxa­baka Þessa er til­valið að græja í miðri viku. Mynd / Rakel Ósk Fljót­legur sítrónu­fisk­réttur Full­komið með soðnum kart­öflum. Mynd /...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Mannlífið

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður