„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Möndlumjólk – holl og góð

Hægt að laga ótal útgáfur af drykkjum með möndlu­mjólk en það fer eftir smekk hvers og eins hvað er sett í drykk­inn.

Möndlumjólk – holl og góð
||
Ljósi draum­ur­inn, græna bylt­ingin og bleiki drykk­ur­inn.

Möndlur eru gíf­ur­lega hollar og nær­ing­ar­ríkar og inni­halda m.a. prótín, járn og kalk. Rann­sóknir hafa leitt í ljós að fitu­sýrur í möndlum („góðar fitu­sýrur“) geta dregið úr hættu á hjarta­sjúk­dómum og hjálpa til við að draga úr „slæma kól­ester­ól­inu“ svo­kall­aða. Möndlur inni­halda einnig mikið af E-vítamíni, fólín­sýru, trefjum og andox­un­ar­efnum. Þær eru hins vegar kalor­íu­ríkar þannig að um þær gildir, eins svo margt annað, að allt er best í hófi!

Möndlu­mjólk sem er löguð úr möndlum og vatni er auð­velt að útbúa sjálfur og nota t.d. út á hafra­graut­inn. Möndl­urnar eru látnar liggja í bleyti yfir nótt og síðan maukaðar í bland­ara ásamt vatni í nokkrar mín­útur. Möndlu­mjólk er frá­bær lausn fyrir þá sem af ein­hverjum ástæðum vilja eða þurfa að sneiða hjá kúa­mjólk. Sumir nær­ing­ar­fræð­ingar og fólk í heilsu­geir­anum mæla með möndlu­mjólk ekki ein­göngu í stað­inn fyrir kúa­mjólk heldur einnig í stað­inn fyrir soja- og hrís­mjólk.

Möndlu­mjólk
1 dl möndlur með hýði, lagðar í bleyti yfir nótt
4 dl vatn

Skolið möndlur eftir að þær hafa legið í bleyti og setjið í bland­ara. Hellið vatni yfir og maukið þar til að blandan er orðin jöfn og mjúk.

Það er hægt að laga ótal útgáfur af drykkjum með möndlu­mjólk en það fer eftir smekk hvers og eins hvað er sett í drykk­inn. Notið hug­mynda­flugið og það sem til er í skáp­unum.

Bleiki drykk­ur­inn
3-4 dl möndlu­mjólk
1 ban­ani, skor­inn í bita
2 dl mangó, ferskt eða frosið
1 dl frosin hind­ber eða jarð­ar­ber
1 dl vatn

Setjið allt í bland­ara og maukið saman.

Græna bylt­ingin
3-4 dl möndlu­mjólk
2 lúkur spínat
3-4 döðlur, má sleppa
2 dl frosið mangó
nokkur myntu­lauf
2 dl vatn
safi úr ½ límónu

Setjið allt í bland­ara og maukið saman.

Ljósi draum­ur­inn
3-4 dl möndlu­mjólk
1 ban­ani, skor­inn í bita
½ tsk. kakó­duft
korn úr vanillu­stöng
1 dl vatn
ísmolar

Setjið allt í bland­ara og maukið saman.

Góður morgunverður!

Hafra­grautur með möndlu­mjólk, kanil og blá­berjum.

Allt hrá­efni fæst í versl­unum Nóatúns. Fylgi­hlutir eru í einka­eigu.

______________________________________________________________

Möndlumjólk …

– er frá­bær lausn fyrir þá sem eru með mjólk­ur­ó­þol eða vilja sneiða hjá mjólk af ein­hverjum ástæðum.

– inni­heldur ekki mett­aða fitu sem hefur áhrif á „slæma kól­ester­ólið“ og getur leitt til hjarta­sjúk­dóma.

Góður morg­un­verður! Hafra­grautur með möndlu­mjólk, kanil og blá­berjum.

– er talin góð fyrir fólk með of háan blóð­þrýst­ing.

– er hægt að bragð­bæta með nátt­úru­legu sætu­efni, t.d. hun­angi, kornum úr vanillu­stöng, döðlum o.fl.

– er góð leið til að bæta hollri fitu, pró­tíni, vítamínum og stein­efnum í mál­tíð­irnar.

– er holl og nær­ing­ar­rík mjólk sem er laus við skað­lega græn­met­is­olíu og sætu­efni.

– geym­ist í 2-3 daga í kæli en best er að laga hana jafn­óðum.

– má frysta og það er til­valið að frysta hana í klaka­boxi eða í klaka­pokum.

– er frá­bær ein og sér með fullt af klaka (sjá mynd).

– er einnig góð hituð með vanillu­kornum út í.

Umsjón / Guðrún Hrund

Myndir / Rakel Ósk Sig­urð­ar­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ávextir

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Mannlífið

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður