„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Fljótlegur forréttur

Hér er upp­skrift að ein­földum og ljúf­fengum for­rétti sem sómir sér vel á hátíð­ar­borð­inu. Hann er þannig úr garði gerður að hægt er að útbúa flest í hann nokkru áður en hann er snæddur. Þannig að ekki er mikil vinna að koma honum saman. Upp­skriftin hentar líka sem snittur í veislur og fyrir kósí­kvöld.

Fljótlegur forréttur
Hann er þannig úr garði gerður að hægt er að útbúa flest í hann nokkru áður en hann er snæddur.

REYKTUR LAX MEÐ EPLA- OG FENNÍKUMAUKI
fyrir 4
300 g reyktur lax
1 zip lock-poki (rennilása­poki,
fæst t.d. í IKEA)

Setjið flakið með roði í zip lock-­poka og reynið að loft­tæma eins vel og þið getið. Sjóðið hálfan lítra af vatni í potti og kælið það svo með 4 dl af köldu vatni. Vatnið ætti að vera um 60°C. Setjið pok­ann út í vatnið og látið vera í minnst 20 mín­útur með hlemmi.

Með þess­ari „heima“ sous vide-aðferð haldið þið hámarks­bragði af lax­inum en eldið hann örlítið. Hann ætti að verða mjúkur eins og smjör og auð­velt að taka hann í sundur án þess að skera með hníf.

Ef þið eigið ekki zip lock-poka getið þið sett lax­inn í loft­tæmdu pakkn­ing­unni beint út í í umbúð­unum. Hann er oft með pappa­spjaldi á roð­hlið­inni en það kemur ekki að sök á svona lágum hita í þetta stuttan tíma.

2 msk. ólífu­olía
1 fenníka, skorin langsum í þunnar sneiðar
2 græn epli, afhýdd og skorin í bita
3 msk. vatn
safi úr einni límónu
1⁄2 tsk. salt
1⁄2 tsk. nýmal­aður svartur pipar

Setjið fenník­una í pott­inn með olí­unni og steikið hana þar til hún fer að mýkj­ast og brúnast lít­il­lega. Bætið þar næst epla­bit­unum og vatn­inu saman við og sjóðið saman. Setjið hlemm á pott­inn og gufu­sjóð­ið. Passið að hafa ekki of mik­inn hita og ekki hafa pott­inn of lengi á hell­unni. Eplin eiga að vera byrjuð að detta í sundur en þó ekki að vera ekki maukuð. Setjið límónusafann, salt og pipar saman við. Setjið í ílát og kælið.

2 mandarínur, hlutaðar í lauf

Skerið endana af mandar­ín­unni og sneiðið börk­inn af. Takið svo afhýdda mandar­ín­una í lófann og skerið laufin úr. Safnið þeim í skál og kreistið safann yfir. Það er hægt að geyma laufin í lok­uðu ílátið í nokkra daga í kæli. Passið að skera ykkur ekki.

rósapipar til skrauts
stein­selja til skrauts

Skerið dökkt súr­deigs – eða snittu brauð í sneiðar, smyrjið með smjöri og steikið eða grillið á pönnu. Það er hæfi­legt að hafa tvær sneiðar á mann. Setjið svo­lítið af mauki á hverja brauð­sneið og síðan lax og mandar­ínu­lauf.

Umsjón / Gunnar Helgi
Mynd / Rut Sig­urð­ar­dóttir
Stílisti / Ólöf Jakobína Ernu­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Mannlífið

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður